bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Hvað startað þínum áhuga??
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=59992
Page 1 of 3

Author:  Stefan325i [ Sun 10. Feb 2013 03:19 ]
Post subject:  Hvað startað þínum áhuga??

Gaman að sjá hvað fólk hefur að segja.
Ég hef verið með ólæknandi bíladellu alla tíð og var þekkti bíltegundir um það leiti sem ég byjaði að tala.

Bmw varð það sem vann þetta hjá mér og ég var að hugsa afhverju.

1. Pabbi og mamma kaupa nýjan 318i E21 árið 1982 ég 3 ára og áttu til 1987, Gyltur með brúnni innréttingu og ég man að ég grét þegar pabbi seldi hann fyrir 244 Volvo sem hann hataði allan þann tíma sem hann átti hann.
2. Labbaði alltaf framhjá E36 4 dyra svörtum heim úr skóla þegar ég var 12-15 ára bílliin var nýr og og stoppaði oft og gat ég horft á hann endalaust.
3. IZ011 var á sölu í Kef og var jafnaldri minn sem keypti hann, 325i E30 leður lúga læst dirf og var ótrúlega fallegur og mjög dýr.
4.PI019 318is ég prufða þennan bíl í kef þegar hann var á sölu þar ég nýkominn með bílpóf , ekinn 37þ mílur eða um 60þ km. þvílíki unaðurinn að keyra bílinn og krafturinn í minninguni var gífulegur.
5.MJ877 Prufaði ég hann þegar hann var á sölu í kef, ég þá sennilega 17-18 ára, BBS RS sem maður vissi ekki hvað var á þessum tima. Þessi bíll var geðveikur og er sennilega einn af mínum uppáhalds BMW bílum hér á landi enn þann dag í dag.
Ég eingast svo minn fyrsta BMW 18 ára

Hvernig var þetta hjá þér.

Author:  Danni [ Sun 10. Feb 2013 08:56 ]
Post subject:  Re: Hvað startað þínum áhuga??

Það er sama sagan með ólæknandi bíladellu hjá mér. Systir mömmu sagði einmitt sögur af því að þegar hún fór með mömmu í bæinn og ég var með þá var ég að þylja upp bíltegundirnar sem við mættum, en á sama tíma var ég varla byrjaður á tala. Ég man að sjálfsögðu ekkert eftir þessu, enda einhverstaðar á milli tveggja og þriggja ára gamall miðað við sögurnar.

Annars veit ég ekki hvers vegna ég hafði svona mikinn áhuga á bílum. Enginn í fjölskyldunni minni hefur þetta áhugamál. Foreldrar mínir áttu bara óspennandi bíla, tvo Daihatsu Charade í röð, Nissan/Datsun Sunny Station. Síðan tjónaðist Nissaninn og þau keyptu sér Ford Sierru. Mér fannst það geggjaður bíll. Hann var ekki station, með spoiler og manual topplúgu. Líka fyrsti nýji bíllinn sem þau keyptu, en þau keyptu Sunnyinn 1990, ég aðeins 3 ára gamall svo það var eini bíllinn sem ég þekkti þangað til Sierran kom. Síðan eyddi Sierran of mikið svo þau keyptu sér annan station bíl, nýjan '97 Opel Astra 1.2, sem var ekki nógu öflugur fyrir brautina svo þau uppfærðu í '98 Opel Vectru 1.6 og það var bíllinn sem þau átti þegar ég fékk bílpróf.

Fyrsti bíllinn minn var síðan Mitsubishi Colt 1.3 blöndungs. Setti eflaust heimsmet í fyrstu bíla ást en það var bara flottasti bíll landsins í mínum augum þegar ég var 17 ára. Ég vissi ekki einusinni hvort hann var 3 eða 4 cylindra þegar ég var spurður að því. Átti síðan fullt af Coltum af öllum stærðum og gerðum, þar á meðal tvo af þrem 1.8 GTi bílum sem voru eftir á landinu.

En á þessum fyrstu tvem árum sem ég var með bílpróf og var með Mitsubishi delluna þá voru þrír BMW-ar í Keflavík sem að ég hafði augastað á.

