Page 1 of 2

Fjöldapantanir á varahlutum

PostPosted: Fri 17. Feb 2012 17:09
by gardara
Hef ekki rekist á svona þráð hér áður en þar sem menn mikið að versla hluti frá sömu verslununum úti, þá datt mér í hug hvort það væri ekki sniðugt að samnýta sendingar og spara þannig sendingarkostnað. Oft tekur það því líka varla að vera að panta inn einhverja staka smáhluti vegna hás sendingarkostnaðar.. Í slíkum tilfellum væri frábært að fá að fljóta með í sendingu.

Það væri frábært ef menn myndu skella inn hér í þennan þráð ef þeir eru að hugsa um að fara að taka inn pantanir frá einhverjum verslunum úti og eru til í að leyfa mönnum að fljóta með.

Sjálfur skal ég byrja þetta.

Ég er að fara að taka pöntun frá pelicanparts í kvöld eða á morgun.
Ætla svo að taka pöntun frá bimmerworld núna einhvertíman á næstu dögum.
Og svo tek ég pöntun frá AKG motorsports einhvertíman í nánustu framtíð, mögulega beint eftir mánaðarmót.

Re: Fjöldapantanir á varahlutum

PostPosted: Fri 17. Feb 2012 19:29
by ömmudriver
Mér lýst vel á þetta :thup:

Ég er að fara leggja inn pöntun hjá Pelican parts á mánudaginn eða þriðjudaginn.

Re: Fjöldapantanir á varahlutum

PostPosted: Fri 17. Feb 2012 19:46
by Jón Ragnar
Ég er maður í AKG pöntun :thup:

Re: Fjöldapantanir á varahlutum

PostPosted: Fri 17. Feb 2012 22:52
by Alpina
Er að fara að panta frá ..... http://www.alpina-automobiles.com/ ,, eru menn með eða ??

Re: Fjöldapantanir á varahlutum

PostPosted: Sat 18. Feb 2012 00:33
by íbbi_
það er líka hægt að nota vöruhús. og safna saman nokkrir saman, þá skiptir engu hvaðan maður er að versla, bara innanlands shipping

Re: Fjöldapantanir á varahlutum

PostPosted: Tue 21. Feb 2012 21:37
by gardara
Jæja, ég er að fara að henda í pöntun frá http://www.bimmerworld.com/ í kvöld eða á morgun, er einhver sem vill fá að fljóta með?

Re: Fjöldapantanir á varahlutum

PostPosted: Tue 21. Feb 2012 21:53
by Jón Ragnar
gardara wrote:Jæja, ég er að fara að henda í pöntun frá http://www.bimmerworld.com/ í kvöld eða á morgun, er einhver sem vill fá að fljóta með?



Hvað ertu að taka þar núna?

Re: Fjöldapantanir á varahlutum

PostPosted: Tue 21. Feb 2012 22:02
by gardara
Jón Ragnar wrote:
gardara wrote:Jæja, ég er að fara að henda í pöntun frá http://www.bimmerworld.com/ í kvöld eða á morgun, er einhver sem vill fá að fljóta með?



Hvað ertu að taka þar núna?



Bara eitthvað smávægilegt viðhalds dót, eiginlega svo lítið að það er skammarlegt að taka ekki meira með í pöntuninni :lol:

Re: Fjöldapantanir á varahlutum

PostPosted: Wed 22. Feb 2012 08:32
by Jón Ragnar
Þyrfti eiginlega að taka Subframe styrkingar :|

Re: Fjöldapantanir á varahlutum

PostPosted: Wed 22. Feb 2012 11:15
by Thrullerinn
Væri ekki hægt að fiffa google doc á svona lagað?

Þetta er prýðishugmynd, get orðið endalaust pirraður á því að panta þúsund krónu hlut sem endar í 7 þús útaf sendingarkostnaði.

Re: Fjöldapantanir á varahlutum

PostPosted: Wed 22. Feb 2012 11:17
by Einarsss
flott framtak Garðar :thup:

Myndi panta með þér af pelican parts ef ég væri með hreinu hvernig flywheel ég verð með á m60

Re: Fjöldapantanir á varahlutum

PostPosted: Wed 22. Feb 2012 19:59
by krayzie
Jón Ragnar wrote:Þyrfti eiginlega að taka Subframe styrkingar :|


það koma allir til með að þurfa þetta fyrr eða síðar... mér finnst að TB eða einhver hérna heima ætti að selja svona dót þar sem þetta er svo algengt

Re: Fjöldapantanir á varahlutum

PostPosted: Wed 22. Feb 2012 21:50
by gardara
krayzie wrote:
Jón Ragnar wrote:Þyrfti eiginlega að taka Subframe styrkingar :|


það koma allir til með að þurfa þetta fyrr eða síðar... mér finnst að TB eða einhver hérna heima ætti að selja svona dót þar sem þetta er svo algengt



Þessar styrkingar er dót sem kemur frá bmw sjálfum, svo að B&L hafa pottþétt verið að panta þetta inn. Getur verið að þetta kosti ekkert það mikið hjá þeim, allavega kosta styrkingarnar í demparaturnana að framan ekkert það mikið hjá BogL.

Thrullerinn wrote:Væri ekki hægt að fiffa google doc á svona lagað?

Þetta er prýðishugmynd, get orðið endalaust pirraður á því að panta þúsund krónu hlut sem endar í 7 þús útaf sendingarkostnaði.


Jújú það væri hægt að fiffa google doc í þetta, eða ég gæti uppfært upphafsinnleggið eða eitthvað slíkt. Byrjum bara á að sjá hversu vinsælt þetta er áður en maður fer að auka umfangið á þessu.

Það væri náttúrulega alveg hægt að tilkynna einnig hingað inn non-bmw pantanir. Ég sjálfur versla amk flest allt sem tengist mínum áhugamálum að utan (aðallega bíla og tölvudót)

Re: Fjöldapantanir á varahlutum

PostPosted: Wed 29. Feb 2012 22:09
by ömmudriver
Jæja ég er að fara leggja inn pöntun hjá Pelican parts á morgun þannig að ef menn vilja vera með þá er síðasti séns á morgun á milli 12 og 18.

Re: Fjöldapantanir á varahlutum

PostPosted: Wed 07. Mar 2012 23:43
by eiddz
Er að fara að panta hjá www.fcpeuro.com bráðlega ef einhver hefur áhuga á því að vera með í því