Page 1 of 2

Need Bmw M5

PostPosted: Mon 28. Mar 2011 19:21
by Tombob
Sælir félagar,

Ég er í smá vandræðum og langar að biðla til ykkar kæru kraftsmenn að koma til aðstoðar.

Þannig er mál með vexti að ég er að fjárfesta í fasteign og hef þar af leiðandi þurft að selja Bmw M5 bifreið mína. Þetta er hið versta mál þar sem ég er vanur að keyra um á Bmw M5, það má segja að það sé partur af mínum lífsstíl. Ég var að spá í hvort ekki væri hægt að biðja ykkur um styrk til að ég geti haldið áfram að keyra um á Bmw M5? Núverandi bíll er Suzuki Swift ´98 model (með hita í sætum, central og rafmagni í rúðum) sem er bara ekki nærri því eins skemmtilegur. Ég fæ reyndar bíl konunar stundum lánaðan (Volvo XC90) en það er hennar bíll en ekki minn.

Ég rakst á þennan bíl á sölu um daginn og leist vel á. http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid=32&cid=240539&sid=174585&schid=f4e445ae-b398-46e0-93f9-e8fc004b92ea&schpage=2

Nú er að sjá hvernig fólk tekur í þetta. Ég ætla að pósta þessu á barnalandi.is líka.

Kv,
Tombob

p.s. ekki leyfa Sveinbyrni að posta í þennan þráð.

Re: Need Bmw M5

PostPosted: Mon 28. Mar 2011 19:22
by srr
Ég styrki þig um 50 kr.

Re: Need Bmw M5

PostPosted: Mon 28. Mar 2011 19:25
by íbbi_
væri til í svona styrk líka.. til að klára mitt project

Re: Need Bmw M5

PostPosted: Mon 28. Mar 2011 19:28
by Misdo
sömuleiðis enn ég bið ekki um mikið :cry: bara BMW E36 325

Re: Need Bmw M5

PostPosted: Mon 28. Mar 2011 20:16
by SteiniDJ
Strákar, ekki láta Tombob ljúga að ykkur. Hann er ekki einungis á Swift, heldur öflugum Renault Clio Sport-eitthvað sem gæti án efa tætt malbik víðast hvar!

Annars, þá máttu alveg koma af og til og horfa á M5!

Re: Need Bmw M5

PostPosted: Mon 28. Mar 2011 20:35
by Omar_ingi
já sæll, það er ekkert annað. mér langar líka í m5 eða fá styrk til að geta keipt turbo kitt ásamt fleiri hlutum sem mig langar til að skipta út og bæta við í e36 hjá mér :) hvernig tekur fólk í þetta ?? einhverjir sem vilja styrkja mig líka :)

Re: Need Bmw M5

PostPosted: Mon 28. Mar 2011 23:06
by saemi
:roll:

:popcorn:

Re: Need Bmw M5

PostPosted: Tue 29. Mar 2011 00:47
by Axel Jóhann
Einhvernveginn skynja ég gríðarlega mikla hæðni í þessum pósti. :lol:

Re: Need Bmw M5

PostPosted: Tue 29. Mar 2011 12:32
by Jet
Ég er mjög aumingjagóður og skal styrkja ykkur strákar. :alien:

Re: Need Bmw M5

PostPosted: Tue 29. Mar 2011 13:03
by F2
Haha Tómas :lol:

Re: Need Bmw M5

PostPosted: Tue 29. Mar 2011 13:08
by slapi
Sæll.
Þetta er með fastari skotum sem ég hef séð.

góður

Re: Need Bmw M5

PostPosted: Tue 29. Mar 2011 13:21
by ///M
Þetta var beint í punginn :lol:

Re: Need Bmw M5

PostPosted: Tue 29. Mar 2011 15:12
by tinni77
:lol: :lol:

Re: Need Bmw M5

PostPosted: Tue 29. Mar 2011 17:59
by Jet
Er þetta einhver einkadjókur?
Er hægt að upplýsa þá sem hafa ekki lesið alla þræði á kraftinum? :thup:

Re: Need Bmw M5

PostPosted: Tue 29. Mar 2011 18:22
by SteiniDJ
Jet wrote:Er þetta einhver einkadjókur?
Er hægt að upplýsa þá sem hafa ekki lesið alla þræði á kraftinum? :thup:


Ég bendi á reiði Alpina við hugsanðir Fart um að útvega sér styrki til þess að lappa upp á M3 GT.