Page 1 of 1

Gat á bensintank í E36

PostPosted: Fri 03. Jun 2011 15:30
by Gunni13
Ég var að komast að því þessa dagana að bíllinn minn bleytir malbikið sem hann keyrir á. Þessi bíll er E36 318 cabrio. Er eitthver hér sem gæti tekið að sér að gera við svona? Ef svo er væri ég til í að fá skilaboð um hvað sá hinn sami myndi taka fyrir þetta svona sirka og hvenær hann gæti lokið verkinu.

Takk Takk. Gunnar Atli s. 844-8832

Re: Gat á bensintank í E36

PostPosted: Sat 04. Jun 2011 11:46
by IvanAnders
Það er plasttankur í E36, ertu viss um að tankurinn sjálfur leki?

Re: Gat á bensintank í E36

PostPosted: Sat 04. Jun 2011 17:18
by ValliFudd
Lekur líka á coupe hjá mér, ef ég fer yfir 40 lítra.. Einhver nefndi einhver samskeyti, gúmmíhring eða eitthvað. Er eitthvað algengara en annað í þessu? Þarf að fara að gera eitthvað í þessu sjálfur líka :)

Re: Gat á bensintank í E36

PostPosted: Sat 04. Jun 2011 19:57
by Gunni13
Tjah, það hlýtur eiginlega að vera að tankurinn leki því það skiptir engu máli hvað er mikið á tanknum, hann lekur. Reyndar getur verið að það leki bara þegar hann er i gangi þar sem ég hef aldrei komið að honum bensínlausum. Þekkist það eitthvað að það leki með slöngum eða eitthvað í svona bílum? væri þá kannski ekkert mál að laga þetta með því að herða eina eða tvær skrúfur? Ef eitthver hér sem kann vel á svona og væri til i að kíkja á þetta þá endilegaa bjalla í mig, 844-8832. Kv. Gunnar Atli