bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hvaða bón er best? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=5616 |
Page 1 of 3 |
Author: | Nökkvi [ Thu 22. Apr 2004 23:13 ] |
Post subject: | Hvaða bón er best? |
Í tilefni af góða veðrinu og því að sumarið er að koma langaði mig að vita hvaða bóni meðlimir klúbbsins mæla með. Allir vilja jú hafa BMW-inn sinn glansandi og fínan. Mín reynsla er líka sú að maður notar ekki sama bón á sumrin og á veturna. Vetrarbónið þarf fyrst og fremst að hreinsa tjöru vel en sumarbónið að gefa góðan gljáa. Hvað finnst ykkur og hvað notið þið? |
Author: | Bjarkih [ Thu 22. Apr 2004 23:29 ] |
Post subject: | |
Zymöl á víst að vera allveg súper: http://www.unixnerd.demon.co.uk/zymol.html |
Author: | BMW3 [ Fri 23. Apr 2004 00:36 ] |
Post subject: | |
ég mæli mest með Auto Glym bónið og öllu sem tengist Auto Glym ég hef prófað margt t.d. Íslenska bónið Sonax eitthvað amerískt Litabón og þar á meðal Auto Glym og það fynnst mér koma lang best út. |
Author: | bjahja [ Fri 23. Apr 2004 00:58 ] |
Post subject: | |
Auto glym er MJÖG gott |
Author: | Benzari [ Fri 23. Apr 2004 01:02 ] |
Post subject: | |
SONAX er fínt en endist stutt. Autoglym vörurnar er alveg brilliant en SUPER RESIN POLISH ekki eins drjúgt eins og seljandi vill meina. ![]() |
Author: | benzboy [ Fri 23. Apr 2004 01:05 ] |
Post subject: | |
Nota AutoGlym og er mjög sáttur nema á felgurnar nota ég eitthvert bón frá Gísla Jóns sem ég man ekki hvað heitir - Apallo eitthvað sem endist og endist |
Author: | Svezel [ Fri 23. Apr 2004 01:27 ] |
Post subject: | |
Pyrmo/Dinol Dinitrol 7040 Hardwax sem fæst í Fálkanum er pottþétt eitt það allra besta bón sem ég hef komist í kynni við og er það eina bónið sem mér dettur í hug að nota á veturna. Það er svipað og Sonax í meðförum, þ.e. mjög þunnt hreinsibón sem tekur ALLA tjöru en það endist svo svakalega að sjálft mjallarbónið má vara sig. Ég t.d. hef bónað bílinn hans pabba svona 2-3 á ári og það er alltaf eftir bón á bílnum þegar ég tek mig til við að bóna. Ég hef bónað minn bíl með AutoGlym Super Resin Polish síðustu tvö skipti til að prófa og er mjög sáttur við gljáann og vinnuna á því en finnst það engan veginn perla né endast nógu vel. Sem dæmi þá hafði leikið smá módelbensín á afturstuðarann hjá mér í dag þ.a. ég strauk yfir með Pyrmo bóninu til að ná öllu af. Ég ákvað svo fljótlega á eftir að skola bílinn og munurinn á því þar sem pyrmo bónið var og þar sem bónað hafði verið með Super Resin var ótrúlegur(bónaði með Super Resin á mánudag!). Ég á ennþá eftir að finna það bón sem gefur jafn sterka áferð og perlar jafn vel og þó hef ég prófið mikið af bóni. Hef einnig notað Meguaris Gold Class sem gljáir mjög vel og er mjög sambærilegt við Super Resin en er ekki eins þægilegt að pússa. |
Author: | Kull [ Fri 23. Apr 2004 01:59 ] |
Post subject: | |
Hafa menn eitthvað prófað Extra gloss protection frá Autoglym. Ég bónaði með Super resin og setti extra gloss á hluta af bílnum, verður gaman að sjá muninn í endingu. |
Author: | jth [ Fri 23. Apr 2004 04:27 ] |
Post subject: | Re: Hvaða bón er best? |
Nökkvi wrote: Mín reynsla er líka sú að maður notar ekki sama bón á sumrin og á veturna. Vetrarbónið þarf fyrst og fremst að hreinsa tjöru vel en sumarbónið að gefa góðan gljáa. Hvað finnst ykkur og hvað notið þið? First things first: Velkominn á spjallið! Gaman að enn einn forfallinn áhugamaðurinn sé farinn að skrifa ![]() Sjálfsagt allir sem hafa staðið í því að þrífa bílinn sinn í vetrar-tjöruparadís Reykjavíkur hafa góða reynslu af Sonax og álíka hardcore hreinsibónefnum. Sonax hefur oft komið að góðum notum á veturna þegar tjara hefur setið eftir þrátt fyrir tjöruleysi, háþrýstiþvott og vandlega yfirferð með svampi. Ég hef farið í gegnum ansi breitt úrval af bónefnum - og í raun enn ekki fundið eitthvað "undraefni". Ég prófaði AutoGlym vörurnar vel og vandlega, var mjög ánægður með gljáa þegar bæði Super Resin Polish og Extra Gloss Protection voru notuð. Get í raun ekki sagt að Super Resin Polish eitt og sér hafi framkallað gljáa sem önnur bón hafa ekki gert. AutoGlym vörurnar eru töluvert dýrari en önnur minna virt efni, og það sem einna helst stendur í mér er endingin á þeim. Jafnvel þegar ég bar Super Resin Polish á gat ég ekki reiknað með því að halda góðri "perlun"/fráhrindingu á vatni. (NB! Er ekki að segja að endingin á AutoGlym sé slæm, einfaldlega að endingin ásamt gljáa réttmæti ekki verðmiðann). Það sem einnig stendur í mér varðandi Super Resin Polish er að það inniheldur fínan slípimassa. Mín stefna í þessum málum er að halda þessum polish og wax ferlum sem mest aðskildum, þ.e.a.s. að vera með sérstök efni þegar ég ætla að vinna á hárfínum rispum (nota Claybar eða sérstakt Polish) og síðan efni sem eingöngu er hugsað í vörn á lakki og gljáa. Eins og e.t.v. margir á þessu spjalli finnst mér það skemmtilegt verk að bóna bílinn minn og vill gera það örlítið oftar en flestir aðrir. Það skiptir mig því miklu máli að ég vinni sem minnst með slípiefni - og þegar ég geri það er það af ásettu ráði. Hérna er eldri þráður það sem við ræddum svipað málefni: (Steikt að vitna í sjálfan sig ![]() Quote: Gerið grín að mér eins og þið viljið , en á BMW-inn var ég hrifnastur af Turtle Wax bóni sem fæst á Skeljungsstöðvunum. (Það var á tilboði f. u.þ.b. 2 árum og kostaði brúsinn innan við 300 kr. - var það aðalástæðan f.að ég prófaði það fyrst).
