Page 1 of 4

Rolls Royce Phantom eða Maybach 57

PostPosted: Mon 20. Jan 2003 14:43
by bebecar
Jæja kæru félagar.

Mig langar að vita hvorn bílinn þið fílið betur. Samskonar spurning er á huga.is bílasíðunni og þið kannski svarið henni þar líka.

Þessir bílar verða á svipuðu verði og eru í raun sitthvor aðferðin að háklassa lúxusbíl, annar framleiddur af BMW en hinn af Benz en báðir undir öðrum tegundarheitum og byggja á mikilli arfleið og fornri frægð.
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

PostPosted: Mon 20. Jan 2003 15:57
by Djofullinn
Ég hef nú bara aldrei séð þessa bíla....

PostPosted: Mon 20. Jan 2003 16:10
by bebecar

PostPosted: Mon 20. Jan 2003 17:27
by DXERON
rollsinn er flottur en síðan með hinum kom ekki...

PostPosted: Mon 20. Jan 2003 17:47
by Raggi M5
'eg held að Maybach-inn sé allavega miklu öflugri :roll:

PostPosted: Mon 20. Jan 2003 18:14
by arnib
Sætin í Meibakkinum rokkkkkkka allavega!! :)

PostPosted: Mon 20. Jan 2003 19:46
by GHR
Mér finnst þeir báðir eiginlega akljótir!!! en væri samt til í einn :D
Pleanty of power og luxury en örugglega ókeyranlegir vegna bensínáts

PostPosted: Mon 20. Jan 2003 20:01
by Svezel
Ég held að ég verði að segja Rolls, þó það væri ekki nema út af eigendunum :wink:

PostPosted: Mon 20. Jan 2003 20:02
by bebecar
Mér finnst Maybach of Lexus legur til að vera svona fínn....


Rollsinn hefur hinsvegar fullkomið lúkk. Og hann er alveg nógu snöggur... Það má vera að Maybach sé öflugri en Rollsinn er 5.7 í 100.... ég held að hinn nái því ekki.

PostPosted: Mon 20. Jan 2003 22:09
by M110
Helvítinn eyðilögðu Rolls líka! :evil: Þetta er einn allraljótasti fyrir mína parta. Maybach er lítið skárri.enn ég tek hann frekar

PostPosted: Tue 21. Jan 2003 09:07
by bebecar
Mér finnst Rollsinn einmitt koma nokkuð vel út. Hann er alveg í takt við hefðirnar þar á bæ og bretarnir eru víst alveg í skýjunum yfir bílnum.

Maybach er óaðfinnalegur að innan en útlitið hefur hann ekki með sér.... hinn er allavega mjög vígalegur!

PostPosted: Wed 18. Feb 2004 10:30
by bebecar
Mig langar aðeins að taka upp þessa kosningu aftur - tilefnið er eftirfarandi þráður á stjörnunni.
http://www.stjarna.is/forum/viewtopic.php?t=471&start=15&postdays=0&postorder=asc&highlight=

Ég trúi náttúrulega ekki að menn séu eingöngu litaður af framleiðendamerkjum í þessum efnum en eins og flestir vita þá framleiðir og á BMW Rolls Royce og Benz á og framleiðir Maybach.

Þessir bílar eru hvor um sig það flottasta sem komið hefur á göturnar hvað lúxus varðar síðan Bugatti Royal var og hét!

PS, það er líka hægt að fá "airline seats" í RR Phantom...

Image

Stats fyrir þessa bíla eru eftirfarandi;
Rolls Royce Phantom
SPECIFICATIONS
Price: £252,000;
Performance: 149mph, 0-60 in 5.7 secs, 14.5mpg;
CO2: 385g/km;
Engine: 6.75 litre, V12, 453bhp;
720 NM við 3500 snúninga, en 75% af því við 1000 snúninga!!!! :shock:


Maybach 57
Price: svipað og RR
Performance: 155mph, 0-60 in 5.2 secs,
Engine: 5.5 litre, Twin Turbo V12, 550 bhp;
900 NM frá 2300 snúningum!!! :shock:

PostPosted: Wed 18. Feb 2004 11:13
by iar
Alveg ólitað af framleiðendum þá er Rollsinn miklu meiri lúxuskerra. Eflaust er Maybachinn svakalegur lúxusbíll en útlitið er bara einhver blanda af S-benz og stórum Lexus, semsagt ekkert sem tekur því að kaupa nema þá bara S-benz.

Rollsinn aftur ámóti hefur svo 100sinnum meiri "presence" (ísl?) og það stafar af honum miklu meiri tugmilljónakrónabíls andi. :-)

Og varðandi þessa hálfu sekúndu sem Maybachinn er fljótari upp í 100 þá er það ekki að mínu mati issue þegar í þennan klassa er komið, allt undir 6 sek er fínt. ;-)

PostPosted: Wed 18. Feb 2004 11:37
by Kull
iar wrote:Alveg ólitað af framleiðendum þá er Rollsinn miklu meiri lúxuskerra. Eflaust er Maybachinn svakalegur lúxusbíll en útlitið er bara einhver blanda af S-benz og stórum Lexus, semsagt ekkert sem tekur því að kaupa nema þá bara S-benz.

Rollsinn aftur ámóti hefur svo 100sinnum meiri "presence" (ísl?) og það stafar af honum miklu meiri tugmilljónakrónabíls andi. :-)

Og varðandi þessa hálfu sekúndu sem Maybachinn er fljótari upp í 100 þá er það ekki að mínu mati issue þegar í þennan klassa er komið, allt undir 6 sek er fínt. ;-)


Alveg sammála. Ekki spurning að maður myndi velja Rollsinn ef ætti að velja milli þessara tveggja.

PostPosted: Wed 18. Feb 2004 12:18
by Logi
Málið er náttúrulega það að þegar bílar kosta svona mikið, þá er það nú alveg lágmark að þeir hafi útlitið með sér. Og það hefur Maybach einfaldlega ekki að mínu mati.

Þannig að ég kýs Rolls Royce Phantom......