Page 1 of 1

BMW 318Ci til sölu hjá Toyota

PostPosted: Thu 21. Apr 2011 14:30
by matti steph
Sælir Kraftsmenn.
Ég fór í gær og prófaði BMW 318Ci, það sem ég fann að honum var að topplúgan virtist virka illa, höktaði áfram, hitamælirinn virkaði ekki og bílstjórasætið var með smá rifu.
Getið þið sagt mér e-h um bílinn? Hvað finnst ykkur sanngjarnt staðgreiðsluverð fyrir hann?

Hérna er linkur á bílinn:
http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1

Með fyrirfram þökkum
Matthías

Re: BMW 318Ci til sölu hjá Toyota

PostPosted: Thu 21. Apr 2011 21:58
by jens
Þekki ekki bílinn en ég skoðaði hann um daginn og verð að segja að þetta er alveg fáránlega mikill efniviður.
Ekkert ekinn og bara allur vel farinn, kæmi ekki á óvart að það væri bara einn eigandi.
Eini gallinn sem ég finn er að hann er sjálfskiptur, að öðru leiti áttu ekki að spá bara kaupa.

Engar líkur á að þú dettir niður á E46 Coupe aftur sem er svona vel með farinn.

Re: BMW 318Ci til sölu hjá Toyota

PostPosted: Fri 22. Apr 2011 02:07
by Hreiðar
Mjög flottur, innrétting er mjög sérstök sem gerir hann líka frekar cool bara. Keyptu hann!

Re: BMW 318Ci til sölu hjá Toyota

PostPosted: Fri 22. Apr 2011 08:31
by Vlad
Þessi innrétting :shock:

Re: BMW 318Ci til sölu hjá Toyota

PostPosted: Sat 23. Apr 2011 23:18
by A.H.
Þetta ásetta verð er töluvert of hátt að mínu mati.

Bara mín skoðun.

Bíllinn look-ar reyndar vel. Hef ekki skoðað hann með eigin augum en það er spurning hvort að mynd nr. 3 á bílasölur.is sýni hugsanlega ákveðna mislitun á bílstjórahurð og svæðinu fyrir aftan hana. Kannski er þetta bara missýn hjá mér en þetta er eitthvað sem vert er að skoða.

Þegar upp er staðið er þetta spurning um hvað það kostar þig að bæta úr því sem er að bílnum (maður vill nú að hitamælir og topplúga virki) og hvað hægt er að fá hann á staðgreitt...

Gangi þér vel með þetta.

Re: BMW 318Ci til sölu hjá Toyota

PostPosted: Sun 24. Apr 2011 13:31
by Wolf
Held að þetta sé bíll sem ætti ekki að þurfa að fara á einhverju brunaútsöluverði,,,

Væri ekki fair að borga um 1.1-1250 fyrir hann...?

Svo getur vel verið að lúgan sé bara stirð útaf notkunarleysi og væri þá örugglega hægt að smyrja sleðana...

Þú ert væntanlega að tala um að vélarhitamælirinn virki ekki,,? eða þá að útihitamælirinn hafi sýnt -55 gráður ?

Re: BMW 318Ci til sölu hjá Toyota

PostPosted: Sat 14. May 2011 22:13
by Joker
Keyrði frammhjá honum í dag og á mynd nr.3 er hann klárlega mislitur. Félagi minn segir samt að hann sé ekki skráður tjónabíll.

Re: BMW 318Ci til sölu hjá Toyota

PostPosted: Mon 16. May 2011 00:51
by Sezar
Joker wrote:Keyrði frammhjá honum í dag og á mynd nr.3 er hann klárlega mislitur. Félagi minn segir samt að hann sé ekki skráður tjónabíll.


Hann þarf nú ekki að vera tjónabíll þó að hann sé mislitur :wink:

Ein Hagkaupsbeygla gæti verið orsök td

Re: BMW 318Ci til sölu hjá Toyota

PostPosted: Sun 22. May 2011 19:47
by Joker
Nei nei sagði það heldur ekki, þetta hefur kannski komið eitthvað vitlaust útúr mér :)