bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Filmur.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=5379
Page 1 of 2

Author:  Runkiboy [ Wed 07. Apr 2004 16:43 ]
Post subject:  Filmur.

Ég er að spá í það að fá ér filmur í bílinn en ég er eitthvað hálfsmeykur við það.
Getur einhver frætt mig um það hver afleiðingin er fyrir það að vera gripinn með filmur í framrúðunum.
Ég er nefnilega að spá í það að fá mér filmur allan hringinn.

Author:  moog [ Wed 07. Apr 2004 17:03 ]
Post subject: 

Ég held að það sé þannig að þú fáir sekt eða ert látinn rífa filmuna úr á staðnum til þess að sleppa við sektina. Slepptu þessu bara að hafa filmur í framrúðunum segi ég.

Author:  grettir [ Wed 07. Apr 2004 17:25 ]
Post subject: 

Þú færð boðun í skoðun miða, sem er 5000 eða 7500 kr. sekt minnir mig.

Svo færðu grænan í skoðuninni og verður að endurnýja hann reglulega. Það er ekki ódýrt að vera uppreisnarseggur, en þessar reglugerðir hérna eru bara svo fáránlegar í öllu svona sem litlu máli skiptir.

Ég virðist alveg fá frið fyrir lögreglunni (7-9-13), en ég keyri nú frekar lítið og þá nokkuð löglega (nema þegar maður þarf að kíkja út fyrir borgarmörkin til að prófa nýju dekkin :D ). Ég var bara einstaklega óheppinn þetta skipti sem ég var stoppaður, en þá var bara verið að tékka á mér og þá tóku þeir að sjálfsögðu eftir filmunum.

Author:  Svezel [ Thu 08. Apr 2004 01:02 ]
Post subject: 

Þetta með að rífa filmurnar úr á staðnum er nú bara rugl sem er notað á stráka með kjaft sem ná varla upp fyrir stýri. Það er engan vegin löglegt og boðun í skoðun er sektin við þessu.

Menn sem eru að rúnta mikið og það á "vafasömum" bílum ættu að mínu mati ekki að filma allan hringinn, a.m.k ekki með neinu yfir ljósustu filmum.

Author:  ta [ Thu 08. Apr 2004 01:09 ]
Post subject: 

ég væri til í ljósustu filmur á hliðargluggum og aðeins dekkra á
afturrúðu, mér finnst ljótt að hafa bara filmur í aftari hliðarrúðum,
sendibílalegt. skemmir heildarlúkkið!

Author:  gunnar [ Thu 08. Apr 2004 01:36 ]
Post subject: 

ta wrote:
ég væri til í ljósustu filmur á hliðargluggum og aðeins dekkra á
afturrúðu, mér finnst ljótt að hafa bara filmur í aftari hliðarrúðum,
sendibílalegt. skemmir heildarlúkkið!


Fullkomlega sammála þessu, ótrúlega sjoppulegt finnst mér á þessum ELEGANCE bílum að vera með filmum fram í.. :cry:

Author:  Djofullinn [ Thu 08. Apr 2004 09:29 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
ta wrote:
ég væri til í ljósustu filmur á hliðargluggum og aðeins dekkra á
afturrúðu, mér finnst ljótt að hafa bara filmur í aftari hliðarrúðum,
sendibílalegt. skemmir heildarlúkkið!


Fullkomlega sammála þessu, ótrúlega sjoppulegt finnst mér á þessum ELEGANCE bílum að vera með filmum fram í.. :cry:

Humm ég held aðþú sért að misskilja það sem hann sagði :)

Author:  moog [ Thu 08. Apr 2004 14:36 ]
Post subject: 

Svezel wrote:
Þetta með að rífa filmurnar úr á staðnum er nú bara rugl sem er notað á stráka með kjaft sem ná varla upp fyrir stýri. Það er engan vegin löglegt og boðun í skoðun er sektin við þessu.


Ég svo sem grunaði það líka að þetta væri eitthvað rugl, heyrði þetta bara einhverntímann. Maður er kannski farinn að skoða lyftukrús síðuna of mikið og það hefur þessi áhrif á heilabúið... :wink: :roll:

Author:  fart [ Thu 08. Apr 2004 14:54 ]
Post subject: 

Orginal sjoppa.

Image

:wink:

Author:  Svezel [ Thu 08. Apr 2004 16:33 ]
Post subject: 

Spurning hvort að maður nýti sér að það er lítill hliðargluggi alveg fremst á Z3 og láti filma :roll:
Image

Author:  grettir [ Thu 08. Apr 2004 16:37 ]
Post subject: 

Hehe, það væri auðvitað alger snilld. Bend the rules.

Author:  Heizzi [ Thu 08. Apr 2004 17:05 ]
Post subject: 

það væri auðvitað frábært að fljúga svona undir ratsjána en yrði sennilega ekkert rosalega flott

Author:  DXERON [ Thu 08. Apr 2004 23:25 ]
Post subject:  filmur

samkvæmt reglum má ekki setja filmur eða sprauta á fremstu opnanlegu hliðarúðuna....
ef hliðar rúðan er opnanleg a z3 coupe þá er það löglegt skv. bók
en ef hún er föst þá er hin rúðan skilgreind sem fremsta opnanlega hliðarrúða og má ekkert setja innan á hana...
einnig stendur að megi vera með dekktar rúður uppað 30% ef glerið sjálft er merkt þannig og er orginal...

en ég ætla setja filmur í cherokinn minn hann er með litla hliðarglugga fremst og þeir eru opnanlegir.... 8)
en mér finnst ljótt ef filmur eru of dökkar.... einnig sést mjög illa út um dekkstu filmurnar á kvöldin og í lélegu skyggni... sem er oft á íslandi...

en nú er ég að fara setja filmur í coltinn minn fyrir sumarið... ætla prufa setja ljósustu filmuna í hliðargluggana frammí.... svona eftir skoðun.... :wink:

Author:  benzboy [ Thu 08. Apr 2004 23:50 ]
Post subject: 

Bara vera með original dekktar rúður = ekkert vesen :lol:

Author:  DXERON [ Thu 08. Apr 2004 23:53 ]
Post subject:  myndir af filmum

hér eru nokkrar myndir af flottum filmum...


Image
flottur svona tinted.... ekki of mikið


Image
flott heildarlúkk...


Image
Gamli Minn var svona í mánuð áður en löggan stoppaði mig...
:x
en þetta var svoldið of dökkt að framan,,, sást illa út á kvöldin.. :?


svo er hægt að gera of mikið......

Image

Image

en þetta er bara það sem mér finnst...
:roll:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/