bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hópkaup á dekkjum fyrir sumarið https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=48168 |
Page 1 of 9 |
Author: | geirisk8 [ Tue 16. Nov 2010 15:55 ] |
Post subject: | Hópkaup á dekkjum fyrir sumarið |
Sælir, þetta er eflaust snemmt en mig langaði að athuga áhuga og fleira. Ég þarf að kaupa mér nýjan gang af sumardekkjum fyrir sumarið: -Fram: 225/40/18 -Aftan: 255/35/18 Svona dekk eru drulludýr. Ég er reyndar ekki búinn að athuga verð hérna á Íslandi en ég vil ekki kaupa mér drasl dekk. Ég hef heyrt að svona dekk kosti kannski um 50þús stykkið = 200.000 kr gangurinn. Ég hef verið að skoða þessi: http://www.tirerack.com/tires/tires.jsp ... mpare1=yes og http://www.tirerack.com/tires/tires.jsp ... mpare1=yes Ég hef ekki rannsakað það en eru menn til í að fara í hópkaup í vetur til að reyna að fá afslátt ? Endilega segið mér ef það er eitthvað sem ég veit ekki eða bara hvað sem er! |
Author: | Mr. Jones [ Tue 16. Nov 2010 16:06 ] |
Post subject: | Re: Ætla ekki allir að kaupa sér dekk fyrir sumarið í vetur |
ég væri nú bara happy ef ég fengi dekk á 50 kall ![]() ![]() |
Author: | geirisk8 [ Tue 16. Nov 2010 16:17 ] |
Post subject: | Re: Ætla ekki allir að kaupa sér dekk fyrir sumarið í vetur |
Mr. Jones wrote: ég væri nú bara happy ef ég fengi dekk á 50 kall ![]() ![]() Haha shit! Ef við getum safnað í góðan hóp þá hlýtur að vera hægt að gera einhvern díl. Ég hef oft séð svona lagað gert á amerísku bmw spjallsíðunum og þeir hafa samband við fyrirtækið (í okkar tilfelli tirerack) og fá einhvern afslátt. Allavega fyrir mig myndi gangurinn kosta rúman 100.000 kall frá tirerack sem er helmingi ódýrara en hér. Myndi ekki vera hægt að útvega lægri sendingarkostnað ef við erum margir að versla sem síðan deilum kostnaðinum á milli ? |
Author: | rockstone [ Tue 16. Nov 2010 16:41 ] |
Post subject: | Re: Ætla ekki allir að kaupa sér dekk fyrir sumarið í vetur |
4x 221$= 884$ = 102þ er svo ekki sendingarkostanður og tollar eftir? |
Author: | geirisk8 [ Tue 16. Nov 2010 16:46 ] |
Post subject: | Re: Ætla ekki allir að kaupa sér dekk fyrir sumarið í vetur |
rockstone wrote: 4x 221$= 884$ = 102þ er svo ekki sendingarkostanður og tollar eftir? Eins og ég segi, ég hef enga reynslu í svona hópkaupum, en ef það er hægt að útvega einhvern díl við tirerack og fá afslátt þá er spurning hvort það borgi sig ? Ímyndum okkur að 25 manns, eða jafnvel fleiri, kaupi allavega 2-4 dekk á mann og fáum allt sent í einu. Sendingarkostnaðurinn deilist síðan niður á alla kaupendur og hlýtur því að verða lægri þegar uppi er staðið ? Sendingarkostnaðurinn fyrir 1 dekk er X og ef þú kaupir 4 dekk þá verður sendingarkostnaðurinn ekki 4X því það er alltaf einhver grunnkostnaður. Sendingargjaldið hækkar auðvitað með hverju dekki en varla jafn eins og að kaupa öll dekkin hvert fyrir sig ? |
Author: | Svezel [ Tue 16. Nov 2010 17:12 ] |
Post subject: | Re: Ætla ekki allir að kaupa sér dekk fyrir sumarið í vetur |
Ég held að þú getir alveg gleymt því að fá enhvern afslátt hjá tirerack og sparnaðurinn við sendingarkostnað verður hverfandi þar sem tirerack er að senda þessi dekk frá fullt af vöruhúsum í USA. Hver ætlar svo að borga herlegheitin þegar pöntunin er gerð? Það eru nú væntanlega ekki margir með margra milljóna limit á kortinu sínu í dag og það kostar sitt að senda pening milli landa. Mig grunar nú að það sé vænlegra að tala við einhvern dekkjainnflytjanda á landinu og fá verð í einhverjar stærðir miðað við x fjölda dekkja sem yrðu keypt í einu. Mig vantar a.m.k. 2ganga fyrir næsta sumar og þekki 2 aðra sem vantar 3ganga svo þetta er fljótt að verða slatti af dekkjum ![]() |
