
Posted:
Fri 12. Mar 2004 23:31
by bebecar
Ég hef keyrt 523 E39 bæði bsk og ssk - beinskipt var MUN skemmtilegra fyrir mig

Ekki það að sjálfskiptingin sé slæm... þessar vélar eru bara svo yndislegar þegar maður hefur fullkomna stjórn á þeim með beinskiptingunni.

Posted:
Sat 13. Mar 2004 00:10
by Jss
Ég er alveg á báðum áttum og kýs því ekki að svo stöddu, þegar komið er í 5,0 lítra þá á þetta BARA að vera beinskipt enda aðeins fáanlegt þannig, er á báðum áttum með rest.


Posted:
Sat 13. Mar 2004 01:45
by Chrome
það er fínt að líða um á sjálfskiptum...en það jafnast ekkert á við að Spænast um á beinskiptum hehehe


Posted:
Sat 13. Mar 2004 02:39
by ta
auðvitað beinskiptur, engin spurning.
ekkert meira óþolandi en bílar sem eru að
skipta um gír óumbeðið, sérlega niður.
maður er kannski á ferðinni upp ártúnsbrekkuna
og vill "aðeins" auka hraðan, þá bara skiptir
automatið niður eins og maður sé í einhverjum
kappakstri og vélin tekur að öskra.... misskilur mann
gersamlega ... og maður sleppir gjöfinni og byrjar
aftur í röngum gír. "hell no!"
líklega öðruvísi í aflmiklum bílum,
en samt E39/E36 beinskiptur
E38 sjálfskiptur.
veit samt ekki afhverju þetta er svona
tengt bílstærðum.
kannski asnalegt að vera flengja sjöu í beygjum og þess háttar
en það er nú samt skemmtilegra eftir því sem
bíllinn er stærri, einhvernvegin meira gefandi ...
og kannski stóra atriðið er ekki automatið
að snuða soldið af tiltækum hestöflum?
bara mitt álit

Posted:
Sat 13. Mar 2004 11:57
by bebecar
Mig langar aðeins að kommenta á flengingar á stórum bílum - ég fékk allavega ekkert út úr því að flengja Phaeton í beygjum og sá bíll er að ég held 2.2 tonn og 420 hestöfl. Það var bara svo augljóst að þungi bílsins var að eyðileggja allt sportið - scary bíll að mínu mati

í beygjum allavega
Mér finnst reyndar beinskiptar sjöur afskaplega svalar en þær eru sennilega sjaldgæfastar af þessu öllu!

Posted:
Sat 13. Mar 2004 15:01
by jens
Get ekki verið alveg sammála ta með þetta að sjálfskiptingin sé að misskilja mann, hef átt og keyrt bíla sem virka nákvæmlega eins að ta lýsti en hef átt 6 cyl BMW sjálfskiptan og keyrt sjálfskipta BMW bíla og ég vill nú gefa BMW hærri einkun en ta lýsir.. Finst sjálfskiptingarnar frá BMW vera í sérflokki með að staðsetja sig í gírum.

Posted:
Sat 13. Mar 2004 16:39
by Jss
jens wrote:Get ekki verið alveg sammála ta með þetta að sjálfskiptingin sé að misskilja mann, hef átt og keyrt bíla sem virka nákvæmlega eins að ta lýsti en hef átt 6 cyl BMW sjálfskiptan og keyrt sjálfskipta BMW bíla og ég vill nú gefa BMW hærri einkun en ta lýsir.. Finst sjálfskiptingarnar frá BMW vera í sérflokki með að staðsetja sig í gírum.
Er fyllilega sammála þessu.


Posted:
Sat 13. Mar 2004 20:28
by Raggi M5
Beinskipt fyrir mig, alltaf skemmtilegra að keyra bsk.

Posted:
Sun 14. Mar 2004 17:21
by ta
varðandi flengingar á stórum bílum þá
hefði ég auðvitað átt að taka það fram, en ég var að
hugsa um afturhjóladrifs bíla.
ég get skilið að vw phaeton hafi ekki hentað vel til
flengingar. Það geta verið margar ástæður fyrir því.
mér dettur í hug nokkrar.
í fyrsta lagi, bíllinn yfir 10m.kr láns-sýningar-bíll,
maður tekur
varla mikla sjensa með svoleiðis. er svo ekki bíllinn
með eitt fullkomnasta fjórhjóladrif, sem er aðstoðað
af bestu tölvutækni, svo að bíllinn missir aldrei
grip. síðan gerir maður ekki miklar æfingar fyrr en
maður hefur kynnst bílnum við, "on the limit" aðstæður.
fyrst kannski í hálku, þá bleitu og þá kannski má skoða
aðstæður sem henta til að losa afturendann í þurru.
ég held að það sé auðveldara að halda stærri bíl í
"drifti", meiri þungi sem er komin á skrið, og lengra
á milli hjóla. ég veit það ekki, en ef við tækjum td
82 323i og 82 745, í aflíðandi slæd, þá held ég að sá
sem væri á 323i hefði meira að gera á stýrinu, miðað
við jafna gjöf. ég er ekki að staðhæfa, held það bara.
Varðandi sjálfskiptingar á bmw, ég hef ekkert út
á þær að setja, mjög skemmtilegar, en fyrir þá sem vilja fulla stjórn
allann tímann, þá er beinskiptur the way to go.
svo ég taki annað dæmi, aflíðandi beygja á góðri
ferð með góðri gjöf (nálægt limiti), þarna væri vont að fá
allt í einu óumbeðna niðurskipting. en kannski
má e-ð læra inná þetta, eða stjórna (steptronic)?
góðar stundir