Page 1 of 1

E30 með skálabremsur

PostPosted: Tue 07. Jun 2011 01:32
by Steewen
Sælir.

Ég er með 84 E30 með skálar að aftan. Málið er það að mig vantar eitt stykki inn í bremsuna öðru megin, það hefur glatast einhvers staðar þegar fyrri eigandi reif þetta.

Það er sem sagt stykki #4 á meðfylgjandi mynd.

Er einhver ykkar sem er með skálabremsur undan svona bíl og gæti reddað mér?

Image

Re: E30 með skálabremsur

PostPosted: Wed 08. Jun 2011 21:43
by Steewen
Enginn sem hefur rifið eða er að rífa svona bíl?

Re: E30 með skálabremsur

PostPosted: Wed 08. Jun 2011 22:20
by Grétar G.
Veit ekki með þetta stykki ennnn..

Get selt þer plug and play 325 bremsur.. Ny uppteknardælur, nyjir klossar, nyjir borðar, ny renndir diskar og skalarnar inni ;)

Re: E30 með skálabremsur

PostPosted: Thu 09. Jun 2011 00:05
by Steewen
Tjahh.. Það var nú ekki það sem ég hafði hugsað mér, en þú mátt svosem alveg skjóta á mig verði.

Re: E30 með skálabremsur

PostPosted: Thu 09. Jun 2011 16:25
by auðun
skiptir þetta nokkru mali. Er þetta ekki sjalfherðibunaðurinn sem virkar hvort eð er ekkert alltaf. Getur bara stungið inn skrufjarni þegar þær fara að verða slappari

Re: E30 með skálabremsur

PostPosted: Thu 09. Jun 2011 17:19
by Axel Jóhann
Jú, þú þarft ekki nauðsynlega að hafa þetta. :thup:

Re: E30 með skálabremsur

PostPosted: Thu 09. Jun 2011 19:24
by oddur11
eina vitið er að kaupa 325 dæmið af Gretari ;)

Re: E30 með skálabremsur

PostPosted: Fri 10. Jun 2011 14:07
by Steewen
Jæja, er sem sagt bara málið að rífa þennan útherslu búnað úr og runna án hans? Allavega svona þangað til bíllinn fær nú diska að aftan, sem mun gerast.

Re: E30 með skálabremsur

PostPosted: Fri 10. Jun 2011 16:08
by Axel Jóhann
Já, gerðu það, þetta þarf ekkert að vera þarna!

Re: E30 með skálabremsur

PostPosted: Fri 10. Jun 2011 23:12
by maggib
annars á ég skálar og allt inní þær (geri ég ráð fyrir)
sem þú mátt hirða ef þú nennir að keyra eftir því!

Re: E30 með skálabremsur

PostPosted: Tue 14. Jun 2011 17:40
by Grétar G.
Buinn að redda þessu stykki fyrir þig ef þig vantar það ennþa ;)