bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW VANDRÆÐI.... https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=518 |
Page 1 of 1 |
Author: | bebecar [ Fri 03. Jan 2003 20:20 ] |
Post subject: | BMW VANDRÆÐI.... |
Ég lennti ílla í því fyrir nokkru... Ég er að ganga fyrir framan Fálkann á Suðurlandsbrautinni og eins og vanalega þá lýt ég nú alltaf vel í kringum mig, nema hvað að ég sé svona líka glæsilega bimma (tvo) splunkunýjann silfraðann 745i og síðan mjög fallegan Coupé bíl E46 sem ég hafði ekki séð áður. Ég náttúrulega glápi og glápi og svo finn ég bara þar sem ég ÞRUMA fætinum í hjólreiðagrind fyrir framan Fálkann og ég rétt næ að halda jafnvægi yfir hjólagrindina og slepp því við að detta á nefið og stórslasa mig. Ég var ílla haltur eftir þetta atvik og bölvaði Fálkanum fyrir að hafa helv. grindina þarna úti á miðri gangstétt. Ég fékk ansi slæmt mar úr þessu og var í sirka viku að jafna mig í fætinum. Þetta eru einu vandræðinn sem ég hef lennt í með BMW og mun ég passa mig á þessu næst - ég var reyndar næstum búin að lenda í þessu aftur á sama stað þegar ég sá nýja Range Roverinn!!! ![]() |
Author: | Birkir [ Fri 03. Jan 2003 20:32 ] |
Post subject: | |
lol! ![]() |
Author: | bebecar [ Fri 03. Jan 2003 20:36 ] |
Post subject: | |
Ferlega vont maður! |
Author: | saemi [ Fri 03. Jan 2003 21:41 ] |
Post subject: | |
Ehehehe, æjæj, aumingja þú. Þetta var nú samt fyndið... Usss, ef þetta væru nú einu BMW vandræðin sem maður lenti í ! Sæmi, sem vildi frekar reka fótinn í hjólreiðagrind heldur en að hafa bilaða "sjálfskiptingu" |
Author: | bebecar [ Fri 03. Jan 2003 21:57 ] |
Post subject: | |
Er sjálfskiptingin biluð í sjöunni? Sama segi ég... það væri nú ansi gott að sleppa með aumann fót! |
Author: | saemi [ Fri 03. Jan 2003 22:01 ] |
Post subject: | |
Æjj, ég veit það ekki alveg, það er málið. Hún er elektrónísk (EH) og það kemur viðvörunarljósið fyrir hana alltaf upp, svo hún er föst í 3ja gír. Er að bilanaleita ![]() |
Author: | bebecar [ Fri 03. Jan 2003 22:11 ] |
Post subject: | |
Föst í þriðja? Er það ekki í fínu lagi - nóg er togið ![]() |
Author: | saemi [ Fri 03. Jan 2003 23:25 ] |
Post subject: | |
Hehehehe, reyndar er það rétt. Bíllinn er bara eins og venjulegur bíll núna, enda líður mér mun betur í hálsinum... ! Nei, maður verður nú að redda þessu svo þetta verði skemmtilegt aftur. |
Author: | iar [ Sat 04. Jan 2003 18:03 ] |
Post subject: | |
Það er rétt bebecar. Þetta er stórhættulegir bílar sem ætti að banna! ![]() |
Author: | Guest [ Sat 04. Jan 2003 23:40 ] |
Post subject: | |
það er rétt ég var einu sinni næstum búinn að klessa framan á trailer rétthjá endurvinnslinni þegar ég sá bláa e39 m5 í fyrsta skiftið hérna í bænum. vá núna fer ég regluglega þar framhjá til að skoðann. en veit einhver ykkar hvað svoleiðis gripur kostar úti ? |
Author: | Djofullinn [ Sun 05. Jan 2003 00:35 ] |
Post subject: | |
Þeir eru á 25.000 evrur og uppúr ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |