bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hagstæðustu bílakaupin þegar flutt er inn til landsins https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=5328 |
Page 1 of 1 |
Author: | Jói [ Fri 02. Apr 2004 20:36 ] |
Post subject: | Hagstæðustu bílakaupin þegar flutt er inn til landsins |
Hvaða bíll haldið þið að sé hagstæðast að kaupa erlendis og flytja inn (ekki bara BMW)? Þá meina ég hvaða bíl gæti maður flutt inn til landsins og fengið hann vel undir "gangverði" svona bíls hér á landi? Einhverjar sérstaka tegundir eða týpur. Eða einhverjir sérstakir verðflokkar eða bílaflokkar (2 dyra eða 4 dyra). Hvað með bíla frá USA? Ætli þar séu margir bílar sem mundi borga sig að flytja inn? |
Author: | Thrullerinn [ Fri 02. Apr 2004 22:29 ] |
Post subject: | |
Það má segja að það sé ekkert "sérlega" hagstætt að taka inn bíl mikð undir 2 m.kr. Amerískir bílar er ódýrir frá USA, dollarinn lágur... Sportbílarnir eru ódýrir miðað við járninnihald ![]() Ódýrustu hestöflin eru í amerísku bílunum. Þýskir Z3 M er rosa græja á góðu verði... heil 320 hö. Síðan eru allir bensarnir... og auðvitað BMW. En satt að segja eru "heitustu" innflutningsbílarnir oft mjög ódýrir hérna heima... oft heillar það meira því það er töluverð vinna í innflutningsdótaríinu, koma bílnum í skip, pappírar, tryggingar, fragt, skráning (og ryðvörn). [/b] |
Author: | Jss [ Fri 02. Apr 2004 22:35 ] |
Post subject: | |
Talandi um Z3 M - hér er einn: Z3 M coupe Á 18.900 evrur sem leggst út á ca. 3,2 milljónir skv. innflutningsreiknivél BMWKrafts. ![]() |
Author: | freysi [ Sat 03. Apr 2004 01:38 ] |
Post subject: | |
hah! Skemmtilegar mottur! ![]() ![]() |
Author: | Thrullerinn [ Sat 03. Apr 2004 13:44 ] |
Post subject: | |
freysi wrote: hah! Skemmtilegar mottur!
![]() ![]() Snilld !! svona töfrateppastíll yfir þeim ![]() |
Author: | Jss [ Sat 03. Apr 2004 13:48 ] |
Post subject: | |
Motturnar yrðu það fyrsta til að hverfa ef maður verslaði þennan, og síðan yrði blái liturinn í stýrinu gerður útlægur. ![]() Það er reyndar ekki inní spilinu að maður versli Z3, allavega ekki á næstunni. ![]() |
Author: | Jss [ Sat 03. Apr 2004 13:52 ] |
Post subject: | |
Enda sést að maður getur fengið E39 M5 á lægra verði hingað kominn. E39 M5 19.899 evrur og skatturinn til baka sem útleggst hingað kominn á ca. 2,9-3,0 milljónir skv. innflutningsreiknivélinni. ![]() |
Author: | hlynurst [ Sat 03. Apr 2004 14:19 ] |
Post subject: | |
M coupe er samt svo hardcore... ég tæki svoleiðis bíl fram fyrir M5. ![]() |
Author: | E 220T [ Sat 03. Apr 2004 19:00 ] |
Post subject: | |
Benz W124, E420, 280hö, 400NM. Þetta er meiriháttar bíll. Talsvert er til af þessum bílum hér heima, EN..., menn eru að biðja um mjög hátt verð fyrir þá, jafnvel illa búna og án bókar. Ég var að flytja þennan inn Talsvert undir því sem menn eru að biðja um hér heima fyrir eldri og verr útbúna bíla í gegnum Smára í Hamborg. http://www.cardomain.com/memberpage/535892 Árgerð 1995, með öllu, 110% þjónustubók, ekinn 155þkm. Kostaði mig svipað og ódýr nýr Yaris ![]() ![]() Ég keyri um þessa dagana með þennan svip á andilitinu: ![]() ![]() ![]() |
Author: | Jss [ Sat 03. Apr 2004 19:28 ] |
Post subject: | |
Til hamingju með þetta, mun skemmtilegri og þarmeð sniðugari kaup en Yaris. ![]() ![]() |
Author: | bebecar [ Sat 03. Apr 2004 21:36 ] |
Post subject: | |
Þegar stórt er spurt þá færðu sko flóð af svörum. Ég er á því að mesta bargainið í bílum frá þýskalandi sé Porsche 944 - þessir bílar eru ódýrir í viðhaldi, galvaniseraðir, öflugir og frábær aksturstæki og kosta skít og kanil úti í þýskalandi. Frá USA myndi ég helst stóla á Camaro, Mustang eða eitthvað í þeim dúr, nema þú viljir pick up ![]() |
Author: | Jói [ Sat 03. Apr 2004 22:04 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: Þegar stórt er spurt þá færðu sko flóð af svörum.
Ég er á því að mesta bargainið í bílum frá þýskalandi sé Porsche 944 - þessir bílar eru ódýrir í viðhaldi, galvaniseraðir, öflugir og frábær aksturstæki og kosta skít og kanil úti í þýskalandi. Frá USA myndi ég helst stóla á Camaro, Mustang eða eitthvað í þeim dúr, nema þú viljir pick up ![]() JÁ! Porsche 944 er fáranlega ódýr í Þýskalandi. Sennilega hægt að fá ágætan 944 með 2.5 eða 2.7 (165 hö) á 2000-2500 evrur. Það er 450 þ - 500 þ án þóknunar kominn heim ![]() ![]() Ég ætla að prófa þessa bíla sem fyrst til að sjá hvort ég verð hrifinn. ![]() ![]() Bebe: hefur þú eða einhver hérna prófað þessa bíla???? Síðan væri hægt að gera margt vitlausara en að kaupa sér einhvern brjálaðan pickup. Fyrir þá sem fylgjast með ensku knattspyrnunni þá má geta þess að Alan Smith á einhvern svakalegan amerískan pickup. Hvern langar ekki til að vera eins og Alan Smith?? ![]() |
Author: | fart [ Sun 04. Apr 2004 08:04 ] |
Post subject: | |
Já.. Alan Smith.. hann er mín hetja.. pickup og aflitaður hanakambur. |
Author: | bebecar [ Sun 04. Apr 2004 09:30 ] |
Post subject: | |
Jói wrote: bebecar wrote: Þegar stórt er spurt þá færðu sko flóð af svörum. Ég er á því að mesta bargainið í bílum frá þýskalandi sé Porsche 944 - þessir bílar eru ódýrir í viðhaldi, galvaniseraðir, öflugir og frábær aksturstæki og kosta skít og kanil úti í þýskalandi. Frá USA myndi ég helst stóla á Camaro, Mustang eða eitthvað í þeim dúr, nema þú viljir pick up ![]() JÁ! Porsche 944 er fáranlega ódýr í Þýskalandi. Sennilega hægt að fá ágætan 944 með 2.5 eða 2.7 (165 hö) á 2000-2500 evrur. Það er 450 þ - 500 þ án þóknunar kominn heim ![]() ![]() Ég ætla að prófa þessa bíla sem fyrst til að sjá hvort ég verð hrifinn. ![]() ![]() Bebe: hefur þú eða einhver hérna prófað þessa bíla???? Já, ég hef ekið bæði venjulegum og S gerðinni af 944. Mig minnir að S bíllinn sé 220 hestöfl og það er með alsprækustu bílum sem ég hef keyrt. Sá bíll var algjör haugur en maður steingleymdi því þegar maður var að keyra hann því hann var óaðfinnanlegur í akstri. 165 hestafla bílarnir eru samt bestu kaupin, þeir eru hörku sprækur og sennilega eru þetta BESTU akstursbílar sem ég hef keyrt, það er engin bíll sem þú kemst eins nálægt takmörkunum á - og það er bara vegna þess að þú veist nákvæmlega hvað er óhætt að bjóða honum uppá. Blessaður tékkaðu á þessu sem fyrst... Svo er náttúrulega verulegur kostur hér heima á svona góðum bíl að hann sé galvaniseraður. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |