Page 1 of 2

hverskonar myndatökur eru þetta í dag????

PostPosted: Sun 26. Aug 2012 19:28
by x5power
hverskonar myndatökur eru þetta í dag????
menn eru að taka myndir af bílum sínum til að sýna hvað
þeir eru flottir, eða verið að selja, og það er ógerandi að
sjá hvernig bílarnir líta ut, útaf svo dökkum myndum og bjánalegu angle!
hvað eru menn að fela svona mikið????

Re: hverskonar myndatökur eru þetta í dag????

PostPosted: Sun 26. Aug 2012 19:34
by bimmer
meiri effektar = betri myndir.

Þetta virðist vera skoðun ansi margra í dag.

Re: hverskonar myndatökur eru þetta í dag????

PostPosted: Mon 27. Aug 2012 00:10
by MR.BOOM
Þetta mega cool.....Þetta eru allt gaurar sem ég hef verið með í kennslu í hvernig á að taka cool sölumyndir :thup:

Re: hverskonar myndatökur eru þetta í dag????

PostPosted: Mon 27. Aug 2012 00:34
by Emil Örn
Ég verð að viðurkenna að ég á örlítið erfitt með að túlka þennan þráð, tvennt sem ég get lesið úr þessu;

- Að við bílaljósmyndararnir séum að taka asnalegar myndir og komnir út í of mikið "arty-farty" dót og bílarnir að missa marks.

- Að sölumyndir hjá fólki séu svo lélegar og sýni manni ekki neitt.


Er einhver leið að fá betri útskýringu?

(Engin vonska að baki, ég á í alvöru erfitt með að túlka þetta.)

Re: hverskonar myndatökur eru þetta í dag????

PostPosted: Mon 27. Aug 2012 00:58
by x5power
MR.BOOM wrote:Þetta mega cool.....Þetta eru allt gaurar sem ég hef verið með í kennslu í hvernig á að taka cool sölumyndir :thup:

það er ekkert mál að útskýra þetta!
það er verið að taka myndir af bílunum í svo miklum effektum
að raunverulegt útlit bílsins sést ekki! svo það er bara
verið að feika myndirnar!
og þetta er ekkert grín þegar menn eru kannski að fara
að versla bíl eftir glæsilegar myndir, og komast svo að
öðru þegar maður sér hann með berum augum!

Re: hverskonar myndatökur eru þetta í dag????

PostPosted: Mon 27. Aug 2012 02:07
by srr
x5power wrote:
MR.BOOM wrote:Þetta mega cool.....Þetta eru allt gaurar sem ég hef verið með í kennslu í hvernig á að taka cool sölumyndir :thup:

það er ekkert mál að útskýra þetta!
það er verið að taka myndir af bílunum í svo miklum effektum
að raunverulegt útlit bílsins sést ekki! svo það er bara
verið að feika myndirnar!
og þetta er ekkert grín þegar menn eru kannski að fara
að versla bíl eftir glæsilegar myndir, og komast svo að
öðru þegar maður sér hann með berum augum!

Varstu að versla bíl blint? :lol:

Re: hverskonar myndatökur eru þetta í dag????

PostPosted: Mon 27. Aug 2012 09:03
by x5power
hehe nei sem betur fer ekki!

Re: hverskonar myndatökur eru þetta í dag????

PostPosted: Mon 27. Aug 2012 10:25
by íbbi_
er alveg sammála þessu.

er mjög hrifinn af myndunum sem t.d sæmi og emil eru að taka ásamt fleyrum,

en þegar ég er að skoða söluauglísingu þá vill ég fá óunna honest mynd. enda er ég að reyna sjá ástand bílsins og flr út frá myndini

Re: hverskonar myndatökur eru þetta í dag????

PostPosted: Mon 27. Aug 2012 13:02
by SteiniDJ
Ég veit ekki hvaða skoðun ég á að mynda mér. Sem áhugaljósmyndari þykir mér gaman að gefa frá mér ljósmyndir sem eru vel unnar og ég er persónulega sáttur með. Stundum kallar það á hressilega eftirvinnu, en oftar er það rétt tækni við ljósmynduna sjálfa.

