Page 1 of 1

Er e-h hér sem tekur að sér að flytja inn BMW varahluti ?

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 05:43
by -Hjalti-
Ég er alveg tölvu fatlaður að því leiti. svo ég spyr , er eitthver hér að taka að sér að panta nýja varahluti í BMW að utan á samgjörnum prís ?

Mig vantar vatnsdælu í 00' 750 V12

sími 8 9 6 9 6 5 2

Re: Er e-h hér sem tekur að sér að flytja inn BMW varahluti

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 06:22
by Alpina
Þetta er bara M73 unit

11510393337 er pn

Re: Er e-h hér sem tekur að sér að flytja inn BMW varahluti

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 06:27
by SteiniDJ
Hef ekki góða reynslu af því að taka inn varahluti fyrir aðra, en get þó hjálpað þér með ferlið ef þú færð engan til að gera þetta f. þig:

1. Ef þú átt kredit kort, tengdu það við PayPal aðgang.

Þetta ferli er mjög einfalt. Þú slærð inn notendaupplýsingar, velur gott og sterkt lykilorð (%!"oK#95sunDur væri t.d. awesome lykilorð, en 1234abc skelfilegt). Þeir biðja þig um að tengja kredit kort við aðganginn þinn. Þegar þú ert búinn að gera það, þá rukka þeir þig um $1 - 5 USD.

2. Virkjaðu kortið.

Nú þarftu að bíða í nokkra daga. Fylgstu vel með yfirlitinu í heimabankanum, en fljótlega ætti að birtast gjaldfærslan frá PayPal. Með henni fylgir 4 stafa talnaruna (9518PayPal t.d.) og notarðu tölurnar til að virkja aðganginn þinn.

3. Finndu vefverslun sem sendir til Íslands.

Ég mæli með PelicanParts þegar það kemur að varahlutum. Góð verð, gott úrval og fljótir að senda. eBay virkar fínt ef þú treystir þér í það (mikilvægt: skoðaðu feedback sölumanns!) og ef seljandi sendir til Íslands. Mæli með því að þú verslir bara við síður sem bjóða upp á PayPal eða Google Checkout.

4. Pantaðu

Passaðu þig á því að síðan sem þú ert að nota er 100% örugg. Aðeins https://www.paypal.com mun biðja þig um PayPal lykilorð! Þú þarft ekki að hafa miklar áhyggjur þegar þú notar vel þekkta og góða verslun eins og PelicanParts (þeir ættu að fara borga mér commission fyrir öll lof sem þeir fá frá mér :lol:)

Mundu að geyma alla reikninga sem þú færð frá PayPal og sölumanni.

5. Tollamál

Þegar varan kemur til landsins þá sendir Pósturinn/Tollurinn þér bréf. Þarna eru þeir að biðja þig um leyfi til að opna vöruna til að finna reikning, ef hann er ekki til staðar utan á kassanum. Þú getur líka sent þeim reikninginn í tölvupósti eða einfaldlega farið með öll skjöl niður í Stórhöfða og gengið frá málunum þar, greitt fyrir tolla og tekið við vörunni.

Þetta er ekki flóknara en þetta! Kannski ekki það sem þú ert að vonast eftir, en ég vona að þetta hjálpi þér í framtíðinni ef þú ferð að versla sjálfur á netinu!

Re: Er e-h hér sem tekur að sér að flytja inn BMW varahluti

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 07:33
by -Hjalti-
Alpina wrote:Þetta er bara M73 unit

11510393337 er pn


Já ég veit að þetta er bara m73 partur en þó er hægt að nota vatnsdælu úr m70 sem er 99% eins nema það þarf að bora gat og snitta fyrir hitanema. verðmunurin a þessum dælum er nánast 50% .. þ.a.s.a mun ódýrari sú sem á að fara í m70

SteiniDJ wrote:Hef ekki góða reynslu af því að taka inn varahluti fyrir aðra, en get þó hjálpað þér með ferlið ef þú færð engan til að gera þetta f. þig:

