bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

vantar smá info um einn e46
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=49030
Page 1 of 2

Author:  Romeo [ Thu 13. Jan 2011 22:41 ]
Post subject:  vantar smá info um einn e46

http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid=16&cid=280859&sid=171817&schid=a62b4936-abca-43e9-9c6a-7b07bad2da6b&schpage=3

veit einhver eitthvað um þennan?

Author:  Hreiðar [ Fri 14. Jan 2011 00:00 ]
Post subject:  Re: vantar smá info um einn e46

Djöfulsins keyrsla. Annars lítur þessi vel út. Hef aldrei séð hann áður..

Author:  ömmudriver [ Fri 14. Jan 2011 01:20 ]
Post subject:  Re: vantar smá info um einn e46

Ég fæ ekki betur séð en að þetta sé ///M Aerodynamics bíll líkt og bíllinn sem hann Reynir fyrir norðan var að selja :)

Author:  Birgir Sig [ Fri 14. Jan 2011 02:23 ]
Post subject:  Re: vantar smá info um einn e46

Andri minn hættu þessum pælingum og keyptu þér bara bévítans BMW:D

Author:  ppp [ Fri 14. Jan 2011 11:41 ]
Post subject:  Re: vantar smá info um einn e46

Alltaf meira bullshitið í þessum bílasölum. Það stendur sjálfskiptur þarna í auglýsingunni.

Annars dúndur flottur bíll.

Author:  RebekkaB [ Sun 16. Jan 2011 18:31 ]
Post subject:  Re: vantar smá info um einn e46

Þessi var fluttur inn 2007 minnir mig. Rosa flottur!

Author:  Skúli [ Mon 17. Jan 2011 00:17 ]
Post subject:  Re: vantar smá info um einn e46

Það er strákur sem heitir Sindri sem er nýlega búinn að eignast þennan. Held að hann búi í Eyjum án þess að geta staðfest það.

Author:  ValliFudd [ Mon 17. Jan 2011 13:50 ]
Post subject:  Re: vantar smá info um einn e46

Hreiðar wrote:
Djöfulsins keyrsla. Annars lítur þessi vel út. Hef aldrei séð hann áður..

Ehm, það eru 8 ár síðan 2003 var sko hehe, finnst hann nú frekar lítið ekinn miðað við að vera 2003 :)
Einn 320D hér útí bílastæði sem er kominn í 270 þúsund :)

En já, on topic, þekki ekki bílinn, en hann lítur skuggalega vel ..

Author:  Romeo [ Tue 18. Jan 2011 02:40 ]
Post subject:  Re: vantar smá info um einn e46

hvað var hann keyrður þegar hann var fluttur inn?

Author:  Hreiðar [ Wed 19. Jan 2011 09:38 ]
Post subject:  Re: vantar smá info um einn e46

ValliFudd wrote:
Hreiðar wrote:
Djöfulsins keyrsla. Annars lítur þessi vel út. Hef aldrei séð hann áður..

Ehm, það eru 8 ár síðan 2003 var sko hehe, finnst hann nú frekar lítið ekinn miðað við að vera 2003 :)
Einn 320D hér útí bílastæði sem er kominn í 270 þúsund :)

En já, on topic, þekki ekki bílinn, en hann lítur skuggalega vel ..

Já ég veit vel. Ég sjálfur myndi bara aldrei "þora" að kaupa bíl sem er kominn í svona keyrslu á tæpar 2 mill.

edit: en mega flottur bíll annars og örugglega mjög góður og vel með farinn.

Author:  JonHrafn [ Wed 19. Jan 2011 12:21 ]
Post subject:  Re: vantar smá info um einn e46

Voða kílómetra hræðsla er þetta, þetta helvítis drasl er nú ekki upp á punt, maður á að keyra þetta.

Author:  Jónas Helgi [ Wed 19. Jan 2011 15:11 ]
Post subject:  Re: vantar smá info um einn e46

Skúli wrote:
Það er strákur sem heitir Sindri sem er nýlega búinn að eignast þennan. Held að hann búi í Eyjum án þess að geta staðfest það.


Eigandinn heitir Sindri (sindris á spjallinu) en hann býr í Árbænum.
Rosarlega eigulegur bíll og ekki ljótt það sem hann er búinn að gera við hann.. :oops:
Fallegur bíll !

Númerið hjá Sindra er 8456855 ef þú þarft að ná í hann.

Author:  Hreiðar [ Wed 19. Jan 2011 22:19 ]
Post subject:  Re: vantar smá info um einn e46

JonHrafn wrote:
Voða kílómetra hræðsla er þetta, þetta helvítis drasl er nú ekki upp á punt, maður á að keyra þetta.

Jebb, ég er svoldið kílómetra hræddur. Finnst einhvernvegin betra að kaupa bíl sem er lítið keyrður. :) Annars er meðalkeyrsla á ári hjá svona flestum sirka 15-25 þús km. Þannig að þessi bíll er ekkert klikkað mikið keyrður eins og ég lét það hljóma fyrst.
En jes on topic. Örugglega fínasti bíll!! :thup:

Author:  ppp [ Thu 20. Jan 2011 14:15 ]
Post subject:  Re: vantar smá info um einn e46

Sá running E39 í gær á YouTube, keyrðann 387.000km.

Dísel reyndar. En shit, það er keyrsla.

Author:  Skúli [ Sun 23. Jan 2011 15:35 ]
Post subject:  Re: vantar smá info um einn e46

Það er diesel benz til sölu á stjörnunni sem er keyrður 670þ og í fínu lagi

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/