Page 1 of 1
Lækkun á bíl

Posted:
Sat 13. Oct 2012 16:44
by Gudni85
Sælir ég er með e46 sem er lækkaður aðeins með gormum hef verið að skoða að fá mér coilovers en er samt ekki viss því að keyra bílinn nuna er skelfilegt bara allt of stífur og eiginlega eingin fjöðrun.
Eru coiloverkerfin líka sona svaðalega stíf eða verður eh betra keyra bílinn?
Þetta er kerfið sem ég er að spá í
http://www.racelandus.com/coilovers/bmw-coilover-kits/bmw-e46-ultimo-coilovers.html
Re: Lækkun á bíl

Posted:
Sat 13. Oct 2012 21:35
by BirkirB
Það er betra að vera með gorma og dempara sem eru gerð fyrir lækkun heldur en bara lækkunargorma og orginal dempara.
Prófaði hondu civic á coilovers, eitthvað ódýrt stöff eins og annar hver maður virðist vera með... Fannst það bara bouncy drasl miðað við kw gormana og demparana sem ég var með í bmw e36. Kannski ekki góð viðmiðun en allavega mæli ég ekki með cheapo coilovers frá þessari reynslu....
Re: Lækkun á bíl

Posted:
Tue 16. Oct 2012 12:37
by bjarkibje
ef þú ætlar í coils fyrir lítinn pening þá verðuru bara venjast þessu
Re: Lækkun á bíl

Posted:
Tue 16. Oct 2012 14:58
by íbbi_
mæli með gormum og réttum dempurum fyrir þá.
coilovers eru flottur búnaður, en alvöru coil's kosta líka slatta. og þá meina ég alveg góðan slatta. flest öll coilovers sem ég hef prufað í bílum hérna heima hafa verið hörmuleg, bílarnir hoppandi og skoppandi og leiðinlegir í akstri, en það er í beinu saamhengi við verðflokkin sem menn hafa verið duglegastir í
Re: Lækkun á bíl

Posted:
Tue 16. Oct 2012 21:05
by Gudni85
Hverju myndiru mæla með langar ekki að hækk bílinn en vill hann sé fínn að keyra. Er ég kannski bara byðja um tvo hluti sem fara ekki vel saman hehe s.s lækkun og ekki eins og hestvagn?
Re: Lækkun á bíl

Posted:
Tue 16. Oct 2012 21:42
by Axel Jóhann
Nei alls ekki, ég er með lækkunargorma og lækkunardempara í mínum og hann er draumur í dós, vél stífur en ekki hastur. Bara velja rétta dótið.
Re: Lækkun á bíl

Posted:
Wed 17. Oct 2012 11:23
by Jón Ragnar
Minn er á lækkunargormum og dempurum frá H&R
Sérð á undirskriftini minni hvað hann er lár