Page 1 of 1

Bmw á staur :(

PostPosted: Sun 12. Jan 2003 15:39
by Gunni
Quote af mbl.is:

Fljúgandi hálka á höfuðborgarsvæðinu
Fljúgandi hálka er í húsagötum íbúðarhverfa á höfuðborgarsvæðinu og hið sama var uppi á teningnum er ökumaður var á ferð á mótum Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar um tólfleytið. Rann bíllinn í mikilli hálku og hafnaði á ljósastaur. Var ökumaður fluttur á sjúkrahús, talinn lærbrotinn og einnig með skrámur í andliti.

Ég held þetta hafi verið Haffi, eða allavega bíllinn hans. Haffi ef þetta hefur verið þú þá finn ég til með þér og vona að þér batni sem fyrst.

Image

PostPosted: Sun 12. Jan 2003 15:59
by Just
Örugglega ekki gott að lærbrotna :? samúðarkveðjur :!: :

PostPosted: Sun 12. Jan 2003 16:05
by rutur325i
Samúðarkveðjur :| lærbrot er ógeð .....

PostPosted: Sun 12. Jan 2003 17:24
by bebecar
Ég vona að hann jafni sig sem fyrst (hver sosem þetta er) lærbrot er alvarlegt!

Þetta virðist allavega vera hvítur E36 en honum svipar þó líka til Peugeot 406 á myndinni - erfitt að sjá hvað þetta er.

PostPosted: Sun 12. Jan 2003 18:00
by rutur325i
Það er alvegá hreinu að þetta er e36 bmw. þú sérð að á felgunum , kösturunum , listunum og fram endananum :)

PostPosted: Sun 12. Jan 2003 18:50
by rutur325i
Var ad horfa á fréttirnar... Þetta var e36 3línan með númerið mk 125
Ökumaðurinn slasaðist lítillega sögðu þeir. Ætli þeit telji lærbrot litilsháttar eða var hann kannski ekki lærbrotinn?
bíllinn var í hakki ......... farvel einn e36 i viðbót og ég óska ökumanninum góðs bata.

PostPosted: Sun 12. Jan 2003 19:17
by sh4rk
Eigandi bílsins heitir Hafsteinn Þór, og þetta er 320 bimmi þannig að þetta gæti hafa verið Haffi :(. Ég óska ökumanninum góða bata

PostPosted: Sun 12. Jan 2003 19:35
by sh4rk
Það er myndir af bílnum hans Haffa á dynodeginum og þar sést grinilega í nummerið á bilnum sem er einmitt mk 125

PostPosted: Sun 12. Jan 2003 19:37
by Djofullinn
Haffi fær samúðarkveðjur frá mér og vonandi nær hann sér sem fyrst

PostPosted: Sun 12. Jan 2003 20:37
by Svezel
Þetta er ljótt að heyra :cry:

Samúðarkveðjur og megi þér batna sem fyrst Haffi

PostPosted: Sun 12. Jan 2003 21:09
by bjahja
Sem betur fer slasaðist hann ekki meira en þetta, þótt lærbeinsbrot sé nokkuð mikið.
Góðan bata :roll:

PostPosted: Sun 12. Jan 2003 23:01
by íbbi
damn :?

p.s hvað er þetta með hvíta bimma og staura?
eitt það sorglegasta sem maður hefur séð þegar hvíti e38 (96) 750ial með gjörsamlega öllu fór á staur einhverntíman í fyrra og brann..

eigandin grét einmitt lampana sem hann var nýbúinn að skipta um í sjónvarpinu en þeir voru ekki gefins :twisted:

PostPosted: Thu 16. Jan 2003 22:23
by DXERON
haffi vonandi nærð þú þér....


(erfitt að vera á afturhjóladrifnum bíl í hálku.....)

PostPosted: Thu 16. Jan 2003 22:49
by Djofullinn
DXERON wrote:(erfitt að vera á afturhjóladrifnum bíl í hálku.....)

Mér finnst það presólulega miklu betra, ég hef miklu meira vald á afturhjóladrifnum bílum :roll:

PostPosted: Sun 19. Jan 2003 03:11
by morgvin
segi það nú, þegar ég keyri fram hjóla drifna bíla geri ég ekkert annað en að spóla :oops: en svo er það nú einmitt máilið að ef þú byrjar að spóla á aftur hjóla drifnum bíla þá hefuru samt val á stýris hjólunum og getur bjargað þér.