Page 1 of 2

Hvar er besta verðið á body hlutum?

PostPosted: Wed 01. Jun 2011 14:46
by elfar_90
Veit einhver um ódýra bodyhluti á e39 eins og framstuðara og afturstuðara og fleira?

Re: Hvar er besta verðið á body hlutum?

PostPosted: Wed 01. Jun 2011 14:50
by Einarsss
Prófaðu að heyra í AB varahlutum, þeir hafa verið sanngjarnir á verðinu

Re: Hvar er besta verðið á body hlutum?

PostPosted: Wed 01. Jun 2011 15:03
by JOGA
Skella sér bara á ebay og versla M-tech :)

Re: Hvar er besta verðið á body hlutum?

PostPosted: Wed 01. Jun 2011 15:30
by elfar_90
Tja var að skoða ebay :P vildi bara forvitnast og læra hvar er hægt að fá bestu verðin :P var að detta í þetta geggjaða sumarfrí og ætlaði að nota tækifærið að fara vinna eitthvað í bílnum :)

Re: Hvar er besta verðið á body hlutum?

PostPosted: Wed 01. Jun 2011 16:15
by SteiniDJ
Færð sennilegast ekki ódýrari parta en á eBay, en ef það er ekki fyrir þig (oft alveg brútal flutningsgjöld) þá eru AB góðir!

Re: Hvar er besta verðið á body hlutum?

PostPosted: Thu 02. Jun 2011 09:33
by maggib
hringdi í b&l ih til að kanna verð á bretti á e30, þeirra verð var 80.000
hringdi svo í AB og þeirra verð var 21.000 (náttúrulega aftermarket en hei...)

Re: Hvar er besta verðið á body hlutum?

PostPosted: Thu 02. Jun 2011 17:44
by elfar_90
er bara rán að fara til b&l hef ég heyrt, skiftir ekki máli ef þú ert að fá hluti í bíllinn eða bara fara í viðgerð

Re: Hvar er besta verðið á body hlutum?

PostPosted: Fri 03. Jun 2011 08:56
by Dr. Stock
Keypti nýverið 2 bretti og afturbrettabogana báða einnig á E30. borgaði f. allt þetta um 90.000kr hjá AB. Mjög góð þjónusta og viðmót þar. Virðist í góðu lagi með þessa hluti. Bara ryðverja brettin vel að innan!! þá duga þau vel. Gleyma B&L varðandi varahluti. Pelicanparts.com svo alveg frábær síða með flesta íhluti í BMW.

Re: Hvar er besta verðið á body hlutum?

PostPosted: Fri 03. Jun 2011 21:30
by Lindemann
versta við marga þessa aftermarket boddíhlut er að þeir passa hrikalega illa. Sumir eru aftur á móti alveg í lagi.

Re: Hvar er besta verðið á body hlutum?

PostPosted: Fri 03. Jun 2011 21:55
by íbbi_
það hefur nú verið málið.. þótt ég hafi ekki ppersónulega reynslu af boddýhlutum úr ab neitt nýlega allavega

Re: Hvar er besta verðið á body hlutum?

PostPosted: Fri 03. Jun 2011 22:40
by Sezar
Ég á nú fram og afturstuðara á e39 fyrir fair price :wink:

Re: Hvar er besta verðið á body hlutum?

PostPosted: Sat 04. Jun 2011 00:14
by SteiniDJ
Lindemann wrote:versta við marga þessa aftermarket boddíhlut er að þeir passa hrikalega illa. Sumir eru aftur á móti alveg í lagi.


Þessir partar sem voru verslaðir á E30 pössuðu 100%.

En það er aldrei hægt að véfengja það að OEM er alltaf best í svona málum.

Re: Hvar er besta verðið á body hlutum?

PostPosted: Sat 04. Jun 2011 00:15
by Alpina
SteiniDJ wrote:
En það er aldrei hægt að véfengja það að OEM er alltaf best í svona málum.


Samanber bensíndælurnar í E39 M5

Re: Hvar er besta verðið á body hlutum?

PostPosted: Sat 04. Jun 2011 00:22
by SteiniDJ
Alpina wrote:
SteiniDJ wrote:
En það er aldrei hægt að véfengja það að OEM er alltaf best í svona málum.


Samanber bensíndælurnar í E39 M5


Mín virkar helvíti vel.

Og svo til þess að koma í veg fyrir að einhver myndi taka þetta úr samhengi, þá bætti ég við "í svona málum", en þá er ég auðvitað að tala um body parta.

Það skal enginn segja mér það að venjan sé að aftermarket body partar passi yfirleitt betur en OEM partar. :lol:

Re: Hvar er besta verðið á body hlutum?

PostPosted: Mon 06. Jun 2011 08:28
by Jón Ragnar
Lindemann wrote:versta við marga þessa aftermarket boddíhlut er að þeir passa hrikalega illa. Sumir eru aftur á móti alveg í lagi.



Segðu, lentum í geðveikum vandræðum með eitt frambrettið á Golfinn okkar

Skelfilegt fitment :thdown: