Page 1 of 3

Felgupæling

PostPosted: Fri 27. May 2011 03:17
by Joker
Sælir

Ósköp einföld spurning. Er e39 540 að fara rása meira í hjólförum á 8" breiðum að framan og 9" að aftan.......heldur en 8" allan hringinn ?

Semsagt er verra að vera á "staggered"? felgum uppá akstursþægindin að gera ?

Fyrirfram þökk.

Re: Felgupæling

PostPosted: Fri 27. May 2011 10:45
by Logi
Á ekki að skipta neinu máli ef allt er í standi í hjólabúnaði og hjólastilling í lagi!

Re: Felgupæling

PostPosted: Fri 27. May 2011 11:31
by srr
Rásar hann ekki meira ef hann er á breiðari dekkjum að framan,,,,,,en að aftan ætti ekki að skipta miklu máli.

Hjólförin í Reykjavík eru bara rugl,,,,,ekkert sem hvetur mann að kaupa sér breið dekk :thdown:

Re: Felgupæling

PostPosted: Fri 27. May 2011 11:33
by Einarsss
minn rásar svolítið í hjólförum með breiðari dekk að aftan.. byrjaði um leið og það fóru breiðari dekk á.. allar fóðringar/spindlar í lagi ásamt að vera ný hjólastilltur

Re: Felgupæling

PostPosted: Fri 27. May 2011 16:11
by Joker
Okei takk fyrir svörin :D

Re: Felgupæling

PostPosted: Fri 27. May 2011 16:15
by Haffi
Finn ekki fyrir neinu á mínum 245 að framan og 275 að aftan.

Re: Felgupæling

PostPosted: Fri 27. May 2011 16:19
by Joker
Þinn kemur líka orginal á 245 og 275. Og er ekki allt annar undirvagn á M5 en restinni af e39.

Re: Felgupæling

PostPosted: Fri 27. May 2011 16:22
by SteiniDJ
Eru það ekki dekkin sem spila líka mest inn í þetta?? Rásar ágætlega á Cooper, en varð ekki var við það eins mikið og á Dunlop.

Re: Felgupæling

PostPosted: Fri 27. May 2011 16:23
by kalli*
Ég er til dæmis á 8" allann hringinn og minn rásar.

Re: Felgupæling

PostPosted: Fri 27. May 2011 16:37
by Joker
Er það kalli :? Er þetta eitthvað mikið?

Re: Felgupæling

PostPosted: Fri 27. May 2011 16:41
by Joker
En jú...ég hef oft heyrt það að dekkin spili helling inní. En hvernig i andskotanum veit ég hvaða dekk eru að fara að rása og hver ekki?

Re: Felgupæling

PostPosted: Fri 27. May 2011 16:44
by SteiniDJ
Ég myndi skjóta á að hörð dekk rási meira en mjúk dekk, svo getur verið að sum munstur rási meira en önnur.

Re: Felgupæling

PostPosted: Fri 27. May 2011 17:41
by kalli*
Joker wrote:Er það kalli :? Er þetta eitthvað mikið?


Hann á það til að gera það smá stundum, það er reyndar voðalega lítil munstur á dekkjunum, spurning
hvort það hafi eitthvað með þetta að gera. (Ekki gleyma hvað vegirnir hérna eru frábærir)

Re: Felgupæling

PostPosted: Fri 27. May 2011 18:18
by Joker
SteiniDJ wrote:Ég myndi skjóta á að hörð dekk rási meira en mjúk dekk, svo getur verið að sum munstur rási meira en önnur.


Hehe já það meikar mikinn sense þegar þú segir það

Re: Felgupæling

PostPosted: Fri 27. May 2011 18:19
by Joker
kalli* wrote:Hann á það til að gera það smá stundum, það er reyndar voðalega lítil munstur á dekkjunum, spurning
hvort það hafi eitthvað með þetta að gera. (Ekki gleyma hvað vegirnir hérna eru frábærir)


Jújú vegirnir á þessu skeri eru eina ástæðan fyrir því að ég er eitthvað að spá í þessu :thdown: