Þar sem að ég fer á bíladaga þá ætla ég að bjóðast til að stilla fyrir hvern þann sem er með standalone eða piggyback þeim að kostnaðarlausu.
#1. Verður að hafa wideband í bílnum eða tölvunni ef það á að framkvæma eitthvað sem tengist bensíni.
#2. Það forrit sem þarf að nota til að tjúna verður að vera aðgengilegt ókeypis á internetinu eða eigandinn verður að hafa réttann kapal og forrit/dongle eða hvernig sem er uppá að tengjast til að stilla.
#3. Skiptir ekki máli hvernig bíll um ræðir, meira að segja blöndungs ef menn eru með wideband í bílnum.
#4. Skiptir ekki máli hversu smávægileg fínstilling er beðið um heldur, lausagangur, boost control, revlimit, bensín stillingar, kveikju stillingar og svo fram eftir götunum.
Þetta gildir bara á AKUREYRI yfir bíladaga EINGÖNGU.
Það verður 0 tími laus frá því ég kem suður og farið er á bíladaga þannig að eini tíminn sem hægt er að gera eitthvað verður fyrir norðann.
_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
