Page 1 of 1

Þekkir eitthver til sögu þessa, X5 3.0D 2004?

PostPosted: Wed 16. Nov 2011 14:06
by dabbivilla
http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1

eins með eyðslu á svona motor? veit það eitthver með vissu? eru þeir ekki með hleðslujafnara default?

mbk
Dabbi

Re: Þekkir eitthver til sögu þessa bíls?

PostPosted: Wed 16. Nov 2011 17:33
by JonFreyr
Þetta eyðir eflaust öllu sem á hann fer, grunar að þetta liggi í kringum 10 á hundraðið í blönduðum akstri. Gæti eflaust verið minna ef maður keyrir eins og maður. Annars eru hægt að nálgast allar svona upplýsingar á netinu :) gegnum google til dæmis. Ég myndi hins vegar ekki taka þennan bíl því hann er mikið ekinn, mikið af aukabúnaði og lítur vel út en bara mikið ekinn og hátt verðsettur og lánið alveg í topp.

Myndi hins vegar skoða þennan betur (sjá link) því hann er einu ári yngri og minna sett á hann. Minna ekinn og með flottari innréttingu. Finnst mér allavega :)

http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid=24&cid=177644&sid=80045&schid=50066da4-ded2-449d-b106-e12c58507294

Re: Þekkir eitthver til sögu þessa bíls?

PostPosted: Wed 16. Nov 2011 18:35
by íbbi_
finnst nú bíllinn sem hann póstaði sjálfyur mun flottari, sportstólar, stóri skjárinn, pano, flottari felgur, flottari litur og so on, þessi km staða á ekki að skipta neinu máli ef bíllinn er í lagi

Re: Þekkir eitthver til sögu þessa bíls?

PostPosted: Wed 16. Nov 2011 18:36
by Alpina
Þetta er hel dýrt :shock:

Re: Þekkir eitthver til sögu þessa bíls?

PostPosted: Wed 16. Nov 2011 18:38
by saemi
Í stað þess að setja "þekkir einhver sögu þessa bíls" sem fyrirsögn, þá er tilvalið að setja þar inn nánari lýsingu á bílnum. Ég breytti þessu aðeins fyrir þig :|

Re: Þekkir eitthver til sögu þessa bíls?

PostPosted: Wed 16. Nov 2011 19:31
by Haffi
Alpina wrote:Þetta er hel dýrt :shock:


RÉTT! :shock: :santa:

Re: Þekkir eitthver til sögu þessa bíls?

PostPosted: Wed 16. Nov 2011 20:11
by dabbivilla
íbbi_ wrote:finnst nú bíllinn sem hann póstaði sjálfyur mun flottari, sportstólar, stóri skjárinn, pano, flottari felgur, flottari litur og so on, þessi km staða á ekki að skipta neinu máli ef bíllinn er í lagi


ég er nú alveig samála, þessi sem ég póstaði er mun fallegri bill og betur útbúinn, ég er ekkert sérstaklega hræddur við þennan akstur, munar ekki stórkostlega miklu, frekar hart í ári ef það er ekki hægt að ná 200þ km á þessum bílum vanræðalaust. þá fellur þetta um sjálft sig. (keyri sjáflur um á Landcruiser sem er ekin 290þ+)

Takk fyrir lagfæringuna Sæmi, hugsaði ekki út í það

ss ástæða fyrir því að ég spyrði er einmitt til að vita hvort eitthver þekkti til eiganda eða er hann, bara til að fá söguna, hvort þetta sé alltsaman innabæjarsnatt eða lagnkeyrsla, innfluttur/umboðsbíll o.s.fv. einnig hefur maður heyrt eitthverjar sögur af þessum loftfjöðrun, er þetta endalaust til vandræða í þessum bílum? eða er það bara óheppini ef þetta fer í klessu?

Verðið er vissulega talsvert hátt á honum, en þú færð ekki mikið nýrri LC 120 fyrir þetta verð. svo er ásett verð og söluver ekki alveig sami hluturinn ;)

takk fyrir upplýsingarnar

kv
Dabbi

Re: Þekkir eitthver til sögu þessa, X5 3.0D 2004?

PostPosted: Wed 16. Nov 2011 21:03
by Jón Ragnar
í guðana bænum farðu og keyptu þennan!


:thup: :thup: :thup:

Re: Þekkir eitthver til sögu þessa, X5 3.0D 2004?

PostPosted: Wed 16. Nov 2011 21:18
by Wolf
Hann fer nú varla mikið undir 4.6 mkr........nema að það sé planið að borga með honum ?

Mjög flottur, bara alltof dýr.

Re: Þekkir eitthver til sögu þessa, X5 3.0D 2004?

PostPosted: Mon 28. Nov 2011 10:30
by HAMAR
Ég myndi frekar fá mér V8 bensín bíl á rúmar 3 mill. Það má kaupa helv... mikið eldsneyti fyrir mismuninn.

p.s. minn er seldur :wink: