Page 1 of 1
móða í framljósi

Posted:
Thu 31. Mar 2011 19:31
by Andribt
ég er með e90 bmw og annað ljósið er að fyllast af móðu er einhvað hægt að taka hana og koma í veg fyrir að hún komi aftur?

Re: móða í framljósi

Posted:
Thu 31. Mar 2011 20:35
by KFC
er þetta ekki galli?
ertu búinn að tala við b&l
Re: móða í framljósi

Posted:
Thu 31. Mar 2011 21:21
by ÁgústBMW
Þetta er líka í mínum, tók ljósið af setti það á ofn yfir eina nótt og þá fór það svo var það að koma aftur og það kemur vatnspollur þannig ég var
að taka það úr núna og sá pínulitla sprungu snéri ljósinu við setti það á ofn svo þegar vatnið er farið ætla ég einhvern veginn að þétta gatið
þannig þetta gerist ekki aftur.
Re: móða í framljósi

Posted:
Thu 31. Mar 2011 23:43
by Hrannar E.
Þetta er líka svona á mínum e90 hvergi að sjá sprungu eða álíka á ljósinu
Re: móða í framljósi

Posted:
Fri 01. Apr 2011 18:29
by ÁgústBMW
Hrannar E. wrote:Þetta er líka svona á mínum e90 hvergi að sjá sprungu eða álíka á ljósinu
Hún er pínulítil innan við ljósið sá hana þegar ég tók það úr þá lak vatnið þar út, annars er þetta einhver galli þetta er líka í e53 X5 hjá pabba.
Re: móða í framljósi

Posted:
Fri 01. Apr 2011 18:54
by Hrannar E.
Já okei.... þá er bara að splæsa í ný framljós með projecterum og angel eyes
Það er allavega draumurinn
Re: móða í framljósi

Posted:
Fri 01. Apr 2011 21:54
by Andribt
jáá þetta er leiðilegt en ég nenni ekki að vera taka ljósið úr og hafa það á ofni yfir nótt og svo verður þetta aftur eins eftir nokra daga er ekkert hægt að koma í veg fyrir þetta? eða er þetta bara galli?
Re: móða í framljósi

Posted:
Fri 01. Apr 2011 23:47
by markusk
Ég lenti í þessu með minn E90 (Xenon ljós) eftir peruskipti hjá TB... þeim tókst að brjóta lokið aftan á ljósinu og neituðu að viðurkenna það, þannig ég fer aldrei aftur með bílinn minn til TB... Endaði á því að ég þurfti að kaupa nýtt ljós sem var alls ekki ódýrt, en B&L gáfu mér góðan afslátt á meðan TB vildi ekki gera neitt fyrir mig...
Re: móða í framljósi

Posted:
Sun 04. Dec 2011 05:04
by Saevarg
Hvað er best að gera í svona ?

Re: móða í framljósi

Posted:
Sun 04. Dec 2011 11:39
by Hemmi
Eitt ráð er að þurka ljósið yfir ofni og troða slatta af silica gel pokum inn í það.

Re: móða í framljósi

Posted:
Mon 05. Dec 2011 15:21
by lacoste
Kippa því í sundur og kítta saman uppá nýtt, þ.e. ef það er engin sprunga í plastglerinu.
Ef það er sprunga, þá má reyna að þétta hana með ogguponsu glæru kítti að innan.
Eða kaupa nýtt gler, glerið á pre-facelift e46 eins og þú Sævar ert með kostar bara einhvern 5þus kall.
mbk.Tómas