1. E34 520i 1995. SSK M50TUB25, ljósblár með breiðum framenda og sílsaplöstum. Ekinn 300þús árið 2004, 9 ára gamall. Strákur sem heitir Siggi sem átti hann. Það var fyrsti BMW-inn sem ég keyrði og sat í og varð til þess að ég kolféll fyrir BMW.
2. E34 525i með einkanúmerið IBSEN. Sá þennan mjög oft, eldri maður á honum. Er beinskiptur 525i M50TU. Er til sölu hérna á Kraftinum í dag.
3. E32 735iA sem Arnar ömmudriver á ennþá í dag, bara orðinn bsk núna.

Ég fylgdist vel með BMW-um til sölu eftir að dást að þessum þrem og endaði síðan á að kaupa minn fyrsta BMW, '94 E34 525iA OZ-390, í desember '05, 18 ára gamall og hef átt að minnsta kosti 1 BMW síðan þá.

Það tók mig 6 ár að finna rétta BMW-inn fyrir mig. Eignaðist 540-inn í ágúst 2011 og eins og staðan er í dag þá þarf eitthvað mikið að gerast til þess að ég láti hann frá mér.

Author:  gstuning [ Sun 10. Feb 2013 09:32 ]
Post subject:  Re: Hvað startað þínum áhuga??

Einfalt Stefán.

Þú hafðir bílaáhuga, við héngum alltaf samann, ég fékk bílaáhuga. Og núna er ég fluttur úr landi þökk sé þér.......... :lol:

Author:  Emil Örn [ Sun 10. Feb 2013 12:44 ]
Post subject:  Re: Hvað startað þínum áhuga??

Í stuttu máli:
- Gat nefnt alla helstu bílana þegar ég var svona 4 ára. Elst upp með bíla í kringum mig.
- Stóri bróðir minn og pabbi miklir bílakarlar, brósi átt yfir 40 Mustang og pabbi sífellt skiptandi um bíla.
- Bíladellan kikkar inn af krafti eftir Bíladaga 2009 (minnir mig).
- Byrja að taka myndir og heldur það dellunni við.
- Fæ BMW dellu útfrá driftbrautinni (trúlegasta útskýringin, annars er dellan uppúr þurru.)
- Kaupi BMW og á frá nóv '11 - maí '12.
- Kaupi svo Mustang 2. feb '13.

Ég fæ bílpróf 2. júlí á þessu ári.

Author:  íbbi_ [ Sun 10. Feb 2013 13:36 ]
Post subject:  Re: Hvað startað þínum áhuga??

hef aldrei verið öðruvísi... var þekktur sem krakkinn sem vissi allt um bíla og fékk ekki frið frá fullorðnu fólki úti á götu,


bmw dellu fékk ég um 17 ára aldurinn, og það voru E32 og E38 sérstaklega sem náðu mér

Author:  srr [ Sun 10. Feb 2013 14:16 ]
Post subject:  Re: Hvað startað þínum áhuga??

Allt bróður mínum að kenna :argh:

Ég náði að vera í BMW afneitun í 5 ár,,,,,á þeim tíma átti ég 15 stk af allskonar Mözdu 323F bílum :lol:
Svo var ekki aftur snúið eftir að ég verslaði fyrsta E28 (sem var líka fyrsti bmw'inn minn), af Gunna formanni.

Síðan þá eru liðin 7 ár og á þeim tíma hef ég átt (og rifið líka) um 30 bmw'a.

Helsti áhuginn liggur eins og í upphafi á E28, E23 og E24.
Er núna kominn með 2 boddý af 3 af óskalistanum :thup:

Author:  Bandit79 [ Sun 10. Feb 2013 14:20 ]
Post subject:  Re: Hvað startað þínum áhuga??

Pabbi minn var jeppakall (Scout,Bronco og allt það)
Endalausar jeppaferðir um allt landið

Ekki annað hægt en að fá delluna þegar maður er alinn upp við svona 8)

Author:  Alpina [ Sun 10. Feb 2013 14:23 ]
Post subject:  Re: Hvað startað þínum áhuga??

