Page 1 of 2

Ásett verð? :)

PostPosted: Fri 27. Feb 2004 09:23
by Beggi
Sælir drengir ég er aðeins að velta fyrir mér.

Gætuð sagt mér hvað svona BMW ætti að kosta?
Hann er '91 árgerð, e36 body.
ekinn 235 en slær ekki feilpúst
ný skipting
etthvað endurnýjuð vélin
hann er alveg í topp standi þrátt fyrir þennan akstur
hann er á 16" fallegum álfelgum
frekar gott lakk á honum
topplúga
rafmagn í öllu nema sætum og ekki leður

hvað fólk er tilbúið að borga fyrir svona bíl?

PostPosted: Fri 27. Feb 2004 09:40
by bebecar
Þessi setning var ill skiljanleg hjá þér...

PostPosted: Fri 27. Feb 2004 09:52
by arnib
Hvaða týpa af e36 er þetta?

PostPosted: Fri 27. Feb 2004 10:21
by Beggi
ég er að meina hvað eru þessir bílar að fara á svona sirka en hvað ertu að meina með hvaða týpa? :oops:

PostPosted: Fri 27. Feb 2004 10:22
by bebecar
Hann er að meina að það er mikill verðmunur á 316, 318, 320, 323, 325, 328 og M3 :wink:

PostPosted: Fri 27. Feb 2004 10:22
by arnib
Beggi wrote:ég er að meina hvað eru þessir bílar að fara á svona sirka en hvað ertu að meina með hvaða týpa? :oops:


316i, 318i, 320i, 323i, 325i, 328i, M3 ?

2door, 4door, compact, Z.. ?

PostPosted: Fri 27. Feb 2004 10:27
by Beggi
já vó sorry þetta er 325ia ég er að spá hvað er sanngjarnt verð fyrir hann hinar upplýsingarnar eru fyrir ofan verðið að afsaka allt vesenið

PostPosted: Fri 27. Feb 2004 17:17
by Jói
Sko, ef miðað er við aðra e36 og tekið mið af verði á öðrum bílum, t.d. 525 e34, þá finnst mér að sanngjarnt verð á þessum bíl væri á milli 400-500þ, en ekki yfir 500þ.

Svipaður e36 og þinn með ásett verð upp á 600 þ. Þetta finnst mér til að mynda fáranlega hátt.

E34 er þessar vikurnar að fást á mjög góðum prís. T.d. var einn e34 til sölu um daginn í fréttablaðinu á 550 þ og það var '94. Þeir sem mundu vilja e36 325 vilja alveg eins e34 525. Þegar e34 bíllinn er að fást á betra verði þá tel ég að verðið á e36 sé eitthvað skrýtið??

Munið þið hvað fallegi 525 bíllinn hans Sæma fór á lítið? Það var samt alveg rosalega eigulegur bíll. Ég skil því ekki hvers vegna ásett verð á e36 er svona hátt ef miðað er við e34. Ein ástæðan sem ég tel vera er að e36 er vissulega nýrra módel og e34 er orðinn sá 3. nýjasti í 5-línunni. Það skýrir þá alls ekki allt. Verðið á e36 hlítur að fara bráðlega neðar.

PostPosted: Fri 27. Feb 2004 17:53
by bebecar
Vel rökstutt og vandað svar hjá Jóa - ég er sammála.

En það er eitt til viðbóta, E36 er meira "hot" en E34 og það skýrir að einhverju leiti yfirverð á þeim bílum.

PostPosted: Fri 27. Feb 2004 19:23
by Djofullinn
E36 eru bara vinsælli en E34 eins og Bebecar bendir á. Það væri nú gaman að fá fínan E36 325i á 400 þús :)

PostPosted: Fri 27. Feb 2004 19:25
by oskard
það er nú ekki langt í að e30 verði dýrari en e36 og e46 :naughty:

PostPosted: Fri 27. Feb 2004 19:33
by Jói
Ég trúi því ekki að e36 sé svona miklu vinsælli en e34 að það réttlæti það að e36 sé svona töluvert dýrari en e34. :?

Vegna verðmismuns á e34 og e36 um þessar mundir, þá lít ég ekki við e36 þótt mig langi í rauninni frekar í e36 en e34.

E36 eru bara vinsælli en E34 eins og Bebecar bendir á. Það væri nú gaman að fá fínan E36 325i á 400 þús

Það er nefnilega ansi langsótt að fá fínan e36 325 á 400 þ, en það er ekki langsótt að fá e34 525 á 400 þ, enda er það svipað og bíllinn hans Sæma fór á. :shock:

Að lokum, hvers vegna keypti ég ekki bílinn hans Sæma???? :cry:

PostPosted: Fri 27. Feb 2004 19:53
by bebecar
Það er einn 525i 1994 módel ekinn 165 þús í fréttablaðinu í dag á 500 þúsund... :wink:

PostPosted: Fri 27. Feb 2004 20:07
by arnib
Jói wrote:Ég trúi því ekki að e36 sé svona miklu vinsælli en e34 að það réttlæti það að e36 sé svona töluvert dýrari en e34.

Vegna verðmismuns á e34 og e36 um þessar mundir, þá lít ég ekki við e36 þótt mig langi í rauninni frekar í e36 en e34.


Þú fellir eiginlega þín eigin rök þarna á staðnum, trúir ekki að hann sé svona miklu vinsælli, en samt langar þig meira í hann sjálfur.
Ef þig langar meira í hann sjálfur, langar líklega öðrum meira í hann líka og það útskýrir verðmuninn.


Jói wrote:Að lokum, hvers vegna keypti ég ekki bílinn hans Sæma???? :cry:


Góð spurning :hmm:

PostPosted: Fri 27. Feb 2004 22:29
by Jói
arnib wrote:
Jói wrote:Ég trúi því ekki að e36 sé svona miklu vinsælli en e34 að það réttlæti það að e36 sé svona töluvert dýrari en e34.

Vegna verðmismuns á e34 og e36 um þessar mundir, þá lít ég ekki við e36 þótt mig langi í rauninni frekar í e36 en e34.


Þú fellir eiginlega þín eigin rök þarna á staðnum, trúir ekki að hann sé svona miklu vinsælli, en samt langar þig meira í hann sjálfur.
Ef þig langar meira í hann sjálfur, langar líklega öðrum meira í hann líka og það útskýrir verðmuninn.

Já, eins og ég sagði sjálfur þá er ein ástæðan sú að e36 sé vinsælli. En ég sagði líka að ég lít ekki við e36 á því verði sem hann er á núna, og það getur því ekki útskýrt verðmuninn, nema að hluta til.