Page 1 of 3

Ljósmyndir af BMW á Íslandi

PostPosted: Thu 17. Jan 2013 13:03
by Motor og Sport
Komið sælir.

Tímaritið Mótor & Sport sem kemur út nú í Febrúar, verður með stóra og ítarlega grein um BMW M/// bílana.

Okkur vantar tilfinnanlega ljósmyndir af "Íslenskum" BMW M/// bílum eða svipuðum bílum.
Það er okkar stefna að vera með eins mikið af Íslensku efni og við mögulega getum og á það sérstaklega við um myndir með greinum eins og þessari.

Þetta er gert til að sýna þá flóru af tækjum sem er til hér á landi og auka þar með áhuga fólks á öllum þessum tækjum.

Þeir sem kynnu að eiga myndir af svona græjum eða eru í því að taka bílamyndir og eru til í að leyfa okkur að njóta þeirra endilega hafið samband við Mótor & Sport.

Bestu kveðjur.
Team Mótor & Sport:
Hálfdán Sigurjónsson.
Símar: 897-1429/564-2811/772-0429(Nova)
E-mail: halfdan@motorogsport.is eða motorogsport@motorogsport.is

Re: Ljósmyndir af BMW á Íslandi

PostPosted: Thu 17. Jan 2013 13:19
by jens
Frábært framtak :thup:
Hefur lengi vantað blað sem gerir greinar um Íslenska bíla og bílasport líkt og kom stundum í gamla Samúel.
Skrái mig klárlega í áskrift ef þetta lítur vel út.

Re: Ljósmyndir af BMW á Íslandi

PostPosted: Thu 17. Jan 2013 14:00
by odinn88
jens wrote:Frábært framtak :thup:
Hefur lengi vantað blað sem gerir greinar um Íslenska bíla og bílasport líkt og kom stundum í gamla Samúel.
Skrái mig klárlega í áskrift ef þetta lítur vel út.


er alveg sammála jens í thessu og eg mun skrá mig í áskrift af bílar og sport blaðinu

Re: Ljósmyndir af BMW á Íslandi

PostPosted: Thu 17. Jan 2013 14:03
by Motor og Sport
Komið sælir.

Mótor & Sport kom fyrst út í Nvember 2012 og annað tölublað kom síðan í Desember sama ár.
Nú var staðan hinns vegar sú að við ákváðum að steypa Janúar og Febrúar blöðunum 2013 saman í eitt þar sem dagsettningr um jól og áramót voru að gera okkur lífi leitt og auglýsngaöflun var erfið á þessum tíma.
Ég vil mynna á að án auglýsinga er ekkert blað gefi út, þar sem auglýsingar eru okkar einu tekjur!

Mótor & Sport er fríblað þannig að það er bara að fara út á næstur Shell eða Olís stöð ásamt mörgum öðrum stöðum og næla sér í eintak.
Þá má líka fara inn á http://www.motorogsport.is og skoða blaðið ar í pdf formi þannig að engrar áskriftar er þörf Mótor & Sport er ókeypis!!

En okkur vantar myndir af BMW fyrir þessa grein sem hann Sveinbjörn skrifaði fyrir okkur.

Þá er líka gott aðkoma því fram að okkur vantar góðann auglýsingasala til að selja auglýsingar í blaðið, 25% sölulaun í boði!

Bestu kveðjur.
Team Mótor & Sport:
Hálfdán Sigurjónsson.
Símar: 897-1429/564-2811/772-0429(Nova)
E-mail: halfdan@motorogsport.is eða motorogsport@motorogsport.is

Re: Ljósmyndir af BMW á Íslandi

PostPosted: Thu 31. Jan 2013 20:25
by bubbim3
Ætli minn m3 fái aðgang í blaðið :?:

Re: Ljósmyndir af BMW á Íslandi

PostPosted: Thu 31. Jan 2013 20:38
by Alpina
bubbim3 wrote:Ætli minn m3 fái aðgang í blaðið :?:

Afhverju .. afhverju ekki ??

Re: Ljósmyndir af BMW á Íslandi

PostPosted: Thu 31. Jan 2013 22:19
by bubbim3
eg dældi i hann myndum ;)

Re: Ljósmyndir af BMW á Íslandi

PostPosted: Fri 01. Feb 2013 21:55
by Aron Andrew
Besti myndagagnagrunnurinn yfir íslenska bíla og mótorsport er klárlega í tölvunni hjá Sæma BOOM

Re: Ljósmyndir af BMW á Íslandi

PostPosted: Sat 02. Feb 2013 11:14
by Alpina
Aron Andrew wrote:Besti myndagagnagrunnurinn yfir íslenska bíla og mótorsport er klárlega í tölvunni hjá Sæma BOOM


Allavega mikið magn

Re: Ljósmyndir af BMW á Íslandi

PostPosted: Sun 03. Feb 2013 20:45
by Raggi M5
Væru ekki ONNO og ALPINA tilvaldir í svona dæmi.....

Re: Ljósmyndir af BMW á Íslandi

PostPosted: Wed 06. Feb 2013 19:03
by bjarni-m5
ég sendi á hann nokkrar af mínum gamla (OU-696)

Re: Ljósmyndir af BMW á Íslandi

PostPosted: Wed 06. Feb 2013 19:16
by Alpina
Raggi M5 wrote:Væru ekki ONNO og ALPINA tilvaldir í svona dæmi.....


Ég kann ekkert á myndir,,,,,,,,, bara texta :lol:

Re: Ljósmyndir af BMW á Íslandi

PostPosted: Sat 09. Feb 2013 18:14
by Alpina
Hmmm,, það vantaði slatta af myndum :?

Re: Ljósmyndir af BMW á Íslandi

PostPosted: Sun 10. Feb 2013 20:15
by Erica
en greinin sjálf var verulega góð og skemmtileg.. æðisleg lesning

Re: Ljósmyndir af BMW á Íslandi

PostPosted: Sun 10. Feb 2013 20:45
by Alpina
Rauði E36 bíllinn,,,,, hvaða bíll er það ??