Hef ekki rekist á svona þráð hér áður en þar sem menn mikið að versla hluti frá sömu verslununum úti, þá datt mér í hug hvort það væri ekki sniðugt að samnýta sendingar og spara þannig sendingarkostnað. Oft tekur það því líka varla að vera að panta inn einhverja staka smáhluti vegna hás sendingarkostnaðar.. Í slíkum tilfellum væri frábært að fá að fljóta með í sendingu.
Það væri frábært ef menn myndu skella inn hér í þennan þráð ef þeir eru að hugsa um að fara að taka inn pantanir frá einhverjum verslunum úti og eru til í að leyfa mönnum að fljóta með.
Sjálfur skal ég byrja þetta.
Ég er að fara að taka pöntun frá pelicanparts í kvöld eða á morgun.
Ætla svo að taka pöntun frá bimmerworld núna einhvertíman á næstu dögum.
Og svo tek ég pöntun frá AKG motorsports einhvertíman í nánustu framtíð, mögulega beint eftir mánaðarmót.



