Page 1 of 1

320 eða 330 D ?

PostPosted: Wed 01. Jun 2011 22:54
by GudmundurGeir
Þetta er erfitt val!

Báðir bílar á svipuðum verðum...

'03 e46 station 320d , svartur, hrikalega flottur ekinn 145.000km

eða

'01 e46 station 330d, silfur , ekki alveg jafnflottur og svarti og ekinn 260.000km.

Báðir á nánast sama verði...? Hvað mynduð þið taka? Hvernig er þessi keyrsla á 330 bílnum? Og hvorn er auðveldara að selja aftur ?

Hjálp þegin, þekki voðalega lítið þessa bíla. :)

Re: 320 eða 330 D ?

PostPosted: Wed 01. Jun 2011 23:01
by ppp
Þú ert nú ekki að gefa okkur mikið til að dæma. Engar myndir eða neitt.

En varðandi keyrsluna, þá myndi ég spyrjast fyrir um hvort það hafi verið skipt um túrbínu í báðum þessum bílum. Ef það er nýbúið að skipta um í öðrum hvorum þá er það ansi mikill kostur.

En fyrir utan túrbínurnar þá er þessi keyrsla ekkert fyrir svona vélar.

Re: 320 eða 330 D ?

PostPosted: Wed 01. Jun 2011 23:24
by jens
Ég hef verið í þessum pælingum sjálfur og búin að skoða nokkra af þessum E46 diesel bílnum sem eru á sölu. Það er alveg á hreinu að km á mæli skipta griðalega miklu máli þegar kemur að því að velja bíl. Ég myndi halda að 200 þús km væri sú keyrsla sem útheimti viðhald á þessar vélar. Hef þá hugmynd eftir að skoða einn svoleiðis sundurrifinn og tekið á túrbínunni, talað við bifvélavirkja sem á svona bíl og hefur gert við marga þessara bíla. Einnig hef ég prófað bíla ekna frá 160 þús og upp í 240 þús km.
Ég veit hvaða svarti bíll þetta er, hef ekki skoðað hann en hann er nýlega kominn á sölu. Hann er mjög flottur.

330D er freystandi en myndi halda að þessi akstur væri erfiður þegar kemur að endursölu.

Re: 320 eða 330 D ?

PostPosted: Wed 01. Jun 2011 23:29
by GudmundurGeir
Þeir hafa ekki farið í túrbínuskipti... hvorugur. 330 er þéttur og góður. Þó mér fynnist keyrslan ekkert hræðileg þá er einmitt endursala sem ég er að spá í... ef ég myndi selja hann. Svo er það við 320 að hann er tjónabíll.... en samt mjög flottur og lítið ekinn.

Re: 320 eða 330 D ?

PostPosted: Wed 01. Jun 2011 23:33
by ppp
Þú segir að þeir séu á sama verði og að það sé erfitt að velja. Er ekki málið bara að prútta meira þá? Annar þeirra hlýtur að vera til í að lækka meira ef þú ert búinn að narrowa þetta niður í þessa tvo bíla.

Og ég væri skíthræddur við ástandið á túrbínuni á þessum 260þús bíl ef hún hefur aldrei verið tekin upp. Annars hefur aukabúnaður eitthvað að segja líka.

Re: 320 eða 330 D ?

PostPosted: Thu 02. Jun 2011 00:01
by JOGA
Mjög ólíklegt að það sé orginal túrbína í 330 bílnum. Þær eru nú ekki að duga svona lengi held ég.
Aftur á móti alls ekki ólíklegt að það sé orginal bína í 320d.

Ég myndi annars velja bílinn eftir því hver tilgangurinn með honum er.
Ef þetta er hugsað sem family/daily bíll þá hljómar 320d sem góður kostur.

Ef þetta á að vera eitthvað meira en það þá er 330d augljós kostur. Keyrslan myndi samt hræða mig líka, einmitt út af áður nefndri endursölu.

Re: 320 eða 330 D ?

PostPosted: Thu 02. Jun 2011 00:58
by BjarkiHS
Orðið tjónabíll er neinei fyrir mig í bílaviðskiptum.. allavega ef um er að ræða einhverja peninga að ráði.
t.d taka umboð tjónabíla (bíla sem hafa verið í eigu trygginga) ekki uppí.

Re: 320 eða 330 D ?

PostPosted: Thu 02. Jun 2011 16:13
by íbbi_
330 bíllinn verður alltaf nálægt 300k þegar þú selur hann, og fer að lækka verulega í verði

Re: 320 eða 330 D ?

PostPosted: Thu 02. Jun 2011 16:38
by Djofullinn
Persónulega myndi ég bara flytja inn einn facelift 330d, t.d þennan:

http://suchen.mobile.de/fahrzeuge/showD ... geNumber=1


Eða þessi ef þú vilt endilega Touring :)

http://suchen.mobile.de/fahrzeuge/showD ... geNumber=2

Re: 320 eða 330 D ?

PostPosted: Thu 02. Jun 2011 16:47
by jens
Heldur að þetta gæti borgað sig að taka bíl frá .de ?

Re: 320 eða 330 D ?

PostPosted: Thu 02. Jun 2011 16:47
by Djofullinn

Re: 320 eða 330 D ?

PostPosted: Thu 02. Jun 2011 16:48
by Djofullinn
jens wrote:Heldur að þetta gæti borgað sig að taka bíl frá .de ?

Já held það, 330d fara í 45% tollflokk

Re: 320 eða 330 D ?

PostPosted: Thu 02. Jun 2011 16:50
by jens
Djöfull væri ég til í þennan ef hann væri sjálfskiptur.
Þetta væri 1 milljón + fluttningur, tollar og gjöld ?

Re: 320 eða 330 D ?

PostPosted: Thu 02. Jun 2011 16:56
by Djofullinn
jens wrote:Djöfull væri ég til í þennan ef hann væri sjálfskiptur.
Þetta væri 1 milljón + fluttningur, tollar og gjöld ?

Eflaust hægt að fá hann á 5000 evrur, sem er þá 825 þús.
Sem gerir 1,6 - 1,7 heim kominn með Norrænu.
Þá ertu með 2002 330d ekinn 169 þús og á frekar dýrum BBS CH felgum :)