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... 0994#30994 Síðan ég skrifaði þetta hef ég prófað mig áfram í lágklassa bónefnunum, afskrifað flestallt bón sem byggir mest á Carnauba waxi, t.a.m. "Meguiars Gold Class Clear Coat Liquid Carwax". Það vannst vel, lyktaði eins og sælgæti en entist ekki út vikuna - f.utan að nú er ég með svarta plastlista sem ég virðist aldrei ætla að ná bóninu af ![]() Þar sem ég reyni að bóna á 2ja-3ja vikna fresti finnst mér TurtleWax bón henta mér best: Algjörlega laust við hreinsihæfileika (engin slípiefni né leysiefni) og skítódýrt ![]() Hinsvegar er ég mjög spenntur f.að prófa Zaino fjölskylduna, það er bara svo mikill process að ég er ragur við að byrja ![]() P.S. Avatarinn þinn lofar góðu - er von á meira myndefni í bráð? ![]() |
Author: | jonthor [ Fri 23. Apr 2004 07:46 ] |
Post subject: | |
Já velkominn Nökkvi. Er þetta mynd af 540 bínum sem þú verslaðir áður en þú fórst heim frá þýskalandi? Ég væri til í að sjá fleiri myndir af bílnum? Hvernig er svo að vera kominn heim? Saknar ekkert þýskalands? |
Author: | Nökkvi [ Fri 23. Apr 2004 08:28 ] |
Post subject: | |
Takk fyrir welcome nóturnar, það er greinilegt að ég á fleiri vini inn á spjallinu en ég vissi um ![]() Eitt sem jth minntist á langar mig líka að ræði fyrst við erum komnir út í almennar bílahreinsiumræður: Er í alvöru gott að þvo bílinn sinn með svampi? Mín skoðun er sú að það setjist alltaf einhver sandur í svampinn og hann breytist smátt og smátt (hraðar en mann grunar) í sandpappír. Það er líka staðreynd að ef þvegið er með svampi notar maður of lítið vatn. Ég sá í Þýskalandi prófun (gerð af háskóla!!!) hvort væri betra að þvo bíl með svampi eða í bílaþvottastöðvum (að nota kúst er nánast óþekkt). Þar kom bílaþvottastöðin mun betur út. Það voru bæði færri rispur og þær lágu allar í sömu átt. Ef þvegið er með svampi þá koma rispur í allar áttir og margar djúpar og ljótar. (Þetta kom fram þegar lakk bílanna var skoðað í smásjá). Ég er því búinn að leggja svampinum og á bara minn eigin kúst og þvæ heima. Þar af leiðandi er kústurinn eins hreinn og hægt er, ég veit alla vega hvaða drulla er á honum. ![]() Varðandi bílamyndir er aldrei að vita nema ég setji inn nokkrar við tækifæri. Ég held reyndar að fimman mín sé nú eins orginal eins og hægt er en hver veit nema það breytist. |
Author: | jonthor [ Fri 23. Apr 2004 08:42 ] |
Post subject: | |
Já, ég hef allavega newfound respect fyrir almennilegum þvottastöðvum eftir að ég flutti út. Þrífur bílinn mjög vel og virðist ekki rispa neitt. Svo fer ég með tannburstann, bónið og allt eftir á. Varðandi bón þá er ég að nota bónið sem BMW selur. Félagi minn sem hefur átt nokkra BMW-a benti mér á að prófa það og það svínvirkar. Er reyndar svolítið feitt en ef maður gefur sér tíma þá glansar hann virkilega vel. Hefur einhver hér prófað bæði þetta og autoglym? Ég hef ekki prófað Autoglym svo ég hef ekki samanburðinn. |
Author: | benzboy [ Fri 23. Apr 2004 09:07 ] |
Post subject: | |
Svezel wrote: Ég hef bónað minn bíl með AutoGlym Super Resin Polish síðustu tvö skipti til að prófa og er mjög sáttur við gljáann og vinnuna á því en finnst það engan veginn perla né endast nógu vel.
Það kemur með Extra Gloss Protection (þetta með gyllta miðanum), sérstaklega hvað perlunina varðar |
Author: | Dr. E31 [ Fri 23. Apr 2004 12:35 ] |
Post subject: | |
Eins og amrgir aðrir hér á þessum þræði segi ég AutoGlym líka. ![]() |
Author: | bebecar [ Fri 23. Apr 2004 12:49 ] |
Post subject: | |
Ég ætla að prófa þetta bón úr Fálkanum - ólíkt flestum hérna finnst mér leiðinlegt að bóna en vil samt hafa bílana fallega og hreina. Ég væri því afskaplega kátur ef endingin væri góð. |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |