bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Reynsluakstur á fimmu hjá Pistonheads
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=5308
Page 1 of 2

Author:  bebecar [ Thu 01. Apr 2004 11:08 ]
Post subject:  Reynsluakstur á fimmu hjá Pistonheads

Þetta er reyndar kani held ég en ekki er hann ánægður með bílinn.

Hann hefur reyndar einn punkt sem ég er sammála honum með og það er iDrive sem er bara EKKI sniðugt. Ég er auðvitað ekki sammála honum með útlitið og Variable steering dótið hefur fengið góða dóma, þessi hefur sennilega bara verið á leiðinlegum dekkjum.

http://www.pistonheads.com/doc.asp?c=100&i=8214

Author:  gunnar [ Thu 01. Apr 2004 12:14 ]
Post subject: 

þýðir ekkert að láta eitthverja kanamellu dræva ze german automobilen 8)

Láta hann á bara eitthvað átta gata bensínstöð...

Author:  iar [ Thu 01. Apr 2004 12:17 ]
Post subject: 

Hef nú ekki lesið þetta en mér finnst stundum eins og iDrive kerfið fari sérstaklega illa í Kanann..

Author:  gstuning [ Thu 01. Apr 2004 13:16 ]
Post subject: 

iar wrote:
Hef nú ekki lesið þetta en mér finnst stundum eins og iDrive kerfið fari sérstaklega illa í Kanann..


:)

Stupid og intelligent fare oft ekki vel samann
ekki heldur
Clever og arrogant fara ekki heldur vel samann
Ég er að tala um kana og idrive hérna :)

Author:  fart [ Thu 01. Apr 2004 13:20 ]
Post subject: 

Þegar bíllinn er gáfaðri en ökumaðurinn getur útkoman ekki verið merkileg.

Author:  Jss [ Thu 01. Apr 2004 23:43 ]
Post subject: 

Ég skil ekki hvað menn eru alltaf/oft á móti I-Drive kerfinu, bjóst nú ekki við þessu af bebecar. :? Ég kann þrælvel við þetta, einfalt og þægilegt.

Að vísu þá eru sumir svolítið gamlir í sér og góður punktur hjá fart. ;)

Author:  bjahja [ Fri 02. Apr 2004 00:08 ]
Post subject: 

Jss wrote:
Ég skil ekki hvað menn eru alltaf/oft á móti I-Drive kerfinu, bjóst nú ekki við þessu af bebecar. :? Ég kann þrælvel við þetta, einfalt og þægilegt.

Að vísu þá eru sumir svolítið gamlir í sér og góður punktur hjá fart. ;)

Ég hef verið um það bil 5-10 mín í i-drive kerfinu sem er í nýju fimmunni og ég var bara farinn a skilja það ágætlega

Author:  Svezel [ Fri 02. Apr 2004 01:46 ]
Post subject: 

Ég verð að viðurkenn að ég hef ekki kynnt mér þetta kerfi vel en sé samt engan veginn tilganginn í því að vera að setja allar stillingar inn í i-drive. Það sér það hver maður að það er miklu auðveldara fyrir bílstórann að geta stillt hitann og útvarpið með sér rofum.

Á bílstórinn þá bara alltaf að fara út í kannt ef hann vill setja á fréttir í útvarpinu eða fá kaldan blástur til að vakna betur?

Author:  jth [ Fri 02. Apr 2004 02:10 ]
Post subject: 

Svezel wrote:
... Það sér það hver maður að það er miklu auðveldara fyrir bílstórann að geta stillt hitann og útvarpið með sér rofum....


Hárrétt - og þannig er það á nýju fimmunni - allar hitastillingar í sérrofum, ásamt flestum útvarpsstillingum.

Svo virðist sem meirihluti þeirra sem hafa notað iDrive til lengdar séu mjög sáttir (sérstaklega á E60, eldra iDrive í E65 er víst töluvert flæktara) og hefur þetta verið rætt í þaula á m5board.com.

Læt hér fylgja stutta málsgrein frá "stuðningsmanni" iDrive:
http://www.m5board.com/vbulletin/showpost.php?p=391669&postcount=25
Quote:
I have lived with two versions of iDrive in a 545 and 745. All normal HVAC functions such as temp control, fans, defrost, A/C, etc. are available via the normal knobs and buttons without having to touch the iDrive dial.

The vast majority of audio functions - especially the common ones - also don't require the iDrive knob including on/off, channel change, and volume change, and even the AM/FM CD toggle can be programmed to one of the special buttons.


Það er hinsvegar skemmtilegt að fylgjast með þróuninni í þessum stjórntækjum, svo virðist sem þjóðverjarnir séu gjarnari á "stýripinna" BMW:iDrive og Audi:MMI á meðan Japanir eru duglegri að nota snertiskjái og raddgreina (Lexus, Acura).

Author:  bebecar [ Fri 02. Apr 2004 09:24 ]
Post subject: 

Ég held að farsælast sé að hafa rofa til að stilla miðstöð og útvarp þannig að maður þurfi ekki að líta á þá.

iDrive virkar ekki þannig þar sem maður þarf að rekja sig í gegnum kerfið - og ef það eru þá sér takkar líka, því ekki að sleppa iDrive?

Author:  iar [ Fri 02. Apr 2004 10:17 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
Ég held að farsælast sé að hafa rofa til að stilla miðstöð og útvarp þannig að maður þurfi ekki að líta á þá.


Sér takkar fyrir allt geta líka farið í öfgar og verið hreinlega stórhættulegt. Smá dæmi: (PS: þetta er ekki skot á þig og þinn bíl bebecar ;-) )

Image

Author:  bebecar [ Fri 02. Apr 2004 10:29 ]
Post subject: 

Ég er auðvitað algjörlega sammála þessu!

En þetta er einmitt nákvæmlega hlutu sem við ræddum þegar Svezel var að spá í tæki í bílinn sinn, þá voru allir á því að snúningstakka væri möst vegna þess að þá þyrfti ekki að líta á tækið.

Einn takki eða 40 takkar (eins og var í M5 bílnum) skiptir ekki máli, það sem skiptir máli er hvort þú þarft að horfa á þá til að nota þá eða ekki....

PS, það er ekkert útvarp í mínum Porsche og bara einn takki sem ég nota því hinir (þrír) virka ekki :lol:

Author:  Haffi [ Fri 02. Apr 2004 15:58 ]
Post subject: 

ég lít aldrei á neina takka sem ég nota... pota bara eftir sjónminni eða þreyfa mig áfram :D

Author:  iar [ Fri 02. Apr 2004 17:18 ]
Post subject: 

Haffi wrote:
ég lít aldrei á neina takka sem ég nota... pota bara eftir sjónminni eða þreyfa mig áfram :D


Ef hönnin er góð á það einmitt að vera nóg. :-)

Mér finnst t.d. hönnunin á útvarpinu í E46 alger snilld. Risastór snúningstakki fyrir volume og tónastillingar. 6 rásatakkar í þremur pörum sem er auðvelt að finna. Svo eru takkarnir þrír lengst til hægri og vinstri þannig að miðjutakkinn er aðeins upphleyptur. Og rúsínan í pylsuendanum er að listinn sem gengur í gegnum allt mælaborðið liggur í þannig í gegnum útvarpið að það er ekki hægt að klikka á að finna takkana án þess að líta af veginum, í versta falli finnurðu listann og rennir puttunum eftir honum. Alveg brilliant, gjörsamlega löðrandi í góðri ergónómík. :-)

Mynd af græjunni:
Image

Author:  Haffi [ Fri 02. Apr 2004 17:23 ]
Post subject: 

einmitt þannig í original E30 kasettutækinu mínu líka ;)
allt þar sem það á að vera og auðvelt að fikra sig áfram 8)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/