Page 1 of 1

Tri-turbo 3L I6 diesel frá BMW

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 10:49
by jonthor
Var einhver búinn að sjá þetta? von er á 354hp Tri-turbo I6 diesel frá BMW. :shock: :shock:

http://www.bmwcoop.com/2010/01/19/bmw-3 ... -for-2011/

Re: Tri-turbo 3L I6 diesel frá BMW

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 13:11
by fart
Hvað segja single turbo aðdáendur núna!

En ég var búinn að lesa einhverstaðar fyrir löngu að BMW væri að þróa tri-turbo 6cyl, en þá var talað um það sem nýju M3 replacement vélina.

Re: Tri-turbo 3L I6 diesel frá BMW

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 13:19
by tinni77
TOG ! :shock: :shock: :shock:

Re: Tri-turbo 3L I6 diesel frá BMW

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 13:32
by fart
Slatta aukning á afli frá Bi-Turbo vélinni, var hún ekki komin í 300 hesta og 600nm? Eins og t.d. í 4.0d bílinum.

Re: Tri-turbo 3L I6 diesel frá BMW

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 13:42
by gstuning
Líklega compound turbocharging
og heavy mikið boost.

tvær littla túrbínur tengdar í hvora 3cyl , þær blása svo samann ofan í eina stærri sem keyrir á orkunni sem er eftir að hinar eru búnar að taka sitt.

Þannig að 1bar boost úr littlu (pressure ratio 2:1) ofan í stóru sem er þá aftur 2:1 kannski gefur 2bör boost.

Enn þetta er þá frekar þannig að um er að ræða 4:1 og svo 3:1 eða 3bör boost verða aftur þjöppuð í 9bör boost.
Eða eitthvað i þá áttina. Líklega ekki alveg svo mikið boost samt.

Þessar littlu eru þá fyrir low endið sérstaklega og þessi stóra hjálpar við high endið svo þegar vantar enn meira boost,
þetta á sama tíma leyfir vélinni að snúast hraðar og mynda tog þar sem gefur fína powerið.

Re: Tri-turbo 3L I6 diesel frá BMW

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 13:54
by fart
Benz er að koma með samskonar system fyrir V6 dieselinn. Þá er ein lítil sitthvoru megin sem dæla inn í eina stóra sem er fyrir framan mótorinn.

Þetta þýðir örugglega alveg geggjað powerband.

OG.. mjög litla eyðslu.

Re: Tri-turbo 3L I6 diesel frá BMW

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 15:34
by Axel Jóhann
Og geðveikt skemmtilegt viðhald þegar að því kemur! :mrgreen:

Re: Tri-turbo 3L I6 diesel frá BMW

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 15:58
by BMW_Owner
Axel Jóhann wrote:Og geðveikt skemmtilegt viðhald þegar að því kemur! :mrgreen:


pant taka allar þannig viðgerðir að mér!! :santa: frekar dey ég..

Re: Tri-turbo 3L I6 diesel frá BMW

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 16:06
by fart
BMW_Owner wrote:
Axel Jóhann wrote:Og geðveikt skemmtilegt viðhald þegar að því kemur! :mrgreen:


pant taka allar þannig viðgerðir að mér!! :santa: frekar dey ég..

Hvað er svona mikið vesen? þetta eru bara túrbínur.

Re: Tri-turbo 3L I6 diesel frá BMW

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 16:30
by jonthor
Ég var reyndar að velta öðru fyrir mér. Ég prófaði fyrir nokkrum árum 535d bíl hér heima og fannst gangurinn í honum ansi "rough". Hef heyrt með þessar vélar að lausagangurinn sé einmitt með þessum hætti. Meira að segja að nýja 184hp 2L vélin sé orðin meira "rough" í lausagangi.

Ég verð að segja sem mikill áhugamaður um diesel, en jafnframt um "smooth" lausagang að þetta er ekki jákvæð þróun. Getur einhver útskýrt málið tæknilega fyrir mér? Ég var t.d. með Porche að láni í viku í Frakklandi, non-turbo, og lausagangurinn í honum var hryllingur. Hefur þetta eitthvað með optimization á vélinni miðað við hámarks afl og snúning? Heyrði með þá vél að hún væri með heita knastása, en verð að viðurkenna að ég veit lítið um svona detail.

Re: Tri-turbo 3L I6 diesel frá BMW

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 16:43
by gstuning
lausagangur á dísel vél í dag á að geta verið mjög góður þökk sér hærri díesel þrýsting og mörgum innspýttingum per cycle/gang.

tímasetning á díesel innspýttingunni getur lækkað diesel hljóðið sem myndast. Þess vegna í dag er reynt að opna spíssanna oftar enn einu sinni per gang á cylender.

Re: Tri-turbo 3L I6 diesel frá BMW

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 17:47
by Alpina
fart wrote:Benz er að koma með samskonar system fyrir V6 dieselinn. Þá er ein lítil sitthvoru megin sem dæla inn í eina stóra sem er fyrir framan mótorinn.

Þetta þýðir örugglega alveg geggjað powerband.

OG.. mjög litla eyðslu.


LANGT SÍÐAN þeir byrjuðu á þessu

Re: Tri-turbo 3L I6 diesel frá BMW

PostPosted: Tue 22. Mar 2011 13:56
by BMW_Owner
fart wrote:
BMW_Owner wrote:
Axel Jóhann wrote:Og geðveikt skemmtilegt viðhald þegar að því kemur! :mrgreen:


pant taka allar þannig viðgerðir að mér!! :santa: frekar dey ég..

Hvað er svona mikið vesen? þetta eru bara túrbínur.



já og stimpilhringir eru bara stimpilhringir, frekar myndi ég nenna að skipta um loftsíu heldur en stimpilhringi, nei yfirleitt eru bara staðsetningarnar á þessum fyrirbærum ekkert til að hrópa húrra fyrir og síðan virðist vera alveg nóg viðhald á 1 túrbínu þegar þar að kemur, hvað þá þrjár :lol: kannski er ég bara svona svartsýnn.... :thup:

Re: Tri-turbo 3L I6 diesel frá BMW

PostPosted: Tue 22. Mar 2011 15:23
by IvanAnders
Ha?

Miklu skemmtilegra að skipta um stimpilhringi heldur en loftsíu!!!

lítið skemmtilegra að skipta um loftsíu en að t.d. dæla bensíni....

Re: Tri-turbo 3L I6 diesel frá BMW

PostPosted: Fri 25. Mar 2011 04:32
by 2002tii
Hvernig endar þetta eiginlega?
Með þessum hraða í þróun verða túrbínurnar orðnar fleiri en strokkarnir eftir u.þ.b. 5 ár.... :shock:

p.s. er aðeins með 1na túrbínu í mínum X5