Page 1 of 2

Bíldagar 2011

PostPosted: Mon 13. Jun 2011 15:05
by MR.BOOM
Hæhó........Er að reyna að skipuleggja mig yfir Bíladaga, verður BMWkraftur með einhverja skipulagða dagskrá yfir þessa daga ???

Re: Bíldagar 2011

PostPosted: Mon 13. Jun 2011 18:20
by Axel Jóhann
Það held ég ekki, það er enginn úr stjórninni að standa sig, þeir ætla ekki að fara. :aww:

Re: Bíldagar 2011

PostPosted: Mon 13. Jun 2011 20:25
by Ampi
Axel Jóhann wrote:Það held ég ekki, það er enginn úr stjórninni að standa sig, þeir ætla ekki að fara. :aww:

Nýja stjórn sem hefur áhuga á eitthverju öðru en Crossfit ! :thdown: :thdown: :thdown:

Re: Bíldagar 2011

PostPosted: Mon 13. Jun 2011 22:50
by oddur11
hvernig væri þá að þeir sem eru að fara skipulegi eithvað?? þarf ekki að kosta mikkið að henda nokkrum pulsum á grill

Re: Bíldagar 2011

PostPosted: Mon 13. Jun 2011 23:37
by MR.BOOM
Er enginn í stjórn að lesa þetta spjall............???

Re: Bíldagar 2011

PostPosted: Mon 13. Jun 2011 23:40
by jon mar
MR.BOOM wrote:Er enginn í stjórn að lesa þetta spjall............???


allir að taka 5x5 í crossfit eða eitthvað :mrgreen:

Re: Bíldagar 2011

PostPosted: Tue 14. Jun 2011 00:38
by tinni77
Allir uppteknir við að taka burpees, hvað svo sem það er


Vanhæf ríkisstjórn ? :lol:

Re: Bíldagar 2011

PostPosted: Tue 14. Jun 2011 11:01
by bimmer
Ekki gott til afspurnar...... :?

Re: Bíldagar 2011

PostPosted: Tue 14. Jun 2011 11:02
by gunnar
Ég get lagt til gos í Kraftsgrillið ef af því verður.

Sá sem myndi vera ábyrgðarmaður grillsins getur haft samband við mig.


Gunnar - 6602608

Re: Bíldagar 2011

PostPosted: Tue 14. Jun 2011 12:19
by Viggóhelgi
gunnar wrote:Ég get lagt til gos í Kraftsgrillið ef af því verður.

Sá sem myndi vera ábyrgðarmaður grillsins getur haft samband við mig.


Gunnar - 6602608



þvílíkur höfðingi, vonandi er búið að hafa samband við manninn,, KEYRA þetta grill í gang! :)

Re: Bíldagar 2011

PostPosted: Tue 14. Jun 2011 12:56
by bimmer
gunnar wrote:Ég get lagt til gos í Kraftsgrillið ef af því verður.

Sá sem myndi vera ábyrgðarmaður grillsins getur haft samband við mig.


Gunnar - 6602608


Like á þetta :thup:

Re: Bíldagar 2011

PostPosted: Tue 14. Jun 2011 15:47
by MR.BOOM
Allt að gerast.........eða ekki :arrow: :arrow: :arrow: :arrow: :?: :?: :?:

Re: Bíldagar 2011

PostPosted: Tue 14. Jun 2011 16:31
by Solid
Allt í gangi sýnist mér :mrgreen:

Re: Bíldagar 2011

PostPosted: Tue 14. Jun 2011 16:39
by Danni
Hvernig hefur þetta verið með grillið? Hefur þurft að tala við einhvern til að fá leyfi til að grilla þarna eða er bara mætt með kol, olíu kveikjara og mat og grillað? Síðan þarf væntanlega einhver að hreinsa til á svæðinu, taka allt rusl og svona.

Hérna er dagskráin eins og hún er núna:

Föstudagurinn 17. júní 2011
11:00-21:00 Bílasýning (veit ekki hvar)
22:00 Kvöldvaka og Burnout á nýja svæði Bílaklúbbs Akureyrar

Laugardagurinn 18. júní 2011
14:00-16:00 Græjukeppni á Glerártorgi
17:00 Götuspyrnan
Eftir götuspyrnuna eða kl 20:00 verður Live2Cruize með grill í Kjarnaskógi.

Sunnudagurinn 19. júní 2011
14:00 Drift á nýja svæði Bílaklúbbs Akureyrar.

Laugardagurinn er alveg þéttur svo það er eiginlega ekki hægt að koma samkomu fyrir þar.
Hvað með að hafa kannski samkomu á föstudeginum klukkan 17:00 og síðan grillið sama dag klukkan 19:00 eða 20:00?

Ef að engum lýst á grillið þá er það allt í lagi en mér finnst alveg lágmark að það verði BMW Krafts samkoma. Þetta eru nú Bíladagar og það er bara slappt ef að þessi bílaklúbbur tekur engan þátt í þeim!

Re: Bíldagar 2011

PostPosted: Tue 14. Jun 2011 17:47
by JonFreyr
Ég get tekið að mér að syngja þýska slagara í gegnum webcam ef einhver verður með laptop og nettengingu við grillið.