bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Bókarumfjöllun: BMW Cars https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=4828 |
Page 1 of 1 |
Author: | iar [ Thu 04. Mar 2004 01:18 ] |
Post subject: | Bókarumfjöllun: BMW Cars |
Var næstum búinn að gleyma að pósta þessu. Skrifað fyrir nokkrum vikum og aðeins lagað til núna, vonandi ekki stútfullt af stafsetningavillum og rugli. ![]() ------------------------------------------------------------- ![]() Titill: BMW Cars Höfundur: Martin Buckley Ljósmyndir: Nick Dimbleby ISBN: 0760309213 Útgefandi: Motorbooks International; (December 2001) Amazon: http://www.amazon.com/exec/obidos/tg/de ... 760309213/ Bókin BMW Cars fer yfir sögu bílaframleiðslu BMW allt frá því fyrir fyrri heimsstyrjöld, erfiðleika eftir stríðsáranna, uppgang BMW á sjöunda áratugnum og allt til aldamóta. HÖfundurinn, Martin Buckley, hefur skrifað um bíla síðan 1985 og hefur skrifað fyrir ýmis blöð, til dæmis Classic Cars, Top Gear, CAR og Motor Trend. Texinn er skemmtilegur og er laus við að vera eingöngu þurr upptalning á bílum eins og stundum vill vera í svipuðum bókum. Martin fléttar einnig inn í frásögnina lýsingum á þjóðfélagslegum og pólitískum aðstæðum sem höfðu oft áhrif á ákvarðanir og framleiðslu BMW. Ljósmyndir Nicks Dimbleby eru margar og mjög góðar og þær fylgja texta bókarinnar vel. Það sem mér fannst skemmtilegast við bókina var hversu mikið er um lýsingar á bílunum, hvernig framleiðslu var háttað, aksturseiginleikum, útbúnaði og þessháttar. Þetta er líka skemmtilega fléttað inn í hugmyndir höfundar á hvað lá á bak við ákvarðanir BMW um ýmsa hluti. Hvernig stóð á því að bíll eins og Isettan var framleidd? Hvað gerði Neu Class bílana svona vinsæla og hvað olli ákvörðun BMW að fara út í þá framleiðslu? Þetta eru dæmi um hluti sem höfundur veltir fyrir sér og tengir inn í það mannlífi eftirstríðsáranna og pólitíkinni í Þýskalandi sem vissulega hafði að einhverju leiti áhrif á BMW sem og aðra þýska bílaframleiðendur. Saga BMW er að mörgu leiti mjög merkileg allt frá upphafi og umskiptin mikil. Til dæmis átti fyrirtækið mjög erfið ár eftir seinni heimsstyrjöld en tókst að snúa því frá gjaldþroti í þann risa sem fyrirtækið er í dag. Margar ákvarðanir sem fyrirtækið hefur tekið hafa verið alveg blákaldar og í gegnum árin má segja að BMW hafi fetað millivegin milli nýjungagirni og fortíðarhyggju mjög vel því þegar allt kemur til alls er þetta jú bara "bissness" og þar hefur þýska skynsemin komið sér vel fyrir BMW. Allt í allt get ég alveg mælt með þessari bók bæði til fróðleiks og skemmtunar. Eina sem angraði mig örlítið var að höfundurinn hefði jafnvel mátt hætta eftir tíunda áratuginn því eftir 1990 er stiklað allt of mikið á stóru og frásögnin verður ruglingsleg og erfitt að fylgjast með. Textinn dettur í það að verða meira tóm upptalning og ekki nærri eins skemmtilegur og öll bókin fram að því. Líklega má kenna því um að það er auðvitað frekar stutt liðið og sagan að mörgu leiti ekki farin að segja sig. Þetta eru þó bara síðustu blaðsíður bókarinnar svo þetta dregur bókina alls ekki niður í heild. |
Author: | bebecar [ Thu 04. Mar 2004 08:50 ] |
Post subject: | |
Stórsnjallt hjá þér. Ég tel að það gæti verið sniðugt að hafa sér þráð t.d. fyrir upplýsingar um BMW og þar mætti hafa inni módelgerðirnar og myndir af þeim öllum og svo greinar um bílana eða greinar um BMW bækur. Þetta er nú einmitt sá hluti sem maður hefur kannski mestan áhuga á að vita afhverju "þetta" gerðist og pólitískar og félagsfræðilegar ástæður sem liggja til grundvallar þegar rétt ákvörðun er tekin! |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |