Page 1 of 1

Aukin sala á BMW-bílum hjá B&L

PostPosted: Tue 16. Mar 2004 22:14
by Aron
er þetta ekki það sem að er í gangi bara allstaðar?



http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/fr ... id=1076255

PostPosted: Tue 16. Mar 2004 22:32
by Kull
Menn hefðu átt að rakka Bange meira niður :P

PostPosted: Wed 17. Mar 2004 00:00
by bjahja
Kull wrote:Menn hefðu átt að rakka Bange meira niður :P

Nákvæmlega, hann er það sem BMW þurfti

PostPosted: Wed 17. Mar 2004 08:36
by bebecar
Ég er nú búin að halda því fram frá upphafi að Bangle hafi haft hugrekkið sem þurfti til að stíga skref fram á við í hönnun (eða allavega stíga skref) ólíkt t.d. Benz sem eru með óvenju staðnaða bíla í dag.

Það er svo spurning hvort við ættum að útbúa undirskriftarlista honum til stuðnings því nú er verið að færa kappann og hann á að sjá um ímynd BMW - nokkuð sem lyktar sem redding til að koma honum frá hönnuninni.

En kannski kemur bara enn betri maður að eþssu næst :wink:

PostPosted: Wed 17. Mar 2004 09:11
by jonthor
Gott shitt

PostPosted: Wed 17. Mar 2004 14:41
by Thrullerinn
Sýnist þetta vera að ganga upp hjá Bangle, hlakka til að sjá þristinn !!

PostPosted: Wed 17. Mar 2004 14:57
by bebecar
Ásinn gæti orðið spennandi, hann myndast einmitt ílla þannig að hann ætti að vera flottur "in the flesh" :wink:

PostPosted: Wed 17. Mar 2004 17:11
by Jói
Kemur lítið á óvart að B&L selji fleiri BMW núna en á sama tíma og í fyrra, þar sem að það kom ný fimma og Z4 og þessum tíma.

BMW er samt að standa sig vel í að ná til alls konar markhóps. Benz hefur ekki tekist þetta því A og C bíllinn eru alls ekki nógu skemmtilegir til að höfða til ungs fólks.

Skv. bgs.is hefur B&L selt 25 BMW frá 1. janúar 2004 til 12. mars, samanborið við 14 hjá Audi, 7 hjá Benz, 19 hjá Lexus og 40 hjá Volvo. Á sama tíma í fyrra seldi B&L 15 BMW.

En á þessari síðu eru hrikalegar tölur fyrir MB. Ræsí tókst aðeins að selja 35 Benza í fyrra sbr. við 85 hjá BMW, 85 hjá Audi, 100 hjá Lexus og 213 hjá Volvo. :shock: Ekki nema furða að Daimler vildi ekki hafa umboðið hjá Ræsi lengur.

http://www.bgs.is/vikutolurDefault.asp

PostPosted: Thu 18. Mar 2004 09:45
by Jss
:clap: :clap: :clap: Ég bíð líka mjööög spenntur eftir ásnum, og M2. :twisted:

PostPosted: Thu 18. Mar 2004 13:14
by gunnar
Ekkert nema gott :lol: