Page 1 of 2
Afhverju lyklar fólk bíla?!?!

Posted:
Fri 11. Mar 2011 11:17
by Fatandre
Kem að bílnum mínum í dag og þá er buið að lykla svona 10 cm fyrir ofan afturdekkið hjá mér. Afhverju gerir fólk svona. Ef ég hefði náð honum væri hann með svona rispu á andlitinu

Re: Afhverju lyklar fólk bíla?!?!

Posted:
Fri 11. Mar 2011 11:29
by Benz
Fólk er fífl!
Lenti einu sinni í því að bíllinn minn var lyklaður hringinn af því að ég lagði í almennu stæði (sem sagt fyrir alla) fyrir framan hús hjá sérvitringi sem taldi sig eiga öll stæðin.
Ég fékk það tjón ekki bætt enda kannaðist sérvitringurinn ekki við að hafa gert þetta - en svo kom í ljós að þetta var ekki í fyrsta skiptið sem bílar voru lyklaðir fyrir framan þetta hús...

Re: Afhverju lyklar fólk bíla?!?!

Posted:
Fri 11. Mar 2011 11:29
by kalli*
Ég hata fólk sem að lykla bíla, sá sem að lyklaði minn er verulega heppinn að ég sá ekki til hans. Varstu
eitthvað að leggja asnalega eða gera eitthvað ?
Re: Afhverju lyklar fólk bíla?!?!

Posted:
Fri 11. Mar 2011 12:17
by Fatandre
Alls ekki. Fór á 2 staði í gær og lagði venjulega.
Upp í FB þar sem var kennaradagur (er ekki í námi þar)
Upp í kringlu og lagði niðri kjallaranum.
Re: Afhverju lyklar fólk bíla?!?!

Posted:
Fri 11. Mar 2011 12:36
by SteiniDJ
Á sínum tíma ók pabbi um á nýjum MkIV Golf. Er að koma úr vinnunni þegar hann sér hvað það er búið að lykla allt sem hægt var að lykla á helvítis bílnum. Við skoðun á upptökum úr öryggismyndavélum kom í ljós að þetta var ~13 ára stelpa sem hafði verið að rífast við mömmu sína og ákvað að lykla bílinn í einhverju bræðiskasti.
Erum við að tala um að vera ekkert lítið fucked up í andlitinu?
Re: Afhverju lyklar fólk bíla?!?!

Posted:
Fri 11. Mar 2011 13:04
by kalli*
Fatandre wrote:Alls ekki. Fór á 2 staði í gær og lagði venjulega.
Upp í FB þar sem var kennaradagur (er ekki í námi þar)
Upp í kringlu og lagði niðri kjallaranum.
Ekkert verra en að vera lyklaður
for no reason. Legg alltaf sjálfur eðlilega í skólanum samt
endar maður á einhverju svona.
Re: Afhverju lyklar fólk bíla?!?!

Posted:
Fri 11. Mar 2011 14:11
by Mazi!
óþolandi pakk
skil ekki að fólk þori þessu einusinni, það veit ekkert hver á bílinn eða hvort það sé verið að horfa á sig
Re: Afhverju lyklar fólk bíla?!?!

Posted:
Fri 11. Mar 2011 17:07
by Mr. Jones
Er þetta ekki bara einhverjir öfundsjúkir aular á Skoda sem þola ekki að sjá fína bíla.
Re: Afhverju lyklar fólk bíla?!?!

Posted:
Fri 11. Mar 2011 17:32
by Vlad
Mr. Jones wrote:Er þetta ekki bara einhverjir öfundsjúkir aular á Skoda sem þola ekki að sjá fína bíla.
Nýjir skodar eru nú með því betra sem þú færð í dag...
Re: Afhverju lyklar fólk bíla?!?!

Posted:
Fri 11. Mar 2011 17:57
by SteiniDJ
Vlad wrote:Mr. Jones wrote:Er þetta ekki bara einhverjir öfundsjúkir aular á Skoda sem þola ekki að sjá fína bíla.
Nýjir skodar eru nú með því betra sem þú færð í dag...
Ég hafði afnot af nýjum Skoda á tímabili. Mjög góður og þéttur bíll, en ekki mjög "spennandi". Ekki að það skipti máli.
Re: Afhverju lyklar fólk bíla?!?!

Posted:
Fri 11. Mar 2011 18:56
by sh4rk
Ég þekki þetta báðir bimmanir mínir voru lyklaðir þegar ég bjó á Egilsgötuni og lagði bimmunum hjá Domus Medica, og E23 bimminn fór verr út úr því því að hann var tekinn nánast allan hringinn
Re: Afhverju lyklar fólk bíla?!?!

Posted:
Fri 11. Mar 2011 20:38
by lulex
jújú.. maður hefur nú lent í svona, það voru 9 bílar rispaðir hringinn í götunni sem ég bý í 2008...... og það var komið daginn eftir og gert meira, því miður náðist ekki i skottið á þessu fifli....
Re: Afhverju lyklar fólk bíla?!?!

Posted:
Fri 11. Mar 2011 21:03
by Emil Örn
Bara aumingjar sem lykla bíla...
Er ekki alveg rándýrt að láta laga slíka skemmd?
Re: Afhverju lyklar fólk bíla?!?!

Posted:
Sat 12. Mar 2011 04:05
by sosupabbi
Emil Örn wrote:Bara aumingjar sem lykla bíla...
Er ekki alveg rándýrt að láta laga slíka skemmd?
Heilsprautun á viðkomandi body hlut, það er bara ekkert flóknara en það held ég, sprautun á húddi/stuðara hjá venjulegum sprautara er á milli 30-60þúsund þannig þú getur ýmindað þér hvað það kostar ef hann nær brettinu tveimur hurðum og húddi td. Átti E38 sem var lyklaður á tveimur hurðum...lét samt sprauta hann mestallan nema hurðarnar, veit ekki hvernig ég fékk út að það væri góð hugmynd

Re: Afhverju lyklar fólk bíla?!?!

Posted:
Sat 12. Mar 2011 16:41
by Siggi e12
Hef samúð með þér. Ég var nýbúinn að sprauta bíl og á meðan ég fór að ná í númerin, þá hafði einhver lyklað allt húddið á bílnum
