Page 1 of 1

Að flytja dót inn t.d. felgur

PostPosted: Wed 10. Nov 2010 17:16
by Helgzman
Sælir nú.

Ég er nýr í þessum innflutting af ebay og fl síðum og var að pæla hvað er lagt mikið á felgur sem kosta kanski 80 þús ? og sömu leiðis með dekk

Svo var e-h að segja að það væri ekki tollur af ljósum er það rétt ?

og svo síðasta hvernig hefur gengið hjá ykkur sem hafa pantað af ebay, kemur allt rétt til ykkar og greiðslurnar í góðu ?

Þakka ;)

Re: Að flytja dót inn t.d. felgur

PostPosted: Wed 10. Nov 2010 17:54
by Jss
Best er að nota paypal og þá ertu nokkuð vel tryggður ef eitthvað fer úrskeiðis. Best að skoða feedback hjá þeim sem þú ætlar að versla við og versla helst við þá sem eru með gott feedback/rating.

Varðandi tolla og gjöld þá er mjög gott að nota reiknivélina á tollur.is sem er hér: http://www.tollur.is/upload/files/calc_netverslun(22).htm. Mundu að verðið sem þú setur inn er CIF verðið með flutningskostnaði og tryggingu, ef við á.

Re: Að flytja dót inn t.d. felgur

PostPosted: Wed 10. Nov 2010 18:18
by Helgzman
Takk kærlega ;) vantar reyndar flokk undir aukahluti og felgur.. en ég finn þetta út ;)

Re: Að flytja dót inn t.d. felgur

PostPosted: Wed 10. Nov 2010 23:14
by batti
Jss wrote:Best er að nota paypal og þá ertu nokkuð vel tryggður ef eitthvað fer úrskeiðis. Best að skoða feedback hjá þeim sem þú ætlar að versla við og versla helst við þá sem eru með gott feedback/rating.

Varðandi tolla og gjöld þá er mjög gott að nota reiknivélina á tollur.is sem er hér: http://www.tollur.is/upload/files/calc_netverslun(22).htm. Mundu að verðið sem þú setur inn er CIF verðið með flutningskostnaði og tryggingu, ef við á.

gott og vel ég hef oft notað þessa reiknivél með góðum árangri, en inná tollur.is virðist ekkert vera sem coverar bíladót nema um sé að ræða bíl í heild sinni. Hvað myndir þú velja til að finna út kostnað við felguinnflutning?

Re: Að flytja dót inn t.d. felgur

PostPosted: Thu 11. Nov 2010 15:56
by Jss
batti wrote:

Fyrst það er ekki þá myndi ég fletta upp í tollskránni sem þú finnur á tollur.is og finna hvaða toll og vsk. viðkomandi hlutur ber, í þessu tilfelli væntanlega 15% toll og 25,5% vsk. og reikna út frá því, síðan geta vörurnar einnig borið vörugjald. Man samt ekki í hvaða flokk felgur falla en auk þess ef þú flytur inn dekk leggjast auka gjöld á þau.

Re: Að flytja dót inn t.d. felgur

PostPosted: Tue 16. Nov 2010 23:41
by Nökkvi
Um að gera að hringja líka bara í tollinn og spyrja ef menn eru í vafa. Betra að hafa þetta á hreinu en að finna út eftir á hver tollur og vörugjöld eru.