bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Nothæft/ónothæft stykki í stýrisbúnað?
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=495
Page 1 of 1

Author:  Bjarki [ Fri 27. Dec 2002 23:42 ]
Post subject:  Nothæft/ónothæft stykki í stýrisbúnað?

Ætli það sé í lagi að nota þetta stykki. "Center tie rod" veit ekki hvað það heitir á íslensku. Keypti það hjá Start í dag og sá þetta þegar heim var komið. Það hefur greinilega orðið fyrir einhverju hnjaski en það virðist vera mjög nýlegt því það er ekki mjög grjótbarið.
Image

Author:  saemi [ Sat 28. Dec 2002 00:51 ]
Post subject: 

Ég myndi segja já. Mér sýnist þetta sé bara klemman sem heldur gúmmíinu á. Ef kúlan hreyfist eðlilega og er stíf í (skröltir ekki) þá myndi ég bara skella þessu í.

Sæmi

Author:  Þórir [ Sat 28. Dec 2002 01:45 ]
Post subject:  stýrisbúnaður.

Sælir.

Ég myndi persónulega aldrei setja notað stykki í stýrisbúnað. Veltur soldið mikið á að það virki allt eðlilega. :D

Kveðja.

Author:  Bjarki [ Sat 28. Dec 2002 01:54 ]
Post subject: 

Ætla að kaupa þetta allt nýtt í sumar en fékk svo endurskoðun á bílun útaf þessu stykki, lausafjárstaðan er ekki sterk eins og er þannig að ég ætla nú bara að redda mér núna með notuðu.
Fékk þetta á 8þús og átti 3þ króna inneing hjá þeim í Start.
Stykkið kostar 12þús í Tækniþjónustu Bifreiða en er ekki til og kemur ekki fyrr en um miðjan janúar þá er skólinn byrjaður og ekki praktíst að leggjast undir bílinn. Til gamans má geta þess að þetta stykki er verðlagt á 499 kr dankar hjá vinum okkar á bmwspecialisten.dk náttúrlega án þarlends vasks en mér er sama, maður er ekki alltaf stoltur af því að búa á eyju. Mig langar ekki að vita hvað það kostar orginal hjá B&L.

Author:  Allan 316´81 [ Sat 28. Dec 2002 15:21 ]
Post subject: 

Er þetta ekki stýrisendi svokallaður??? Mér synist það, þetta er einmitt það sem að ég þarf að skipta um hjá mér, er orðið svolítið gamalt (safe is safe)
Ég held að ég kíki bara í bílanaust á akureyri og skoði málin þar alltaf mjög hagstæð verð oftast ódýrari en umboðs aðilinn fyrir bmw á akureyri og ekki langar mig að panta þetta frá B&L :)

Author:  Elli Valur [ Sun 29. Dec 2002 03:13 ]
Post subject:  stírisendi

einhvertíman keifti ég stírisenda í bimman minn hjá b&l sem er einmitt e21 bíll og hann var á eithvað undir 5000Kr sem er ekki mikið að mínu mati því þetta kostar einhvern 3000Kr í bílanaust og veist ekkert um endinguna ég hef keypt enda í bílanaust og hann var ónítur eftir 1500Km svó að mínu mati er þetta ekki spurning "ORGINAL" er langbest:)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/