Page 1 of 2
Nú eru heldur betur blikur á lofti!!!!

Posted:
Sat 01. May 2004 12:12
by Jonni s
Jæja börnin góð, nú stefnir allt í það að minn Sænsk ættaði Volvo 850 fái að víkja fyrir öðrum gullmola af Þýsku bergi brotinn. Svo er sagan að í 5 ár átti bílakarlinn faðir minn 90árg af 535ia og hugsaði um hann af slíkri natni að annað eins hefur varla sést norðan alpafjalla. Svo grípur karl einhver jeppa della og hann lætur Bimmann víkja fyrir ofvöxnum Patrol af nýjustu gerð. Bimminn fór að vísu ekki langt sem betur fer, aðeins yfir í næsta hús þar sem frændi minn gerði honum gott heimili. Svo datt mér svona í hug að bjóða honum slétt skipti á Volvo inum mínum og honum leist svona djöfull vel á það. Þannig að innan fárra daga verður maður orðinn gildur limur í BMWkraft. Ég ætla að vona að þessi frásögn hafi verið til gagns og einnig nokkurs gamans. Sæl að sinni.

Posted:
Sat 01. May 2004 12:14
by vallio
flott

..... til hamingju....

Posted:
Sat 01. May 2004 14:27
by benzboy
Cool skipti - til hamingju

Posted:
Sat 01. May 2004 15:22
by arnib
535 er örugglega mjög skemmtilegur bíll!
Amk HENDIST 735 áfram (siggi shark!), og 535 ætti að vera eitthvað léttari


Posted:
Sat 01. May 2004 18:03
by gunnar
Nice og til hamingju

Posted:
Sat 01. May 2004 19:13
by Bjarki
535i eru ótrúlega skemmtilegir bílar, eiga náttúrlega að vera beinskiptir


Posted:
Sat 01. May 2004 19:58
by Jonni s
Já það væri nú ekki verra að hafa hann beinsk, en það er svo sem ekkert stórmál að skella í hann kassa.

Posted:
Sat 01. May 2004 20:44
by Bjarki
Minnsta málið að skella kassanum, drifinu, drifskaftinu, kúpplingspedalanum og gírstönginni í en örugglega meira mál að redda draslinu!

Posted:
Sun 02. May 2004 16:12
by íbbi_
pant vera ósammála, mér finnst þessi bíll eiga að vera ssk, en já þessar vélar virka fínt.

Posted:
Sun 02. May 2004 16:20
by Jonni s
Já gott ef ekki, ég keyrði þennan bíl náttúrulega alveg helling á meðan pabbi átti hann og mér fannst það ekki skemma mikið fyrir að hann væri sjálfskiptur. Aftur á móti átti ég beinskiptan 730 og hann var ótrúlega skemmtilegur í akstri.

Posted:
Sun 02. May 2004 16:22
by Aron
Ég er á báðum áttum, núna mundi ég vilja hann beinskiptan en eftir einhver ár vill ég hann pottþétt sjálfskiptann.

Posted:
Sun 02. May 2004 20:54
by Jón Ragnar
535i er ALGJÖR SNILLD
minn var æði bsk


Posted:
Sun 02. May 2004 23:03
by Bjarki
Jón Ragnar wrote:535i er ALGJÖR SNILLD
minn var æði bsk

Sammála seinasta ræðumanni


Posted:
Mon 03. May 2004 20:35
by Twincam
Jón Ragnar wrote:535i er ALGJÖR SNILLD
minn var æði bsk

MORÐINGI!!


Posted:
Mon 03. May 2004 20:36
by Jón Ragnar
Hann er kominn af líkhúsinu og á götuna held ég bara
