Page 1 of 1

BMW Z3

PostPosted: Thu 28. Apr 2011 16:47
by ingolfur
Sælir félagar, er nýr hérna inni, var að festa kaup á Z3 roadster. Hef lengi ætlað að fá mér einhvern sumarbíl til að eiga með fjölskyldubílnum, sem ég geymi svo inni á veturna. Þegar ég var búin að leita dágóða stund stóð valið á milli Porche 944 eða BMW Z3 og sló ég bimmann þar sem ég hef átt marga Bimma áður, og hef ég mikið dálæti á þeim. Mjög skemmtilegur bíll og aksturseiginleikarnir eru mjög góðir, kom mér skemmtilega á óvart hversu stífur hann er og liggur vel, og ekki skemmir fyrir hvað þessir bílar eru fallegir, klassisk hönnun. Vélin er samt 1.8 og er hann hressilega kraftlaus samhvæmt því, enn ekki alveg dauður þó, nægir mér vel þar sem ég ætla bara að krúsa á honum á góðum dögum. Fyrst og fremst skemmtilegur lítill bíll með blæju, og sé ég ekki eftir að hafa valið hann frekar en porch-inn. Verður gaman að keyra hann í sumar með blæjuna niðri á sólardögum. Fekk bílinn með einhverju littlu sportstýri og sagði sá sem seldi mér að hann væri búin að gefa stýrið :) væri til í að fá orginal stýrið í hann helst með airbag, ef einhver hérna veit hvar ég fæ það, eða bara stýri úr einhverjum e-36 bíl ´96-01 sem dugar örugglega líka, væri flott að fá að vita það. Takk fyrir þessa frábæru síðu, á örugglega eftir að vera mikið hérna inni að skoða uppáhalds bílana mína.

Re: BMW Z3

PostPosted: Thu 28. Apr 2011 17:27
by doddi1
ingolfur wrote:Sælir félagar, er nýr hérna inni, var að festa kaup á Z3 roadster. Hef lengi ætlað að fá mér einhvern sumarbíl til að eiga með fjölskyldubílnum, sem ég geymi svo inni á veturna. Þegar ég var búin að leita dágóða stund stóð valið á milli Porche 944 eða BMW Z3 og sló ég bimmann þar sem ég hef átt marga Bimma áður, og hef ég mikið dálæti á þeim. Mjög skemmtilegur bíll og aksturseiginleikarnir eru mjög góðir, kom mér skemmtilega á óvart hversu stífur hann er og liggur vel, og ekki skemmir fyrir hvað þessir bílar eru fallegir, klassisk hönnun. Vélin er samt 1.8 og er hann hressilega kraftlaus samhvæmt því, enn ekki alveg dauður þó, nægir mér vel þar sem ég ætla bara að krúsa á honum á góðum dögum. Fyrst og fremst skemmtilegur lítill bíll með blæju, og sé ég ekki eftir að hafa valið hann frekar en porch-inn. Verður gaman að keyra hann í sumar með blæjuna niðri á sólardögum. Fekk bílinn með einhverju littlu sportstýri og sagði sá sem seldi mér að hann væri búin að gefa stýrið :) væri til í að fá orginal stýrið í hann helst með airbag, ef einhver hérna veit hvar ég fæ það, eða bara stýri úr einhverjum e-36 bíl ´96-01 sem dugar örugglega líka, væri flott að fá að vita það. Takk fyrir þessa frábæru síðu, á örugglega eftir að vera mikið hérna inni að skoða uppáhalds bílana mína.






góð saga


ég held samt að það væri meiri líkur á að þú finnir stýri ef þú óskar eftir því á réttum stað ;)

annars er ég alveg til í að skipta við þig á stýri, er með loftpúða og fínerí, borgar mér bara 35.000kjéééééll og málið er látið

Re: BMW Z3

PostPosted: Thu 28. Apr 2011 22:51
by Hreiðar
Í hvaða zetu varstu að fjárfesta í?

Virkilega smekklegir bílar :thup:

Re: BMW Z3

PostPosted: Fri 29. Apr 2011 10:30
by ingolfur
Takk fyrir boðið, en ég get fengið m-stýri fyrir 22500 á ebay, og það er hárrétt hjá þér, ætti að auglýsa eftir því á réttum stað.
kveðja ingo

Re: BMW Z3

PostPosted: Fri 29. Apr 2011 10:59
by Zed III
Til hamingju með bílinn. Zetan er flott og þú verður ekki fyrir vonbrigðum með hana.

Það er líka mjög lítið mál að skella stærri vél í bílinn ef þú villt aðeins meira kick.

Re: BMW Z3

PostPosted: Fri 29. Apr 2011 12:12
by F2
Hvaða 944 var þetta sem þú varst að spá í

Re: BMW Z3

PostPosted: Fri 29. Apr 2011 12:38
by tinni77
F2 wrote:Hvaða 944 var þetta sem þú varst að spá í


Þetta var þessi verandarbíll þarna


ingolfur wrote: Fyrst og fremst skemmtilegur lítill bíll með blæju, og sé ég ekki eftir að hafa valið hann frekar en porch-inn. Verður gaman að keyra hann í sumar með blæjuna niðri á sólardögum. Fekk bílinn með einhverju littlu sportstýri og sagði sá sem seldi mér að hann væri búin að gefa stýrið :) væri til í að fá orginal stýrið í hann helst með airbag, ef einhver hérna veit hvar ég fæ það, eða bara stýri úr einhverjum e-36 bíl ´96-01 sem dugar örugglega líka, væri flott að fá að vita það. Takk fyrir þessa frábæru síðu, á örugglega eftir að vera mikið hérna inni að skoða uppáhalds bílana mína.



:lol:

Re: BMW Z3

PostPosted: Fri 29. Apr 2011 15:18
by ingolfur
Þetta er rauður Porche 944 á svörtum felgum, ef það seigir eitthvað, og er eða var í Keflavík. Hann er 2.5 sjálfskiptur, sem mér finnst ekki gott, keirður 140þ. frá upphafi að sögn eiganda. nýbúið að bólstra hann allan upp að innan, og er hann virkilega flottur.

Re: BMW Z3

PostPosted: Fri 29. Apr 2011 23:10
by auðun
ég er 190 á hæð og mér fannst ómögulegt að sitja í z3. fannst betra að hafa blæjuna niðri og horfa uppfyrir gluggastykkið heldur en að hafa blæjuna uppi og bogra

Re: BMW Z3

PostPosted: Sat 30. Apr 2011 00:27
by doddi1
auðun wrote:ég er 190 á hæð og mér fannst ómögulegt að sitja í z3. fannst betra að hafa blæjuna niðri og horfa uppfyrir gluggastykkið heldur en að hafa blæjuna uppi og bogra



ég er 185 á hæð og mér finnst það tussufínt

Re: BMW Z3

PostPosted: Sat 30. Apr 2011 15:45
by Jón Ragnar
auðun wrote:ég er 190 á hæð og mér fannst ómögulegt að sitja í z3. fannst betra að hafa blæjuna niðri og horfa uppfyrir gluggastykkið heldur en að hafa blæjuna uppi og bogra




FREAK :shock: :shock: :shock:
:lol:

Re: BMW Z3

PostPosted: Sat 30. Apr 2011 15:51
by Thrullerinn
Ekki er þetta SV774 sem er btw gamla mín sem ég hef aldrei séð á sölu síðan ég seldi fyrir löngu löngu síðan.

Re: BMW Z3

PostPosted: Mon 02. May 2011 09:07
by ingolfur
Nei ekki er það sá bíll, þessi er grár með rauðbrúnu leðri.

Re: BMW Z3

PostPosted: Sat 07. May 2011 22:59
by Misdo
skelltu bara inn mynd af kvekendinu

Re: BMW Z3

PostPosted: Sat 07. May 2011 23:26
by -Hjalti-
skemmtilega tekið á móti nýliða hér eins og vanalega.