Smá beyglur....

Posted:
Wed 24. Mar 2004 12:43
by BMW_Owner
það er ekki sú hurð á bílnum mínum sem er beyglulaus það er alltaf einhver smá dæld inn,þegar maður lítur svona á hliðina á honum eða eftir hliðinni þá sér maður þetta vel þannig ég var að pæla hvort það sé einhver góð aðferð og ódýr sem ég get reddað þessu?auðvitað er hægt að slípa þetta sparsla slípa og mála en er ekki til eitthvað dót sem bara sogar þetta út eða er ég bara að rugla?
kv.BMW_Owner


Posted:
Wed 24. Mar 2004 13:59
by Leikmaður
...svona beyglur eru algjör viðbjóður og alveg hræðilegt að sjá t.d. nýlega bíla svona...
....Ráðið mitt við þessu er bara, passaðu hvar þú leggur bílnum þínum, t.d. ekki í þröng stæði þar sem að bílar eru sitthvorum megin við þig, því margt fólk tekur ekki einu sinni eftir því þegar að það skellir hurðinni utan í bílinn þinn þegar að það hlunkast inn í sinn bíl....
Hehe, það fer einmitt mjög í taugarnar á félögunum þegar að við förum t.d. í bíó og maður kýs að labba lengra heldur en að troða sér á milli tveggja vafasamra bíla.....
just my two cents


Posted:
Wed 24. Mar 2004 15:10
by jens
Hef bara heyrt gott af þessu fyrirtæki, því ekki að hringja og fá verð.

Posted:
Wed 24. Mar 2004 15:38
by uri
Ég talaði við þá, 7.000kr fyrir eina dæld svo lækkar það eftir fjölda. Sögðust taka um 40.000kr fyrir bíl með 13-15 dældir, tæki þá daginn að gera við það.

Posted:
Wed 24. Mar 2004 16:03
by gstuning
40kall er ekki neitt fyrir svona margar dældir

Posted:
Wed 24. Mar 2004 18:51
by Haffi
nei 40 kall er bara gott verð!!
ég kýs að leggja í 2 stæði og helst langt frá öllum
En á mínum núverandi legg ég bara þar sem er pláss


Posted:
Wed 24. Mar 2004 19:35
by BMW_Owner
ég fékk bílinn svona beyglaðan(það var fáviti sem átti hann) og mér finnst þetta ekkert sérstaklega flott í samanburði við það að ég er að fara fá mér 17"Felgur og silfurgrindur framan á greyið
kv.BMW_Owner


Posted:
Wed 24. Mar 2004 20:39
by Svezel
Ég kannast við þetta, það hafa nokkrar sveskjur átt bílinn minn og hann er svona hurða dældaður á nokkrum stöðum. Ætla að láta laga þetta í sumar
Ég hata fólk sem skellir hurðum í bíla


Posted:
Wed 24. Mar 2004 20:48
by BMW_Owner
Nákvæmlega það er eins og sumt fólk eigi heiminn.....ég var að senda honum gunnar eitthvað sem er með þetta email og ég bað hann um að gera mér tilboð í þetta og ef hann getur reddað mér góðum afslætti á þessu er þetta vel athugandi
kv.BMW_Owner
ps. það sem er líka að þegar maður er að taka mynd af honum þá er erfitt að finna stað þar sem dældirnar sjást ekki (hef gaman að því að taka myndir af bimmanum)


Posted:
Wed 31. Mar 2004 01:23
by Thrullerinn
Svezel wrote: Ég hata fólk sem skellir hurðum í bíla

GÆTI ekki verið meira sammála !!

Posted:
Wed 31. Mar 2004 12:28
by Chrome
Iss...ég þarf alltaf að passa mig á hafa eitt stæði milli mín og næsta bíls þeim megin sem mamma situr ef hún er með...

hún og systir mín geta ekki opnað bílhurð án þess að hreynlega berja þeim út af öllu afli...


Posted:
Wed 31. Mar 2004 13:34
by force`
ég legg í 2 stæði ef ég fer á einhvern public place, nema ég hreinlega neyðist til að leggja í venjulegt stæði, og bíllinn minn passar í fæst venjuleg stæði, ég get td. ekki lagt eðlilega í kringlunni, smáralind, ikea, því að þar er bara frá afturrúðu og aftur sem að stendur útá "götuna".
Mig langar í aðeins stærri stæði hérna, það er ekkert rosalega erfitt, því að það er talsvert ódýrara myndi ég segja að mála bara aðeins breiðari stæði en að vera sífellt að taka þátt í að borga einhverjar skemmdir sem eru ansi margar þegar er litið yfir árið.
Annars þá er hægt að skoða svona stór og flott stæði uppá velli, bíllinn hjá mér SMELL passar í stæðin þar.
Það er svo mikið af fólki sem að sparkar upp hurðunum á bílunum sínum, eldra fólk og feitar konur og karlar, svona sem dæmi, (ekker ílla meint gagnvart feita fólkinu, þið gerið þetta bara) og hurðin endar oftast utaní næsta bíl.
Mér finnst fólk sem er að gera bílastæði fyrir verslanir sínar megi hugsa aðeins útí bílastæðaplássin hérna, þetta er fáránlegt, hver bíll rétt passar inn á milli hvítu línanna svo er bara að vona að enginn leggi ílla við hliðina á þér.

Posted:
Wed 31. Mar 2004 15:22
by Lindemann
það mætti halda að bílastæði séu ekki hönnuð með stærri bíla en yaris í huga


Posted:
Wed 31. Mar 2004 15:27
by Aron
Jámm, stend alltaf útur stæðum við smáralindina, ákaflega leiðingjarnt til lengdar