Page 1 of 3

E46 M3.... JRK >Update: Myndir og Video<

PostPosted: Thu 29. Apr 2004 00:39
by Kristjan
Vá! Ég er bókstaflega orðlaus yfir nýafstaðinni upplifun. Jói tók mig á rúntinn á M þristinum sínum og það er eitt það allra skemmtilegasta sem ég hef upplifað. Ég hafði áður setið í E34 M5-inum hans Gísla og það var alveg frábært ride en E46 er eins nálægt fullkomnun og hægt er í bíl í þessum flokki. Það sést líka greinilega að Jói er búinn að læra ágætlega á bílinn enda kann drengurinn að keyra. Ég settist undir stýri og gaf honum aðeins inní bílskúr hjá Bergi bróður og sándið er RUDDALEGT! Þetta formúlusánd sem kemur á háum snúning aftan úr pústinu er groddalegt. Ég smellti nokkrum myndum af græjunni og Bergur tók smá vídeó þegar ég var að gefa honum og um leið og hann sendir mér þær í tölvupósti þá set ég þær hingað inn.

Ég segi nú bara eins og barþjónninn með tourettes í Boondock Saints.... FUCK... ASS!!!

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Smá vídjó

PostPosted: Thu 29. Apr 2004 00:44
by gunnar
Ahm, hef séð hann á ferðinni og soundið er alveg svakalegt :D

PostPosted: Thu 29. Apr 2004 08:33
by bebecar
Bara gaman að einhverjir hafi smekk fyrir svona bílum hér heima - bíll sem er ekki einu sinni sérlega dýr :shock: og margir gætu keypt sér.

PostPosted: Thu 29. Apr 2004 10:48
by bjahja
bebecar wrote:Bara gaman að einhverjir hafi smekk fyrir svona bílum hér heima - bíll sem er ekki einu sinni sérlega dýr :shock: og margir gætu keypt sér.

Það eru einmitt margir jeppar sem kosta svipað með öllum breytingum !!

En vá hvað mig langar til að prófa E46 M3.....einn af draumabílunum :drool:

PostPosted: Thu 29. Apr 2004 11:47
by gstuning
Það sem maður fær fyrir þessar 7,5millur er meira fun heldur enn þessir feitu jeppar geta boðið manni,,

800kall í viðbót og maður á eldri hilux fyrir fjallaferðir,,
ekki mixa jeppaferðabíl og bæjarbíl(þjóðvegsbíl)

PostPosted: Thu 29. Apr 2004 13:14
by Chrome
gstuning wrote:Það sem maður fær fyrir þessar 7,5millur er meira fun heldur enn þessir feitu jeppar geta boðið manni,,

800kall í viðbót og maður á eldri hilux fyrir fjallaferðir,,
ekki mixa jeppaferðabíl og bæjarbíl(þjóðvegsbíl)


Alveg hjartanlega sammála þessu það er ekkert verra en menn á tröllatommuni að troða sér um bæinn :?

PostPosted: Thu 29. Apr 2004 14:14
by Thrullerinn
gstuning wrote:800kall í viðbót og maður á eldri hilux fyrir fjallaferðir,,
ekki mixa jeppaferðabíl og bæjarbíl(þjóðvegsbíl)


Bara góð hugmynd ;)

PostPosted: Thu 29. Apr 2004 14:18
by bebecar
gstuning wrote:Það sem maður fær fyrir þessar 7,5millur er meira fun heldur enn þessir feitu jeppar geta boðið manni,,

800kall í viðbót og maður á eldri hilux fyrir fjallaferðir,,
ekki mixa jeppaferðabíl og bæjarbíl(þjóðvegsbíl)


Isss, Hilux er bara vinnuvél - Range Rover Classic fæst á 400 þús að jafnaði fyrir 1992 módelið. Færð ekki betri jeppa og ferðabíl en það!

PostPosted: Thu 29. Apr 2004 14:24
by Svezel
bebecar wrote:
gstuning wrote:Það sem maður fær fyrir þessar 7,5millur er meira fun heldur enn þessir feitu jeppar geta boðið manni,,

800kall í viðbót og maður á eldri hilux fyrir fjallaferðir,,
ekki mixa jeppaferðabíl og bæjarbíl(þjóðvegsbíl)


Isss, Hilux er bara vinnuvél - Range Rover Classic fæst á 400 þús að jafnaði fyrir 1992 módelið. Færð ekki betri jeppa og ferðabíl en það!


Ja ef menn eru tilbúnir að eyða sambærilegu í rekstarkosntað á ári þá er RR kannski málið. Svo er RR ekki góður til breytinga og því ekki nothæfur í almennilegar fjallaferðir.

PostPosted: Thu 29. Apr 2004 14:40
by hjortur
Isss, Hilux er bara vinnuvél - Range Rover Classic fæst á 400 þús að jafnaði fyrir 1992 módelið. Færð ekki betri jeppa og ferðabíl en það!


Tjah ef að þú skilgreinir jeppa sem eitthvað sem kemst upp í grafarvog og í ýtrustu neyð út á malaveg. Þá er range rover svo sannarlega konungur jeppanna. :)
Hiluxinn er hins vegar svo sannarlega vinnuvél, ódýrt að breyta og reka. Hann skilar sínu hlutverki sem jeppi líka vel.

(já, ég á hilux)
--
Hjörtur

PostPosted: Thu 29. Apr 2004 14:44
by BMWaff
Hvernig fóru þið að því að byrja að tala um M3 E46 einn af flottustu bimmum í dag, og fara svo að tala um Einhverjar Jeppa bjeglur!?

PostPosted: Thu 29. Apr 2004 14:45
by Chrome
Ekki er þetta sami Hjörtur og vinnur uppí 88 húsinu?

PostPosted: Thu 29. Apr 2004 15:20
by iar
BMWaff wrote:Hvernig fóru þið að því að byrja að tala um M3 E46 einn af flottustu bimmum í dag, og fara svo að tala um Einhverjar Jeppa bjeglur!?


Velkomin á BMWKraftur spjallið! :lol:

PostPosted: Thu 29. Apr 2004 19:42
by gunnar
Nákvæmlega, here, we make the undoable happen! 8)

PostPosted: Thu 29. Apr 2004 22:37
by hjortur
Chrome wrote:Ekki er þetta sami Hjörtur og vinnur uppí 88 húsinu?


Nei ég vinn ekki í 88 húsinu.