Page 1 of 1

Hvað kemst undir E30?

PostPosted: Sat 17. Apr 2004 06:48
by Twincam
Jæja.. nú er kallinn kominn með 323i mótor, fínan pústkút og 17" felgur undir kaggann. 8) (þó að vinna við boddýið standi svoldið á sér :oops: )

En þar sem ég er of latur til að leita í gömlum póstum. Þá langaði mig bara að spyrja hvað hægt væri að setja breið dekk undir 1986 E30 BMW?


ps. hvað er mest hægt að setja breið dekk á 7.5" breiðar felgur án þess að það sé kjánalega breitt ?? :?

PostPosted: Sun 18. Apr 2004 18:47
by Twincam
Enginn?? :shock: :shock:

PostPosted: Sun 18. Apr 2004 19:09
by uri
Samkvæmt grein sem er í nýjasta Total BMW þá er talað um að hafa:
215/40/17
245/35/17

PostPosted: Sun 18. Apr 2004 20:02
by gstuning
Ég myndi aldrei setja 245/35-17 á 7,5 felgu

ég myndi hafa 225 á 7,5 max

PostPosted: Sun 18. Apr 2004 22:58
by Twincam
gstuning wrote:Ég myndi aldrei setja 245/35-17 á 7,5 felgu

ég myndi hafa 225 á 7,5 max


Já.. ég var einmitt að spá í bara 215/40 17 að framan og 225/40 17 að aftan. Ætli það komi ekki bara fínt út?

PostPosted: Mon 19. Apr 2004 00:50
by oskard
það er ekkert gaman að hafa svona breið dekk á 323i... það
er betra að hafa mjórri dekk til að geta misst grip þegar að
maður vill :) ég segi 205 allang hringinn

PostPosted: Mon 19. Apr 2004 20:09
by capische
eg er að pæla í felgum sem eru með ónýtum dekkjum á þær eru af stórum bmw veit ekki hvernig, en þær eru svipaðar og eru undir herra 13 en á dekkinu stendur 190/65 HR390 hvað þíðir þettað og myndu þær passa undir bmw 318i '87

PostPosted: Mon 19. Apr 2004 20:19
by Alpina
Þetta eru millimetra-dekk.........og stendur 390 fyrir 15 1/2 tomma
365 fyrir 14.5 og 415 fyrir 16.5 ,, tommur,, 190 er mm breidd og 65 er 65% hæð af 190 mm ((í þessu tilviki))

Sv.H :wink:

PostPosted: Mon 19. Apr 2004 20:30
by capische
gat ekki verið flóknara :x en takk samt :wink:

PostPosted: Mon 19. Apr 2004 23:53
by Tommi Camaro
oskard wrote:það er ekkert gaman að hafa svona breið dekk á 323i... það
er betra að hafa mjórri dekk til að geta misst grip þegar að
maður vill :) ég segi 205 allang hringinn

er ekkert track í þessu e30 dóti :)

nei bara grín þú þarf að vera með einhver gæða low profile dekk hef þau eiga að halda einhverju gripi svona í 1 gír og sleppa