Page 1 of 2
Er málið að fá sér e30?

Posted:
Tue 12. Feb 2013 20:48
by shadly
Hefur lengi langað í bíl til að eiga í bílskur og getað dudndað mér í á föstudags kvöldum eða þannig;), hef verið að pæla að næla mér í eitt stikki e30, bíll sem virkar helst fornbíll, er það eitthvað sem væri alveg sniðugt að gera, eða mun þetta bara tæma á mér veskið? kannski redda mér stikki með fína lakki og vél, en verið að laga innréttinguna og bremsur eða þessar minni háttar bilanir. einhverjar reynslur? og er þetta góð hugmynd fyrir mann eins og mig sem hefur littla reinslu á bílaviðgerðum?
Re: Er málið að fá sér e30?

Posted:
Tue 12. Feb 2013 21:24
by rockstone
Ef þú hefur sterkann áhuga á e30, þá færðu þér þannig. En ef þú villt gera upp bíl og gera hann góðann, sama hvaða tegund það er, þarf oft að opna veskið soldið.
E30 í góðu standi kosta meira. Það fer bara eftir því hvað þú ert tilbúinn að gera

Re: Er málið að fá sér e30?

Posted:
Tue 12. Feb 2013 22:05
by jens
Sæll og velkominn á spjallið.
Mín reynsla er sú að það borgar sig að kaupa bíl sem er í dýrari kantinum sem þarf lítið að gera fyrir en að kaupa bíl sem er ódýr og þarnast lagfæringar og þá sérstaklega á body. E30 bílar í dag eru fáir og þeir sem eru í góðu standi eru dýrir, myndi halda að verðmiðinn væri í kringum milljón.
Ef þú hefur gaman af bílum og því sem fylgir að eiga gamlan bíl þá eru E30 skemmtilegir bílar en sjálfsagt fyrir þig að skoða líka E36 og E34.
Re: Er málið að fá sér e30?

Posted:
Wed 13. Feb 2013 00:12
by Alpina
það sem er komið fram er nokkurn veginn hárrétt,,
en aðal spurningin er ,, hversu mikið ertu tilbúinn að gefa fyrir bíl
eins og Jens bendir réttilega á,,
þá eru oft LANGBESTU kaupin í góðum bíl,,
ef þú hefur enga reynslu,, þá er það ekki sterkur leikur að kaupa ,,PROJECT að mínu mati
Re: Er málið að fá sér e30?

Posted:
Wed 13. Feb 2013 00:15
by BjarkiHS
Held að sterkasti kostur við E30 sé hvað þeir eru/voru algengir og mikið til af varahlutum sem og viðgerðarhandbókum og reynslusögum á netinu.
Spurning þó hversu margir af þeim bílum sem eru á lausu séu orðnir fornbílar.
E34 eru mikið meiri bílar og elstu árgerðirnar af þeim að detta í forbílaaldur.
Re: Er málið að fá sér e30?

Posted:
Wed 13. Feb 2013 00:20
by Alpina
BjarkiHS wrote:Held að sterkasti kostur við E30 sé hvað þeir eru/voru algengir og mikið til af varahlutum sem og viðgerðarhandbókum og reynslusögum á netinu.
Spurning þó hversu margir af þeim bílum sem eru á lausu séu orðnir fornbílar.
E34 eru mikið meiri bílar og elstu árgerðirnar af þeim að detta í forbílaaldur.
Hvort þeir eru

Re: Er málið að fá sér e30?

Posted:
Wed 13. Feb 2013 01:10
by shadly
takk fyrir allar skoðanir og ábendingar, en langar ekki í 5 línu, ekki spurning að þeir eru stærri og meira og eiða væntarlega meira og mér finnast bara e36'urnar svo andskoti ljótar :þ, langaði helst að eignast e30, þeir eru svooo laglegir

, langar líka kannski að forvittnast í leiðinni, hvernig endast þessar vélar? eða þarf maður að gera swap kringum 250þ km?
Re: Er málið að fá sér e30?

Posted:
Wed 13. Feb 2013 01:15
by BjarkiHS
BMW og MOBIL gerðu einhverntíman tilraun og "keyrðu" m20b25 yfir milljón km.
Skrúfuðu svo í sundur og mældu.. og fengu þær niðurstöður að slithlutir stæðust kröfur sem gerðar voru til ónotaðra hluta.
Þannig að ending snýst ALGERLEGA um viðhald og meðferð.
Re: Er málið að fá sér e30?

Posted:
Wed 13. Feb 2013 09:19
by shadly
BjarkiHS wrote:BMW og MOBIL gerðu einhverntíman tilraun og "keyrðu" m20b25 yfir milljón km.
Skrúfuðu svo í sundur og mældu.. og fengu þær niðurstöður að slithlutir stæðust kröfur sem gerðar voru til ónotaðra hluta.
Þannig að ending snýst ALGERLEGA um viðhald og meðferð.
já, sá þetta myndband fyrir einhverju síðan, það voru 1 milljón míla ef ég man rétt

sem gera í raun 1,6milljón km

Re: Er málið að fá sér e30?

Posted:
Tue 26. Feb 2013 21:31
by Bjarkig
ég er búinn að vera í svipuðum pælingum með e30 en hef engann fundið til sölu og fékk þar að auki ekkert svar í "óska eftir e30" með tæpann milljónkall í boði...
hvaða bíla eruð þið eiginlega að tala um í tengslum við e30 sem eru fáanlegir??

Re: Er málið að fá sér e30?

Posted:
Tue 26. Feb 2013 22:16
by Alpina
Bjarkig wrote:ég er búinn að vera í svipuðum pælingum með e30 en hef engann fundið til sölu og fékk þar að auki ekkert svar í
"óska eftir e30" með tæpann milljónkall í boði...
hvaða bíla eruð þið eiginlega að tala um í tengslum við e30 sem eru fáanlegir??

Það ætti nú eitthvað að vera til ,, ef kúla er í boði !!
Re: Er málið að fá sér e30?

Posted:
Tue 26. Feb 2013 22:19
by Angelic0-
E34 > E30.. any f*cking time

Re: Er málið að fá sér e30?

Posted:
Wed 27. Feb 2013 01:07
by Yellow
Ég var með sömu pælingar fyrir ári síðan,,, búinn að bjóða í nokkra og var rosa spenntur fyrir að eignast E30,,,
Svo þegar hlutinir byrjuðu að breytast hjá mér og ég ekki getað fjárfest í E30,,
Það urðu nokkrir pirraðir útí mig útaf því ég var alltof spenntur í þessu.
Re: Er málið að fá sér e30?

Posted:
Wed 27. Feb 2013 02:06
by srr
Þið sem viljið E30 og eigið nóg af peningum.
Fljúga beinustu leið til Þýzkalands og upp með veskið

Re: Er málið að fá sér e30?

Posted:
Wed 27. Feb 2013 02:47
by íbbi_
finnst menn nú dáldið grófir, heyri alltaf kastað fram milljón strax fyrir sæmilegan E30. mér finnst þeir E30 sem ég hef séð á því verði og yfir vera eitthvað aðeins meira en "nokkuð góðir" yfirleitt bílar sem er búið að moka vinnu og peningum í.
svo er nú annað mál að maður hefur nú ekki sé neitt gríðarlega hreyfingu á þessum bílum heldur.