Angel Eyes í 2004 520i E60

Hér skal spjalla um BMW.

Angel Eyes í 2004 520i E60

Postby davidarnar » Wed 05. Dec 2012 16:43

Sælir, er algjör nýgræðingur í flestu sem tengist ljósum og ljósabúnaði svo mig langar að leggja fram nokkrar spurningar.
Mig langar til þess að fá mér hvítt angel eyes í E60 bílinn minn, þar sem að ég er með að ég held original ljósin sem eru
gul og er farið öðru megin.

Hvað þarf ég að spá varðandi kaup á þessum perum og er ekki ódýrara að kaupa þær á netinu?

Hvernig lýta þær út og á ég að spá í vöttunum í perunum og allt svoleiðis?

Eru þær löglegar eða þarf ég að hafa gulu til þess að komast í gegnum skoðun?

Eru t.d. þessar í lagi?
http://www.ebay.com/itm/BMW-E39-E53-E60 ... 96&vxp=mtr

önnur mynd: Image

Eitthvað las ég svo til um að sumir bílar væru með einhverjar perur sem kallast H8 og ofangreindar perur virka ekki í þá bíla!
Hvað á maður að gera?

Kveðja Davíð Arnar
davidarnar
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 2
Joined: Tue 28. Feb 2012 14:31

Re: Angel Eyes í 2004 520i E60

Postby IceDev » Wed 05. Dec 2012 18:35

Ekki taka blátt, það er rosalega sjoppulegt.

Ég keypti hvítt svona í minn E39 og það kom bara hörkuvel út.
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Re: Angel Eyes í 2004 520i E60

Postby Hreiðar » Sun 09. Dec 2012 13:41

Keyptu hvítar, kemur lang best út. Setti svona í fyrir stjúppabba minn um daginn. Hann er með X5 e70 og þessar sem þú ert með á mynd passaði ekki í hann þannig ég þurfti að kaupa aðrar http://www.popnow-hid.com/pimg2/10/993_1_250.jpg sem looka svona. Ég held að þær séu líka fyrir E60. Þetta á held ég að vera til hjá tækni bifreid (www.bifreid.is) í Hafnarfirði. Kostar um 15 þús kr, færð svo afslátt ef þú ert meðlimur ;)

Mundu bara ef að þú kaupir þetta hjá þeim að lesa vel á boxið hvort þetta passar í E60, það stendur á hliðinni gerðirnar sem þetta passar í. Svo fer þetta bara þar sem háuljósaperurnar eru. Easy plug n play ;)
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10

Re: Angel Eyes í 2004 520i E60

Postby davidarnar » Thu 13. Dec 2012 23:44

Takk fyrir svarið, ég ætla einmitt að fá mér hvítar perur.
Það var einfaldlega tilviljun að á myndinni sem ég setti inn hafi staðið bláar.
En veistu hver getur hjálpað til við ísetningu þessara pera? Gera þeir það kannski hjá Bifreid.is?
Reyndi að taka ljósið út sjálfur um daginn en vantaði sérstakan sexkant til þess að ná skrúfu sem
er niðri og á bakvið ljósið sem getur verið erfitt að komast að.
Kveðja Davíð
davidarnar
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 2
Joined: Tue 28. Feb 2012 14:31

Re: Angel Eyes í 2004 520i E60

Postby slapi » Fri 14. Dec 2012 07:15

Það er hægt að setja þetta í án þess að taka ljósið úr
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 38 guests