1. Ef þú átt kredit kort, tengdu það við PayPal aðgang.



Ég er ekki með kredit kort og plana á að fá mér það ekki ;( svo að það er lítið sem ég get gert í að panta sjálfur , takk samt fyrir hjálpina :)

Re: Er e-h hér sem tekur að sér að flytja inn BMW varahluti

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 07:48
by SteiniDJ
Ef þér er illa við kredit kort, þá bendi ég á "plúskort". Kredit kort með engri heimild. Þú leggur bara inn á það pening og verslar fyrir það á netinu. :)

Re: Er e-h hér sem tekur að sér að flytja inn BMW varahluti

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 10:36
by ValliFudd
http://www.schmiedmann.dk/11510393337/p ... .aspx#7528

Er þetta ekki apparatið sem vantar?

Re: Er e-h hér sem tekur að sér að flytja inn BMW varahluti

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 10:45
by -Hjalti-
ValliFudd wrote:http://www.schmiedmann.dk/11510393337/product-type/new/search-by-productnumber/page1.aspx#7528

Er þetta ekki apparatið sem vantar?



jú þetta er apparatið :wink:

Re: Er e-h hér sem tekur að sér að flytja inn BMW varahluti

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 18:30
by HAMAR
Geta þeir í TB ekki pantað þetta fyrir þig?

Re: Er e-h hér sem tekur að sér að flytja inn BMW varahluti

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 18:44
by Danni
SteiniDJ wrote:Ef þér er illa við kredit kort, þá bendi ég á "plúskort". Kredit kort með engri heimild. Þú leggur bara inn á það pening og verslar fyrir það á netinu. :)


Akkurat það sem ég nota, bara til þess að geta pantað af netinu.

Re: Er e-h hér sem tekur að sér að flytja inn BMW varahluti

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 19:12
by srr
Ef þú fyrirframgreiðir mér þá get ég alveg flutt þetta inn fyrir þig.
Ég elska ebay :lol:

***EDIT***
Eftir að hafa skoðað þetta aðeins þá sýnist mér erfitt að flytja inn dæluna á hagstæðara verði en TB er að bjóða hana á.

E32 M70 dælan er á 30k hjá TB,,,,,
E38 M73 dælurnar eru á 45k hjá TB,,,,

Þau verð sem ég hef skoðað eru mjög nálægt þessum og jafnvel hærri ef maður fer að flytja þetta inn.

Re: Er e-h hér sem tekur að sér að flytja inn BMW varahluti

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 21:36
by skulzen
ef þú finnur vatnsdælu i Noregi þá skal ég kippa henni með mér til Íslands 5.Januar

Re: Er e-h hér sem tekur að sér að flytja inn BMW varahluti

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 21:41
by -Hjalti-
Takk fyrir hjálpina strákar :)

ætla að tala við TB eftir hátíðirnar og tékka hvort þeir eiga þetta á lager. Meika ekki að vera V12 laus of lengi :lol:

skulzen wrote:ef þú finnur vatnsdælu i Noregi þá skal ég kippa henni með mér til Íslands 5.Januar


Takk , Já ég geri það ; 8)

Re: Er e-h hér sem tekur að sér að flytja inn BMW varahluti

PostPosted: Fri 24. Dec 2010 16:02
by Thrullerinn
SteiniDJ wrote:Þetta ferli er mjög einfalt. Þú slærð inn notendaupplýsingar, velur gott og sterkt lykilorð (%!"oK#95sunDur væri t.d. awesome lykilorð, en 1234abc skelfilegt). Þeir biðja þig um að tengja kredit kort við aðganginn þinn. Þegar þú ert búinn að gera það, þá rukka þeir þig um $1 - 5 USD.


Flottar leiðbeiningar!

Minnir mig á það þegar ég hakkaði mig inn á amerískan uppboðsvef með notendanafninu abc og pass:abc123, ég hefði geta keypt helling af bílum en lét það vera :lol:

Btw. þá gekk mér hroðalega að skrá American Express kort á paypal, gafst upp á endanum.