Page 1 of 1
Bíladagarnir á Akureyri

Posted:
Fri 16. Apr 2004 08:28
by Djofullinn
Veit einhver hvort Bíladagarnir eru helgina fyrir eða eftir 17. júní?

Posted:
Fri 16. Apr 2004 08:35
by bebecar
Mér skylst að fyrsti dagurinn sé 17. júní.

Posted:
Fri 16. Apr 2004 08:48
by gunnar
fer bmwkraftur allur saman í "halarófu" ?

Posted:
Fri 16. Apr 2004 08:50
by bebecar
Mig langar að mæta en ég verð upptekinn á 17. júní (undarlegt).... maður fer kannski af stað bara þann 18. þá.

Posted:
Fri 16. Apr 2004 11:05
by Gunni
En Bíladögum lýkur alltaf á 17. júní ?!

Posted:
Fri 16. Apr 2004 11:26
by iar
Ekki spurning að það verður hóprúntur norður eins og í fyrra.
Verður það ekki bara að koma í ljós þegar nær dregur hvernig dagskráin verður. Bagalegt ef þeir enda dagana á 17. júní þar sem það er á fimmtudegi. Það væri óneitanlega heppilegra ef dagarnir yrðu helgina eftir 17.


Posted:
Fri 16. Apr 2004 11:34
by Svezel
Bíladagar hefjast 17.júní með sýningunni og eru frá fimmtudegi og yfir helgina. Bíladögum líkur ekkert alltaf á 17.júní heldur er það bara hefð að hafa bílasýninguna þá


Posted:
Fri 16. Apr 2004 11:37
by 318is
Þeir hljóta að setja þetta á helgina 18,19 og 20 júní. Þá er hægt að vera kominn þarna á miðvikudagskvöldinu og fá þá langa og góða helgi

Annars kemur það örugglega bráðlega í ljós á þessari síðu
http://www.ba.is/main/dagskra.htm

Posted:
Fri 16. Apr 2004 12:01
by Djofullinn
Jæja ég er búinn að redda mér fríi á milli þessara tveggja helga þannig að JEIIIIIIIIIII

Posted:
Fri 16. Apr 2004 13:02
by bebecar
ÉG ætlaði að fara - harðákveðinn... en svo er kompaníið mitt að flytja þessa daga og ég er í framkvæmdahópnum og kemst líklega ekki neitt


Posted:
Fri 16. Apr 2004 13:32
by gstuning
Það er allaveganna eins gott að þú mættir á morgun bebecar
ef ekki ertu þá ekki búinn að missa af næstum öllu BMW kraft dótinu á þessu ári
Ég verð að fá að sitja í þessum porsche

Posted:
Fri 16. Apr 2004 15:07
by bebecar
gstuning wrote:Það er allaveganna eins gott að þú mættir á morgun bebecar
ef ekki ertu þá ekki búinn að missa af næstum öllu BMW kraft dótinu á þessu ári
Ég verð að fá að sitja í þessum porsche

ég er að fara í útskriftarveislu á morgun klukkan 13.00 (alveg típískt)....