Þó ættu sölumyndir auðvitað ekki að endurspegla þessa áráttu hjá manni, en við verðum líka að muna að þær eru notaðar í auglýsingum. Ég held að það sé stór undantekning ef auglýsing er ekkert nema eintómur sannleikur tíufingurupptilguðs. Ef þú værir að fara að auglýsa þig á einkamal.is, hvort myndirðu taka myndina af þér sem atvinnuljósmyndari komst í, eða myndina sem vinur þinn tók á farsímann þinn á djamminu, klukkan 5 um morgun? Ég persónulega myndi reyna fyrri leiðina og leyfa svo kvenskörungunum sem í mig vilja komast dæma fyrir sjálfa sig. Þeim væri hjartanlega velkomið að skoða og mynda sína eigin skoðun.

Á síðum sem þessum finnst mér best að skoða sögu bílsins á bílar meðlima undirflokknum, ef hún er til staðar. Það er gott að menn leggi mikla vinnu í þær síður, því hún er örugglega mikilvægasta sölutólið sem við höfum. Þar til annað kemur í gagnið, þá er það örugglega eina sölutólið sem treysta má eitthvað á áður en bíllinn sjálfur er skoðaður.

Aurarnir mínir!

Og Emil: Held að þú ættir ekki að taka þessum pósti sem skot á þig, heldur er x5power að tala um myndir sem eru notaðir við auglýsingar á bílum. Ljósmyndarinn (ef annar en eigandinn) hefur lítið með það að segja hvaða myndir eru notaðar.

Re: hverskonar myndatökur eru þetta í dag????

PostPosted: Mon 27. Aug 2012 16:02
by Axel Jóhann
Sámmála með þetta, bílar geta myndast ótrúlega vel enn þrátt fyrir það verið alger fjós.


Samanber rökin hjá Steina, ég lenti einu sinni í því að hitta stelpu eftir að hafa fengið að sjá mynd af henni(and you now where this is going.................... ) :thdown:

Re: hverskonar myndatökur eru þetta í dag????

PostPosted: Mon 27. Aug 2012 16:11
by íbbi_
ef ég er að skoða myndir af bíl sem ég er að spá í hef ég engan áhuga á því hversu fær ljósmyndarinn er.
ég vill bara sá sem raunhæfasta mynd af bílnum. sem gefur mér sem besta hugmynd um hvað ég er að skoða.

alveg glatað að skoða einhverja HDR mynd með þvílíkt unnum litum og flr því þær gefa alltaf frekar óraunhæfa mynd af bílnum, ég þyrfti að koma við á klambratúni á leiðinni og týna nokkra sveppi af túninu ef ég ætti að upllifa bílinn eins í real og hann var á myndunum.

það er enginn að setja út á bílaljósmyndun hérna, ég eins og flr hef í gegnum tíðina dáðst af myndunum frá sæma og emil. og langar í myndir af mínum bíl frá öðrumhvorum.
en sölumyndir eru bara allt annað mál

Re: hverskonar myndatökur eru þetta í dag????

PostPosted: Mon 27. Aug 2012 17:11
by ppp
Mér finnst nú reyndar oft á tíðum að það mætti vanda betur bílasölumyndir.

Þá er ég að tala um þegar bílasölubjánar taka "bara einhvernvegin" myndir af innréttingum sérstaklega, oft með flassi, og enda á því að overexposa allt í drasl þannig að dökkar innréttingar líta mun verr út á myndunum en með berum augum.


Tvö eldsnögg dæmi hérna sem ég fann á 30 sek, alls ekkert verstu sem ég hef séð samt:

Image

Image


Maður myndi halda að fólk sem vinnur við að selja bíla til lengri tíma myndi nú allavegana taka einn dag í það að læra svona basics í ljósmyndun.

Re: hverskonar myndatökur eru þetta í dag????

PostPosted: Mon 27. Aug 2012 17:35
by íbbi_
er algjörlega sammála þér með þetta. passa mig mikið á þessu sjálfur. og tek yfirleitt mælaborðsmyndir aftan úr bílunum

Re: hverskonar myndatökur eru þetta í dag????

PostPosted: Mon 27. Aug 2012 20:00
by gstuning
Axel Jóhann wrote:

Samanber rökin hjá Steina, ég lenti einu sinni í því að hitta stelpu eftir að hafa fengið að sjá mynd af henni(and you now where this is going.................... ) :thdown:



Tókst hana samt?
Kom fyrir mig alltof oft í gamla daga.

Re: hverskonar myndatökur eru þetta í dag????

PostPosted: Mon 27. Aug 2012 22:47
by rockstone
Mér finnst nú bíllinn minn koma alveg jafn vel út á óunnari mynd, beint úr vélinni:

http://farm9.staticflickr.com/8299/7876 ... cbad_k.jpg