Sælir, þetta er eflaust snemmt en mig langaði að athuga áhuga og fleira.
Ég þarf að kaupa mér nýjan gang af sumardekkjum fyrir sumarið:
-Fram: 225/40/18
-Aftan: 255/35/18
Svona dekk eru drulludýr. Ég er reyndar ekki búinn að athuga verð hérna á Íslandi en ég vil ekki kaupa mér drasl dekk. Ég hef heyrt að svona dekk kosti kannski um 50þús stykkið = 200.000 kr gangurinn.
Ég hef verið að skoða þessi:
http://www.tirerack.com/tires/tires.jsp ... mpare1=yes
og
http://www.tirerack.com/tires/tires.jsp ... mpare1=yes
Ég hef ekki rannsakað það en eru menn til í að fara í hópkaup í vetur til að reyna að fá afslátt ? Endilega segið mér ef það er eitthvað sem ég veit ekki eða bara hvað sem er!

