Page 1 of 2
hvað má borga fyrir 525i '95 ?

Posted:
Mon 06. Jan 2003 12:58
by zx
Nú vantar mig aðstoð í hvelli, mér býðst að skipta á jeppanum mínum og 525i ´95 ekinn 120Þ með lúgu, leðri, felgum og fleiru, fallegur bíll sem var fluttur inn ársgamall, Hvað haldiði að sé raunverulegt staðgreiðsluverð á svona vagni ?

Posted:
Mon 06. Jan 2003 13:06
by Svezel
Ætli það sé ekki í kringum 1200-1300 þús miðað við árgerð, búnað og keyrslu

Posted:
Mon 06. Jan 2003 13:08
by Djofullinn
Ég mundi skjóta á milljón

Posted:
Mon 06. Jan 2003 13:12
by bebecar
Ég myndi skjóta á 1200 þús, fer eftir ástandi auðvitað!

Posted:
Mon 06. Jan 2003 13:43
by saemi
Ef þetta er mjög góður bíll, sem mér heyrist, þá myndi ég segja já í kringum 11-12 hundruð þúsund!
525ix touring 1993 ekinn 139.000 er hingað kominn fyrir 1.350.000.-
Sæmi

Posted:
Mon 06. Jan 2003 20:25
by zx
takk fyrir svörin, skoðaði bílinn í dag, alger moli, vínrauður með svörtu leðri, aukafelgur á dekkjum (orginal BMW báðar) sér ekki á honum utan eða innan, malar eins og köttur, en þetta er spurning um slétt skipti og minn er ekki á undir 1400 í stgr. verði. þannig að ég væri sennilega alltaf að tapa einhverjum tvöhundruð kallli !!!
læt vita um framhaldið


Posted:
Mon 06. Jan 2003 21:09
by Haffi
fáðu þennan fjandans 200 kall á milli maður .. ekki láta taka þig í bossann


Posted:
Mon 06. Jan 2003 21:15
by íbbi
ég hélt að pajeroinn væri nú meira virði en sona bmw..
annars virðist þetta vera nokkuð sniðugur bimmi

Posted:
Tue 07. Jan 2003 20:18
by Alpina
mér líður þannig að verðið á þessum bíl sé ansi mikið öðruvísi en það sem ég hef verið að spyrjast fyrir um minn bíl sem er ,eins og margir vita
530 V8 94 164.000 km Svartsans. 220hö(160kw)/290NM(214lbs,tq)
Automatic,, topplúga,, leður,,(eins og nýtt) armpúðar,, hiti í sætum,,
Stóra viðarinnréttingin (13),, Gardina í afturglugga (org.) ,, CD(org)
fjartýrðar-samlæsingar(org) ræsivörn(org) þjófavörn(org) (((Airbag)))
15" org-álfelgur vetrardekk/195-65 +++ 17"org-BMW Radial-styling 32
með235/45 dekkjum (8" felga) og 255/40 (9"felga)
þennan bíl er hægt að fá fyrir 1200.000 ( allt innifalið)
ps. var að koma úr innsp. II frá B/L f.2 mán. 60.000kr..

Posted:
Tue 07. Jan 2003 20:57
by bebecar
Góður punktur Sveinbjörn....

Posted:
Thu 09. Jan 2003 20:34
by zx
Samningar hafa náðst ! Ég er því glaður að tilkynna hérmeð, að ég er orðin stoltur eigandi BMW


Posted:
Thu 09. Jan 2003 21:00
by Gunni
zx wrote:Samningar hafa náðst ! Ég er því glaður að tilkynna hérmeð, að ég er orðin stoltur eigandi BMW

til hamingju með það!

Posted:
Thu 09. Jan 2003 22:23
by GHR
Til hamingju - hvernig er að eiga bíl sem er jafnkraftmikill hjólinu? Aðeins meira kick úr því að keyra hjól sem er 190hö.

Posted:
Thu 09. Jan 2003 22:53
by Djofullinn
Til hamingju, endilega að henda inn myndum


Posted:
Fri 10. Jan 2003 15:45
by zx
hvert get ég sent myndir, hver kann að setja þær inn ?