Sem ponni í Odense .. orðinn 3 ára gamall,,, þekkti ég ALLA bíla.. RATAÐI allstaðar,, sagði foreldrum mínum hvar ætti að beygja í Kaupmannahöfn... datidens GPS :mrgreen: ((án djóks)),, og hef mjög gott minni ef satt skal segja frá..
elska eitthvað sem er fræðandi og menningarlegt 8) 8)

Fékk bensín í æð eftir slys ,, var ekkert blóð til á spítalanum,, en bensín í brúsa var dælt í misgripum..,,,, hef fáránlegann áhuga á bílum,, mótorsporti og RACE,,

enginn í fjölskyldunni er svona,,,,,,, ENGINN,,


ps,,,,,,,, Ég hef MJÖG mikinn áhuga á andlegum málefnum,, og þeir sem trúa ekki slíku skulu hætta hér með að lesa lengra..







eitt skipti er ég var hjá miðli ,,og vantaði ákveðnar upplýsingar ((sem ég fékk)) ,, ákvað ég að spurja um þennann fásinnu Kappakstur og bíla áhuga,, svarið var vægast sagt scary,,

Ég sé þig með kappaksturshjálm .. Í þýskalandi ,, en næ ekki að greina hvar,, en þetta er um ca miðja síðustu öld,,,

STOPP STOPP sagði ég,, mig langar ekki að vita meira :shock:

trúi nú hver sem vill 8)

Author:  Joibs [ Sun 10. Feb 2013 14:23 ]
Post subject:  Re: Hvað startað þínum áhuga??

hef þannig séð alltaf verið mikill bíla áhuga maður og veit svosem ekki hvaðan það kom en hér er að minstakosti sagan af því hvernig ég féll fyrir bmw :mrgreen:

eftir fermingu ákvað ég að kaupa mér bíl fyrir meirihlutann af peningnum
á þeim tíma var þessi need for speed fílingur í gangi þannig ég byrjaði á að skoða t.d. galant, eclips og fleiri bíla sem looka rosalega sport og grimmir, planið var síðan að eiða þessum árum sem maður var ekki með bílpróf að gera hann bílinn flottann og setja alskonar aukahluti í hann sem í dag er bara ljótt drasl í huganum á manni
eftir að ég var búinn að skoða í þónokkurn tíma þá fann ég rauðan bmw e36 á live2cruze (eina bíla síðan sem maður þekti þá)
mig minnir að hann hafi verið 325 eða 320 en hann var hrikalega flottur og á mjög góðu verði!
ég fékk afa minn til að koma með mér að skoða hann því pabbi hafði á þessum tíma svipaða kunnátu og ég þegar kom að bílum og hvernig allt virkar tenkt þeim (þetta var rétt fyrir sumar í 9.bekk)
eftir að hafa skoðað hann og gjörsamlega fallið fyrir útlitinu kom nánast ekkert annað til greina en bmw eftir það kintist ég bmw krafti, þetta varð svona svipað og þegar maður ímindar sér fíkil, hann kinnist efninu og fílar það en fellur ekkert endilega strax í grifjuna en síðan kinnist hann sala og annað hvort verður það hanns lífstíðar dómur eða að hann nær að grafa sig úr gröfini
eftir að hafa skoðað nokra e36, e30, e32 og e28 sem voru allir á verði sem ég gat greitt fann ég silfurlitaðan e32 730ia sem var í hrikalega góðu ástandi og fékk hann á klink, get vel sagt að þetta voru bestu kaup sem ég hef gert hingað til að mínu mati eina sem var að honum var að cruzecontrole náði ekki að halda jafnri ingjöf og einn demparinn var að fara og fann maður það ef maður fór aðeins of hratt á hraðahindranir en lakið leðrið og vélin voru í hrikalega góðu ástandi
þetta var í byrjun 10. bekkjar ég átti öruglega bílinn í mánuð og þá lenti ég í smá tjóni (þá voru minnir mig 4 mánuðir í bílprófið) braut stuðarann, olíupönnuna, og gerði gat á eithverjar leiðsur, eftir það var ég gjörsamlega "heartbroken" þetta var eins og þegar það þarf að losasig við heimilisdýr sem maður er búinn að tengjast alveg hrikalega, þannig ég stefnti á að ná honum aftur á götuna og gera það alminilega vélinn fór úr bílnum og inní bílskúr, var það hepinn að fyrri eigandi sem var þá fluttur út, sendi mér email um það að hann hafði gleimt að láta mig fá auka olíupönnu sem hann átti, þetta var eins og boð frá guði að ég ætti að koma vélini í gott stand aftur
ég reif vélina nánast alla í sundur hreinsaði og málaði, pabbi gamli klóraði sér bara í hausnum og skildi ekkert hvernig 15ára srákurinn hanns færi að því að púsla þessu aftur saman vélinn var tilbúin á fyrstu önn í framhaldskóla

before:

Image

after:

Image

Image

Image

vélin fór í en ég kláraði aldrei að tengja hana og vantaði bíl fyrir skólann, þannig ég keifti mér e36 318is og seldi projectið fyrir 325is sem ég fékk fyrir slétt skifti
það var rosa erfirt að láta hann frá sér en mér skilst að hann hafi farið í góðar hendur, kengur eins og draumur og er verið að riðbæta gólfið þannig ég er hæst ánægður með skiftin
vona síðan bara að maður sjá hann á götuni fljótlega og kanski fái hann aftur í framtíðini :thup:

Author:  SteiniDJ [ Sun 10. Feb 2013 18:28 ]
Post subject:  Re: Hvað startað þínum áhuga??

Ég hafði engan áhuga á bílum þegar ég var yngri. Var mikið meira í tölvum og flugvélum. Svo þegar það kom að því að velja ökukennara, þá varð BMW X3 fyrir valinu. Þrátt fyrir að vera ekki meiri bíll en það þá fékk ég strax áhuga á þessum bílum og fór að skoða markaðinn. Stuttu síðar kaupir pabbi sér sinn fyrsta BMW og síðan þá hafa verið 10 BMW á heimilinu og eru 5 af þeim þar ennþá. Þá varð maður alveg seldur og hef ég ekki snúið við síðan þá. Hef farið í eina pílagrímaferð til Þýskalands og maður er alltaf eitthvað að skoða.

Er samt einn af þeim gaukum sem hefur lítinn áhuga á mechanical (þ.e. viðgerðir, swap og breytingar) hliðinni á bílum. Get ekki fyrir mitt litla líf hert bolta án þess að skemma pústkerfið eða eitthvað álíka fáranlegt, þannig ég skoða, kaupi, keyri og nýt þess og leyfi betri mönnum að sjá um mechanical þáttinn. :mrgreen:

Author:  BMW_Owner [ Sun 10. Feb 2013 19:21 ]
Post subject:  Re: Hvað startað þínum áhuga??

Ég fékk bílaáhugann þegar ég var mjög ungur en BMW dótið kom þegar ég var 13 ára (árið 2000) en þá keypti gamli BMW 750IL 1988 og þetta var það flottasta sem ég hafði séð og setti mér markmið að ég ætlaði að eignast þennan bíl í framtíðinni,
en ég hafði nátturulega ekki efni á að kaupa hann af honum á þeim tíma og þannig hann var seldur.
en fyrsti bílinn minn var 316i 1992 sem ég keypti 15 ára og þetta var hörkuflottur bíll en eftir að hafa gert hann gjörsamlega upp þá var ekki aftur snúið síðan þá hef ég átt M5 og haug af benzum en ekkert hefur jafnast á við 750 bílinn. En núna 12árum eftir að gamli seldi bílinn þá fann ég hann í mjög döpru ástandi og eftir að hafa Mokað í hann peningum og varahlutum sem ég átti sem betur fer mest til af þá er hann 90% í því ástandi/útliti sem ég vill hafa hann í. þetta fyrir mér er sá bmw toppur sem ég vildi ná. :thup:

Author:  olinn [ Sun 10. Feb 2013 19:31 ]
Post subject:  Re: Hvað startað þínum áhuga??

Var alltaf bílaáhugamaður þegar ég var trítill, alltaf að keppast við að læra allar tegudir í umferðinni með foreldrunum.
Svo þegar ég var í grunnskóla var ég skotinn í stelpu sem sýndi mér svartann e32 750iL(Minnir að það hafi verið SR-317) sem henni langaði í og auðvitað langaði mig í hann líka :lol:
Þar byrjaði ég að skoða bmwkraft og live2cruize á fullu og skráðu mig nokkrum árum seinna til að leyta mér af bíl.
Byrjaði á litlum druslum en endaði svo á (raunhæft)drauma bmw bílnum, Rauðum E36 coupe.
Hef aldrei verið mikið við það að gera við sjálfur, bara skipta um bremsuklossa og því líkt.
En Tók mig svo til um daginn og skipti um kúplingu í 25 ára gamallri 4wd toyotu sem tók um um 2 og hálfa viku :roll: (með háskóla)

Author:  Angelic0- [ Sun 10. Feb 2013 21:10 ]
Post subject:  Re: Hvað startað þínum áhuga??

Bílaáhuginn hefur verið frá unga aldri, 2-4ára gat ég nefnt flestar ef ekki allar tegundir á nafn og ekki einungis Mitsubishi eða Toyota heldur undirtegundir líka...

Sem ungur krakki var maður oft hangsandi um með eldri frændum sínum, og bar þar mest af Garðar nokkur frændi minn sem að átti í þá tíð alveg dobíu af E21 bílum og seinna E30... Þetta voru mín fyrstu BMW kynni, en lengst af var maður MMC eða Nissan hneta og vildi ekkert annað en 4G63T, 6G72TT og SR20DET... drauma stuff sem að manni finnst bara vera drasl í dag...

Eignaðist fyrsta bílinn, Chevrolet Malibu 1978... var aldrei gangfær í minni eigu, síðan braskaði maður sig upp í Sunny GTi, sem að ég eignaðist 15ára og næst af var það 1.4 Golf, Audi TT, MMC 3000GT og alls kyns dót.... svo fékk maður BMW vírusinn aftur þegar að Hannsi grýtti í mig lyklum af E30 og sagði mér að hirða hann.... lasinn var hann en í gang fór hann, og þá var ekki aftur snúið... eignaðist fljótlega í kjölfarið af þessu E39 523i (UU454) og gerði hann snyrtilegan og fínan, endaði á að swappa í hann M5 krami and the story goes on and on....

búinn að eiga óteljandi BMW til eignar og niðurrifs síðan þá...

Finnst mér þó bera af RO119 og OT549, en það eru klárlega bæði bestu og skemmtilegustu BMW sem að ég hef átt...

E39 M5 er t.d. EKKERT í líkingu við E34 M5.... hvað akstur og tilfinningu varðar, og má þess geta að E34 M5 3.6 er að vinna mjög svipað og E39 M5 upp að vissu marki, 0-150... nánast hnífjafnt... með Bilstein / H&R fjöðrun eru svona E34 DER KÖNIG !!!

Þannig að það má segja að ég hafi fengið vírusinn frá Gæa frænda og svo auðvitað Hannesi... þetta er líka eins og AIDS þetta helvíti, maður losnar ekkert við þetta... reyndi Mercedes nokkur skipti til að komast eitthvað aðeins frá þessari BMW dellu, því að þetta var orðin einskonar þráhyggja en það eru mestu mistök í heimi... MB er JUNK !

Author:  Mazi! [ Mon 11. Feb 2013 13:44 ]
Post subject:  Re: Hvað startað þínum áhuga??

Ég fæ bíladelluna frá frænda mínum Atla (@li e30 á spjallinu)

Hann átti e30 325i HÖ-962 árið 2004 þá var ég 12 ára og var oft tekinn hring á honum auk þess að Atli dundaði mikið útí skúr í þessu hjá Ömmu og Afa þarsem ég fylgdist vel með öllu

svo tjónast HÖ-962 þá kaupir hann XF-436 sem var 318is bíll og færir kramið úr HÖ-962 yfir í hann, seinna eignast frændi svo E34 M5 3.6 það fannst mér alveg hellað dót og eftir að hafa verið í kringum allt þetta þráði ég ekkert meira en að eignast BMW

og ég eignast minn fyrsta BMW loksins þegar ég er 15 ára sem var e30 316i KR-498 og hef ekki hætt þessari vitleysu síðan

kynnist svo hondunum þegar ég er 19 ára og þær loða aðeins við mig líka :mrgreen:

Author:  Raggi M5 [ Mon 11. Feb 2013 17:19 ]
Post subject:  Re: Hvað startað þínum áhuga??

ég hef alla tíð verið með bíladellu. Ég varð heillaður af BMW fyrst fyrir alvöru þegar ég sá JJ-017 ansi oft á rúntinum í kef, BMW 325i LORENZ, þetta var í kringum 97-98 held ég. Og mikið djöfulli var þetta flottur bíll í alla staði! Svo eignaðist Gunni hann hérna á kraftinum.
Svo var ekki aftur snúið þegar ég sá NV-097 (E34 M5) á sölu og ég keypti hann 18 ára gamall gutti 8)

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/