Page 1 of 1

Vesen með fæðingarvottorð

PostPosted: Mon 25. Jun 2012 11:19
by T-bone
Góðan daginn. Mig langaði að athuga hvort menn hafi lent í því að fæðingarvottorð séu ekki tæmandi?

Var að eignast bíl sem er með ýmsum aukabúnaði sem er ekki listaður á fæðingarvottorðinu.

T.d stendur að það sé rafmagn í rúðum frammí, en er allan hringinn, stendur ekki að það sé leðurinnrétting sem er samt sem áður. Það eru gardínur í afturhurðunum, sem ég hélt að kæmu bara í bílum með leðurinnréttingu. Gardínurnar eru á fæðingarvottorðinu, en ekki leður innréttingin.

Það stendur hins vegar M technic sportpaket í fæðingarvottorðinu. Hvað segir það mér?


Það er ýmislegt sem er ekki á vottorðinu. Ég geri mér grein fyrir því að það gæti verið að einhver hafi sett þetta í hann eftirá, en mér finnst svo ólíklegt að sumt sé ekki orginal.

Hérna er listi yfir nokkra hluti sem eru í bílnum en eru ekki listaðir:


Svart leður comfort með armpúðum og svörtum hurðaspjöldum
Rafmagns gardína í afturhillu
M-tech stuðarar, sílsaplöst og spoiler
Bakkskynjarar
Webasto miðstöð með fjarstýringu
Bílasími með handfrjálsum búnaði
fine wood trim
Einhverjir ógeðslega ljótir M hliðarspeglar


Og eitthvað fleira.

Re: Vesen með fæðingarvottorð

PostPosted: Tue 26. Jun 2012 00:10
by bErio
Þetta er gamall E34 og kæmi mer ekki á óvart að gæinn hafi dundað sér að safna drasli i bilinn

Re: Vesen með fæðingarvottorð

PostPosted: Tue 26. Jun 2012 03:27
by Danni
Er þetta E34?? Hvaða bíll er þetta eiginlega?

Re: Vesen með fæðingarvottorð

PostPosted: Tue 26. Jun 2012 11:38
by Hannsi
E39 hjá mér var bókstaflega ekki með neitt af því sem var á fæðingarvottorðinu, nema öskubakkana.

Re: Vesen með fæðingarvottorð

PostPosted: Tue 26. Jun 2012 19:56
by T-bone
Jájá, það getur vel verið að þetta hafi allt verið sett í eftirá. Mér er svosem sama. Finnst þetta bara smá spes.

En vitiði hvað telst inn í þenna M Technic pakka hjá þeim?


Danni: Þetta er 525 bíll sem ég verslaði mér um daginn. Þarf aðeins að shjæna hann til og svona, en verður alveg mega bling einhverntíman.

Þetta er samt potential bíll. Diamantschwarz, svart leður, lúga, rafmagn í öllu, rafmagnsgardína afturí, gardínur í hurðaspjöldum og fleira góðgæti.



Vitiði samt hvort að það séu margir E34 með gardínur í hurðunum afturí?

Og jafnvel hvort að þessi Webasto miðstöð gæti verið orginal?

Re: Vesen með fæðingarvottorð

PostPosted: Tue 26. Jun 2012 20:46
by Danni
Webasto miðstöð er að öllum líkindum orginal. Hef verið með Webasto miðstöð í 3 BMW-um orginal hjá mér, 2x E39 540iA og 1x E32 750iL.

Re: Vesen með fæðingarvottorð

PostPosted: Thu 28. Jun 2012 22:38
by maxel
Af mínum 7 BMW-um sem ég hef átt hefur vottorðið alltaf staðist þannig ég hef ekki rekist á þetta.
Í E30 var hægt að fá M-Tech pakka td í bíl sem ég átti, í honum voru sverari ballansstangir, örlítið lægri og stífari en ekkert til að eltast við.
M technic sportpaket sem þú nefnir er ég nokkuð viss um að séu M-Technik stuðararnir.

Re: Vesen með fæðingarvottorð

PostPosted: Fri 29. Jun 2012 11:18
by Angelic0-
OT-549 var með allskonar retrofit OEM dóti.... sem að var ekki á fæðingarvottorðinu...

t.d. var Harman Kardon Logic 7, en í fæðingarvottorðinu stóð bara HiFi eða e'h ef að ég man rétt...

E'h staðar las ég að þegar að umboð bættu hlutum í þá væri það uppfært í BMW Portal :?: er það kannski tóm vitleysa :?:

Re: Vesen með fæðingarvottorð

PostPosted: Fri 29. Jun 2012 11:26
by Tóti
T-bone wrote:Jájá, það getur vel verið að þetta hafi allt verið sett í eftirá. Mér er svosem sama. Finnst þetta bara smá spes.

En vitiði hvað telst inn í þenna M Technic pakka hjá þeim?


Danni: Þetta er 525 bíll sem ég verslaði mér um daginn. Þarf aðeins að shjæna hann til og svona, en verður alveg mega bling einhverntíman.

Þetta er samt potential bíll. Diamantschwarz, svart leður, lúga, rafmagn í öllu, rafmagnsgardína afturí, gardínur í hurðaspjöldum og fleira góðgæti.



Vitiði samt hvort að það séu margir E34 með gardínur í hurðunum afturí?

Og jafnvel hvort að þessi Webasto miðstöð gæti verið orginal?


Hvað er númerið á bílnum?

Re: Vesen með fæðingarvottorð

PostPosted: Sat 30. Jun 2012 22:18
by T-bone
pn370