gstuning wrote:
1-2ár fyrir einhverja heljarinnar glæpi skiptir ýmsa engu máli. Sömu glæpir í USA gefa 20-25ár, samt fremur fólk þar glæpina alveg eins.
Vandamálið almennt er að "kostnaðurinn" við glæpi eru bara ekki nógu háir fyrir þá sem fremja þá til að sporna þeim frá því að fremja þá.Til að halda fólki frá því að fremja glæpi þurfa afleiðingarnar að vera alveg óhugsandi ömurlegar. Það má segja að fyrir suma þessa einstaklinga þá er fínt að detta inní fangelsi á íslandi. Lifir fínt á meðan þú ert ekki böstaður, svo siturru bara í fínu fangelsi á Íslandi heldur enn einhverjari dýflissu í öðru landi. Svo leikurru bara sama leik þegar aftur út er komið.
Skilorðs bundnir glæpir - for-get-a-bout-ed. Menn fremja glæp og labba svo í burtu með það eitt að mega ekki vera sakfelldir fyrir glæp á næstu X mánuðum eða árum. Hverskonar dómur er það eiginlega? Er verið að leyfa fólki að flaska á því "óvart" að fremja alvarlega glæpi. Svo þegar menn fara inn í 12 mánuði þá labba þeir út eftir 6-8mánuði. Ég myndi afnema allt svona kjaftæði hið snarasta.
Allir sem eru í fangelsi ættu að vera í fullri ólaunaðarri 8tímar á dag vinnu við eitthvað sem hjálpar samfélaginu, ekki hangandi á internetinu og horfa á sjónvarpið, hvað þá sækja sér menntun, þeir ættu að gera það dýrum dómum eins og allir aðrir þegar þeir eru búnir í fangelsi.
Eins og má lesa finnst mér dómar alltof vægir og hálfpartinn verið að afsaka suma glæpa menn. Hvað hefur einhver sem fremur morð að gera á meðal okkar? Sá ætti bara að vera inni endalaust og vinna bara.
If you can´t to the time don´t to the crime
Fangelsis vist á Íslandi er hugsuð sem betrunarvist frekar en refsing, sem er frekar fáránlegt.