Author: | geirisk8 [ Tue 16. Nov 2010 17:14 ] |
Post subject: | Re: Ætla ekki allir að kaupa sér dekk fyrir sumarið í vetur |
Ég skil, endilega ef það er til betri hugmynd til að framkvæma þetta þá er ég til í að vera með því mig vantar 1 gang og eflaust fleiri hérna sem vantar eitthvað. Er hægt að tækla svona hugmynd með öðrum hætti ? ![]() |
Author: | Einarsss [ Tue 16. Nov 2010 17:29 ] |
Post subject: | Re: Ætla ekki allir að kaupa sér dekk fyrir sumarið í vetur |
Það var einhver sem samdi við bílabúð benna hérna um árið og fékk afslátt af toyo dekkjum, svo var Benni bara með lista yfir þá sem áttu að fá hópdílinn og þurfti þá að mæta upp eftir með cash og segja til nafns. Spurning hvort einhver taki svoleiðis að sér aftur að díla við þá. EDIT mig myndi vanta 2x 215/40/17 Toyo T1R |
Author: | geirisk8 [ Tue 16. Nov 2010 17:34 ] |
Post subject: | Re: Ætla ekki allir að kaupa sér dekk fyrir sumarið í vetur |
Það er sniðug hugmynd! Ég er að skoða á netinu og er orðinn helvíti heitur fyrir Bridgestone Potenza RE-11. |
Author: | Svezel [ Tue 16. Nov 2010 17:43 ] |
Post subject: | Re: Ætla ekki allir að kaupa sér dekk fyrir sumarið í vetur |
Ég skal taka að mér að tala við Bílabúð Benna fyrir sumarið en þeir eru með Toyo. Ég hef keyrt á Toyo síðan 2003 og vil helst ekki annað. Það má örugglega gera einhvern góðan díl á þeim ef gangarnir verða 10 eða fleiri |
Author: | Einarsss [ Tue 16. Nov 2010 18:02 ] |
Post subject: | Re: Ætla ekki allir að kaupa sér dekk fyrir sumarið í vetur |
Svezel wrote: Ég skal taka að mér að tala við Bílabúð Benna fyrir sumarið en þeir eru með Toyo. Ég hef keyrt á Toyo síðan 2003 og vil helst ekki annað. Það má örugglega gera einhvern góðan díl á þeim ef gangarnir verða 10 eða fleiri Toyo eru með betri dekkjum sem ég hef notað... mega fínt grip í þeim. miðað við t.d cooper dekkin sem ég er með að aftan núna þá þarf ég að keyra 2 hringi upp á braut til að þau fari að grípa eitthvað en þegar ég var með toyo þá var gripið til staðar strax. Myndi kaupa afturdekk líka en því miður nóg eftir að mynstrinu á cooper |
Author: | Haffi [ Tue 16. Nov 2010 18:28 ] |
Post subject: | Re: Ætla ekki allir að kaupa sér dekk fyrir sumarið í vetur |
Var að panta dekk frá Tirerack í gegnum benna. Pantaði seinnipart fimmtudags, kom til landsins í gær! |
Author: | srr [ Tue 16. Nov 2010 18:29 ] |
Post subject: | Re: Ætla ekki allir að kaupa sér dekk fyrir sumarið í vetur |
Nú væri gott ef ég væri ennþá að vinna á dekkjalager N1 ![]() |
Author: | Karlsson [ Tue 16. Nov 2010 18:59 ] |
Post subject: | Re: Ætla ekki allir að kaupa sér dekk fyrir sumarið í vetur |
Væri til í 2stk 245-45-17 af toyo dekkjum ef það væri í boði, væri til í svona group buy ef við fengum gott verð á þetta.. |
Author: | geirisk8 [ Tue 16. Nov 2010 19:38 ] |
Post subject: | Re: Ætla ekki allir að kaupa sér dekk fyrir sumarið í vetur |
Haffi wrote: Var að panta dekk frá Tirerack í gegnum benna. Pantaði seinnipart fimmtudags, kom til landsins í gær! Hvað kostuðu dekkin og hver var aukakostnaðurinn ? Svezel wrote: Ég skal taka að mér að tala við Bílabúð Benna fyrir sumarið en þeir eru með Toyo. Ég hef keyrt á Toyo síðan 2003 og vil helst ekki annað. Það má örugglega gera einhvern góðan díl á þeim ef gangarnir verða 10 eða fleiri Ég er svosem alveg til í Toyo fyrst menn tala vel um þau, enda stórt merki sem maður sér víða hvort sem það er í auglýsingum, bílaleikjum eða annað. Gerum lista og uppfærum, hverjir hafa áhuga á að vera í group buy ef það er möguleiki ? -geirisk8 -Karlsson -Einarsss ? -Svezel ? -Rockstone ? -Mr. Jones ? Ég setti spurningamerki fyrir aftan þá sem gáfu í skyn áhuga ![]() |
Page 1 of 9 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |