Page 1 of 2

Vantar tips um vetrardekk!

PostPosted: Tue 19. Oct 2010 20:45
by geirisk8
Ég er með 16" felgur fyrir vetrardekk, enda passa minni dekk ekki undir e39 540. Dekkin sem eru á felgunum núna eru handónýt, nánast slétt og allir naglar farnir. Stærðin á þeim dekkjum er 225/60/16.

Ég hef um nokkrar tegundir dekkja að velja:
-Nexen Winguard 231
-Nokian Hakka 4
-Michelin Alpin a3
-Michelin X-Ice
-Interstate IWT2

Hvaða dekk af þessum mynduð þið segja að séu skást ? Hvaða stærð mælið þið með fyrir 16" ?

ATH. Ég er ekki að leita að meðmælum um aðrar dekkjategundir en þær sem ég tek fram fyrir ofan.

Takk!

Re: Vantar tips um vetrardekk!

PostPosted: Tue 19. Oct 2010 21:47
by demi
Mæli með Nokian Hakka.., bestu dekk sem ég hef notað :thup:

Re: Vantar tips um vetrardekk!

PostPosted: Tue 19. Oct 2010 21:54
by geirisk8
Já ég var að skoða á netinu og miðað við leitirnar þá voru Nokian dekkin að koma best út. Ég er farinn að hallast svolítið að þeim.

Re: Vantar tips um vetrardekk!

PostPosted: Tue 19. Oct 2010 22:18
by Axel Jóhann
Nokian dekkin eru snilld.

Re: Vantar tips um vetrardekk!

PostPosted: Tue 19. Oct 2010 22:38
by 98.OKT
Ég tæki Nokian dekkin, held þau séu aðeins ódýrari en Mitchelin dekkin, auk þess hafa þau komið best út í könnunum :wink:

Re: Vantar tips um vetrardekk!

PostPosted: Wed 20. Oct 2010 00:32
by joipalli
Ég keypti ný Michelin X-Ice north nelgd vetrardekk. (185/65 15")
Þau virkuðu fáránlega vel í hálkunni, er töluvert að keyra yfir heiðina.

Eftir 12 þús.km. akstur eru nánast engir naglar eftir í dekkjunum að framan.
Hef séð fleiri X-ice north dekk sem missa naglana fljótt.

En ég er persónulega spenntur fyrir Nokian dekkjum næst.
Hvað með Pirelli WinterCarve ?

Re: Vantar tips um vetrardekk!

PostPosted: Wed 20. Oct 2010 01:59
by HAMAR
nokian :thup:

Re: Vantar tips um vetrardekk!

PostPosted: Wed 20. Oct 2010 07:20
by Alpina
Grunar að Michelin dekkin séu endingarbest .. en eflaust feti framar einnig hvað þau séu dýrari

Re: Vantar tips um vetrardekk!

PostPosted: Sun 24. Oct 2010 10:15
by GudmundurGeir
Ég er með Nokian Hakkap... undir 944. Þau er geggjuð... Oft sem gleymist að maður sé á nöglum og ég hef því spólað mikið á þeim :oops: Það er ekki 1nagli farinn úr þeim.

Re: Vantar tips um vetrardekk!

PostPosted: Wed 27. Oct 2010 12:59
by HjorturG
Ég er einnig að pæla í vetrardekkjum undir minn, reyndar 17".. Hverjir eru með umboð fyrir þessum Nokian Hakka dekkjum? Það virðast flestir hérna vera sammála um að þau séu góð.. :) Eru þau nelgd eða ónelgd?

Re: Vantar tips um vetrardekk!

PostPosted: Wed 27. Oct 2010 14:41
by gunnar
Ég myndi líka ef ég væri að íhuga kaup á vetrardekkjum á stórar felgur 17"> að kaupa ekki ódýr dekk heldur að fá mér minni felgur sem vetrarsett og kaupa frekar betri minni dekk.

Rosalega margir sem ég er að vinna með sem eru að kaupa ódýr dekk undir stóru felgurnar sínar í staðinn fyrir að kaupa vetrarsett í minni stærð. 15-16".

Munar svo rosalega á verði á þessum stærðum.

Var einn í vinnunni sem skoðaði verðin á 17" 225/45/R17 og alvöru dekk voru ekkert undir 130kallinn. En ég fann fyrir hann sett af 16" felgum á klink og svo keypti hann sér 16" góð dekk á 70 kall.

Re: Vantar tips um vetrardekk!

PostPosted: Wed 27. Oct 2010 21:48
by 98.OKT
HjorturG wrote:Ég er einnig að pæla í vetrardekkjum undir minn, reyndar 17".. Hverjir eru með umboð fyrir þessum Nokian Hakka dekkjum? Það virðast flestir hérna vera sammála um að þau séu góð.. :) Eru þau nelgd eða ónelgd?


Max1 er með þessi dekk, og þau eru til bæði negld og ónegld, en eins og Gunnar sagði, þá eru 17" vetrardekk ekki ódýr, og er í raun mun hagstæðara að kaupa sé aukasett af minni felgum og dekkja þau :wink:

Re: Vantar tips um vetrardekk!

PostPosted: Thu 28. Oct 2010 09:57
by Gunnar Þór
Það er bara ekki option hjá ölllum að runna minna en 17". Ég er búinn að vera að svipast um eftir ónegldum vetrardekkjum, virðist ekkert vera til undir 140k...

Re: Vantar tips um vetrardekk!

PostPosted: Mon 01. Nov 2010 11:41
by Angelic0-
notastu bara við OEM stærðina á 16" þá færðu þægilegasta ride-ið !!!

225/60R16

Re: Vantar tips um vetrardekk!

PostPosted: Tue 02. Nov 2010 22:57
by geirisk8
Ég keypti Nokian Hakka4 195/55/16. Ég veit, þau eru minni en djöfull virka þau vel ! Það er skítadrulluógeðisveður hérna fyrir vestan og bíllinn komst í gegnum allt leikandi létt! Gæti ekki verið ánægðari með dekkin og mæli hiklaust með þeim. :thup: