Page 1 of 2

BMW X5 e53 - Spurn. bls 2

PostPosted: Sun 20. Feb 2011 21:58
by Hreiðar
BMW X5 3,0d e53:
Veit einhver hvað þeir eru að eyða? Eitthvað sem maður þarf að vita um þessa bíla? Kostir og gallar. Segið mér ykkar reynslu á þessum bílum.

kveðja

Re: Eyðsla á 3,0 diesel x5 e53

PostPosted: Sun 20. Feb 2011 22:07
by JonHrafn
Bíllinn hjá pabba er að hanga í 9-10lítrum í langkeyrslu með fellihýsi. Er líka í 9-10 lítrum í langkeyrslu án fellihýsis ........ Þrususkemmtilegir bílar Ekkert meira viðhald á þessu en öðru á hjólum.

Re: Eyðsla á 3,0 diesel x5 e53

PostPosted: Sun 20. Feb 2011 22:21
by blomqvist
Ég hef náð mínum niður fyrir 8.5 á rólegri langkeyrslu. Er venjulega um 9.
Í pjúra innanbæjarakstri er hann í ca.11.5 - 12.
Er búinn að eiga hann í rúmlega ár ... ekki lent í neinu óvæntu enn. Bara skemmtilegir bílar :)

Helstu kostir er náttúrulega aflið ... finnur lítið fyrir fellihýsi í eftirdragi ... togið er endalaust.
Ókostir: Skottið er frekar lítið.

Re: Eyðsla á 3,0 diesel x5 e53

PostPosted: Tue 22. Feb 2011 14:30
by Hreiðar
http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1

Veit einhver um þennan bíl. Góð saga á bílnum? Lítur virkilega vel út!

Re: BMW X5 e53

PostPosted: Tue 22. Feb 2011 18:53
by HAMAR
Kaupa bara minn bíl frekar, ekinn jafn mikið en 11 mánuðum eldri og þú átt 1.8 milljón til að kaupa bensín fyrir :lol:

Image

en þetta er þrælflottur Dísill :thup: en ég veit ekkert um hann sorry.

Re: BMW X5 e53

PostPosted: Tue 22. Feb 2011 20:18
by Hreiðar
HAMAR wrote:Kaupa bara minn bíl frekar, ekinn jafn mikið en 11 mánuðum eldri og þú átt 1.8 milljón til að kaupa bensín fyrir :lol:

*X5 hjá HAMAR*

en þetta er þrælflottur Dísill :thup: en ég veit ekkert um hann sorry.

Já, ég hef skoðað þinn nokkuð oft. Virkilega flottur! En þetta er fyrir gamla karlinn,
hann er með Volvo XC90 bensín jeppa og honum finnst hann eyða svo miklu og
hann vill X5 jeppa í staðinn. Það er alveg must að vera diesel hjá gamla. :lol:

Re: BMW X5 e53

PostPosted: Tue 22. Feb 2011 22:10
by HAMAR
Hann verður ekki fyrir vonbrigðum með X5 dísil bíl, eyðslugrannir og kraftmiklir eðalbílar.

Re: BMW X5 e53

PostPosted: Thu 24. Feb 2011 02:07
by ÁgústBMW
11.7 innanbæjar í kuldanum núna, svo er leiðindi með hurðarnar vilja ekki lokast í miklum kulda og ljósin eru með eitthvað vesen, og lítið skott miklu stærra skott í Range Rover Sport en þessu. Annars rúmgóður þægilegur og alltílagi kraftur og góður í snjó.

Re: BMW X5 e53

PostPosted: Thu 24. Feb 2011 18:51
by ppp
agust94 wrote:hurðarnar vilja ekki lokast í miklum kulda

Svona eins og á Range Rover þá 8)

Re: BMW X5 e53

PostPosted: Sat 26. Feb 2011 12:10
by íbbi_
fylgir nú nokkrum bimmum þessi frostleiðinldi með hurðarnar, allavega hef ég lent í þessu á E38/9 og E32 sérstaklega

Re: BMW X5 e53

PostPosted: Sat 26. Feb 2011 16:20
by ömmudriver
íbbi_ wrote:fylgir nú nokkrum bimmum þessi frostleiðinldi með hurðarnar, allavega hef ég lent í þessu á E38/9 og E32 sérstaklega


Haha ég hef aldrei lent í þessu á þeim BMW sem ég hef átt..................................7, 9, 13.

Re: BMW X5 e53

PostPosted: Sat 26. Feb 2011 17:05
by jon mar
Hreiðar wrote:
HAMAR wrote:Kaupa bara minn bíl frekar, ekinn jafn mikið en 11 mánuðum eldri og þú átt 1.8 milljón til að kaupa bensín fyrir :lol:

*X5 hjá HAMAR*

en þetta er þrælflottur Dísill :thup: en ég veit ekkert um hann sorry.

Já, ég hef skoðað þinn nokkuð oft. Virkilega flottur! En þetta er fyrir gamla karlinn,
hann er með Volvo XC90 bensín jeppa og honum finnst hann eyða svo miklu og
hann vill X5 jeppa í staðinn. Það er alveg must að vera diesel hjá gamla. :lol:



Þá spyr ég af forvitni. Hvað er svona Volli að eyða innanbæjar og í langkeyrslu?

Pabbi er mikið að spá í einum slíkum til að skipta út 07 Ford Explorer 4.6L V8 sem honum finnst eyða smávegis.

Re: BMW X5 e53

PostPosted: Sat 26. Feb 2011 17:27
by íbbi_
nú hoppar alpina eflaust í heljarstökk af kæti,

en s.k minni reynslu eru þessir vollar helv þyrstir, bæði v8 og þá sérstaklega T6

Re: BMW X5 e53

PostPosted: Sat 26. Feb 2011 21:18
by HAMAR
Samkvæmt síðustu mælingu hjá mér (janúar) þá er minn BMW X5 V8 að eyða 17.1 L/100km. í 100% innanbæjaraksti.
Í sumar var hann í stöðugum 15.4 L/100km. í 100% innanbæjar Reykjavíkurakstri.

Re: BMW X5 e53

PostPosted: Sat 26. Feb 2011 23:01
by JonHrafn
íbbi_ wrote:nú hoppar alpina eflaust í heljarstökk af kæti,

en s.k minni reynslu eru þessir vollar helv þyrstir, bæði v8 og þá sérstaklega T6


og það gerist nú ekki mikið þegar þessir T6 eru botnaðir ....