bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
ALGJÖRT UNDRAEFNI! https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=5613 |
Page 1 of 1 |
Author: | inner [ Thu 22. Apr 2004 19:28 ] |
Post subject: | ALGJÖRT UNDRAEFNI! |
Sælir lesendur. Ég er nú ekki mikið fyrir að auglýsa fyrir aðra og það er ekki mitt markmið með þessar grein að gera það en ég bara verð að deila þessu gulli með ykkur. Ég á BMW með blæju og var orðinn þreyttur á því að sjá ekkert út um aftur rúðuna því hún var orðin alveg mött og baksýnisspegillinn gerði þar af leiðandi lítið gagn. Maður varla sá ljósið af bílnum fyrir aftan mann. Ég fór því á netið (nánar tiltekið mz3.net) og fann þar grein eftir gaur sem var með sama vandamál. Hann lýsti efni sem heitir Meguiar's. Myndirnar af árangrinum má sjá hér ásamt greinnini hans http://www.mz3.net/articles/076.html Ég fór því í símaskrána og fór að leita að söluaðilum fyrir þetta efni og fann einn niðrá höfða. Ég verð bara að segja að árangurinn var hreint ótrúlegur!! Afturrúðan varð alveg glær aftur, eins og að hún væri nýkomin úr kassanum. Ég hafði reynt að nota nokkur efni áður og ekkert virkaði en þetta var bara hreint ótrúlegt, tók mig líka ekki nema um 20 min. Það var síðan um daginn að ég var orðinn alveg töluvert þreyttur á framlugtunum mínum því þær voru orðnar svo saltbarnar og ljótar, komin svona leiðinleg mött áferð sem setti ljótan svip á heildarlúkkið á bílnum. Ég var eitthvað að spá í kaupa nýjar lugtir á ebay þegar mér datt í hug að prufa að skella smá Meguiar´s á þær. Ég sletti vel úr dollunni og lét það harna á löngum tíma. Eftir að hafa síðan nudda það vel af þá ætlaði ég ekki að trúa árangrinum. ÞÆR VORU ALVEG EINS OG NÝJAR!!! Ég notaði svo Meguiar´s polisherinn á þær til að gefa finish touch-ið og þetta var hreint ótrúlegt. Þetta efni sparaði mér morðfé og lét lugtirnar mínar líta út eins og nýjar. Ég er ekki að auglýsa þennan söluaðila sem er með þetta. (Þið verðið bara að hringja á staðina og finna út hver er með þetta) Mér finnst alveg útrúlegt að þeir niðrí B&L skildu virkilega ekki benda mér á þetta heldur ráðleggja mér að kaupa nýja lugtir! Ég hafði meir að segja farið á verkstæði og þar buðust strákarnir til að pússa þær upp fyrir mig fyrir 20.000 kr.!!!! Í dag líta út eins og nýjar og þá meina ég ALVEG EINS OG NÝJAR! Bara endilega kynnið ykkur þetta efni. Ég er meira að segja búinn að taka lugtirnar í gegn með þessu efni hjá fjölskyldumeðlimum mínum og það eru allir í skýjunum yfir þessu. Það er meira að segja soldið fyndið að gaurinn sem seldi mér þetta vissi raunar ekkert um þetta efni, hann hélt að þetta væri bara eitthvað hreinsiefni fyrir svona tjaldvagnarúður en þetta er ALGJÖRT UNDRAEFNI og ég held að það slái meira segja út WD-40 í undurleikanum!! ÞETTA EFNI ER ROSALEGT! ![]() |
Author: | hlynurst [ Thu 22. Apr 2004 20:22 ] |
Post subject: | |
Er þetta glermassi? Svipað og kannski glass cleaner frá Auto Glym? |
Author: | inner [ Thu 22. Apr 2004 20:33 ] |
Post subject: | |
Nú bara veit ég ekki hverju ég á að svara þér.. þetta er náttúrlega bara fyrir plast en pabbi sagði að það þetta væri einhvers konar massi! Þetta var bara svo ótrúlegt. Ég þarf að alltaf að taka sveig fram fyrir bílinn og skoða þetta ég er svo helvíti ánægður með þetta. Ég bara trúi þessu ekki hvað þetta virkaði vel. Ljósin eru alveg eins og ný! ![]() |
Author: | Ozeki [ Thu 22. Apr 2004 20:40 ] |
Post subject: | |
Ekki nota gler-slípimassa á plast eða acrýl efni. Það rispar bara. Meguiar's #10 Clear Plastic Polish er sérstaklega gert fyrir plastið. Ég sá einu sinni lýsingu BMW eiganda á þessu undraefni og lofaði í hástert ... átti bara eftir að fara úpp í Gísla Jóns og kaupa þetta til að prófa á framljósin. |
Author: | inner [ Thu 22. Apr 2004 20:50 ] |
Post subject: | |
já einmitt... nei ég rakst bara á þetta á þessari síðu´og átti bágt með að trúa því að þetta virkaði í raun og veru (vegna þess að þeir niðrí B&L sögðu mér að það eina í stöðunni væri að kaupa nýjar lugtir)... hélt að þetta væri bara svona auglýsingartrikk, væri bara eins og hvað anna bón, en ákvað þó að reyna þetta fyrst að báðir brúsarnir kostuðu ekki nema 2500 kr. saman. ég hélt ég myndi bara missa andlitið þegar ég sá árangurinn. hreint ótrúlegt |
Author: | ///MR HUNG [ Sat 24. Apr 2004 01:56 ] |
Post subject: | |
Það er nóg að nota venjulegan slípimassa á svona plastdót og málið dautt ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |